Líf og list - 01.12.1951, Blaðsíða 22
verkaflokkum, sem Val lætur
bezt.
ÆVAR KVARAN var auðkýf-
ingurinn og heimsmaðurinn Lei-
cester Paton. Hlutverk hans var
þeirra minnst en skemmtilegast,
enda hreppir hann „hnossið“ að
lokum. Ævar vinnur eða æfir
hlutverk sín að hætti meistara
í framsagnarlist, enda er hann
manna lærðastur hér á því sviði.
Hann æfir hlutverkið lið fyrir
lið og nær oft meistaralegum
tökum á ýmsum atriðum, sem
aðrir mundu hirða lítt um. Leik-
ur hans er því oft betur hugs-
aður í frumatriðum en sem heild
eða sérkennileg manngerð. Ekki
svo að skilja, að hann sýndi ekki
heimsmanninn nógu vel. En
Ævar mætti sér að ósekju
hlaupa meira úr roðinu en hann
gerir. ^
Móður Viktoríu og tengda-
móður eiginmannanna, frú
Shuttleworth, lék EMILÍA
JÓNSDÓTTIR. Leikur hennar
var áferðargóður, en kvað lítið
að honum. Stríðsfyrirbrigðið,
vinnukona, sem velur úr hús-
Arndís Björnsdóttir (aðstoðarsttílka), Valur Gislason (Frcdcrick.)
og Þorstcinn O. Stcphensen (Bill)
burði. Þar hefur Hildur Kalman
yfirburðina og sjálfsagt þekk-
ingu til að vera þar góður ráðu-
nautur. Aftur á móti er Inga
meistari í svipbrigðum og lát-
bragðslist.
Fyrri eiginmann Viktoríu lék
ÞORSTEINN Ö. STEPHENSEN,
en þann seinni VALUR GÍSLA-
SON. Báðir sýndu þeir þjálfun
og leikni en ekkert fram yfir
það. Yfirleitt var einhver drag-
bítur á allri leiksýningunni, en
nokkru getur valdið þar um slæ-
leg aðsókn þessu sinni.
Sem Bill var Þorsteinn öllu
hressilegri frá höfundarins
hendi, en Valur sem Frederick
alvarlegri. Þó hefðu leikarar og
leikstjóri í sameiningu getað
sýnt meiri mismun manngerð-
anna (týpanna) en þeir gerðu.
Rætt hefur verið um, að Þor-
steinn hefði ekki hæft hlutverki
sínu með tilliti til þess, að hann
kemur beint úr fangabúðum
Þjóðverja. Slíkt er í raun og
veru smáatriði, þar sem hér er
um gamanleik að ræða. Öllu
verra var, að hvorugur þeirra
Þorsteins né Vals hæfðu hlut-
LÁRUS PÁLSSON
verkum sínum fyrir aldurs sak-
ir. Enda þótt þeir séu majórar
að tign eru tilsvörin lögð í munn
yngri mönnum og allur þeirra
samleikur er talandi tákn þess.
Þeir eru persónur, sem eiga líf-
ið framundan en ekki að baki.
Leikur Vals var þó meira sann-
færandi en Þorsteins. Og að öðru
leyti tilheyrir þetta þeim hlut-
22
LÍF og LIST