Líf og list - 01.12.1951, Blaðsíða 18
Höggmyndir frá Chartres (12. og /3 olci)
T. v.: KONUNGÖR í JÚDEU — T. h.: MARÍUMYND
legan samanburð á þessum tveim stílum. Róm-
önsku arkitektarnir byggðu hvelfing yfir rétt-
hymdan flöt með þeim kerfisbundna hætti að
tengja skálæga hálfhringmyndaða boga á milli
horna hvelfingarinnar og fylla síðan millirúmið
með steinsteypu, svo að það varð að föstu hvelfing-
arformi. í gotneska stílnum er því öðru vísi farið:
Þar eru hinir skálægu bogar algerlega sjálfstæðir
hlutir, gæddir eigin f jaðurmagni, og á þeim hvíla
steinhellurnar, sem sjálf hvelfingin er gerð úr.
Þessir skálægu bogar gegna þess vegna sama
hlutverki og hver tréumgerð sú, sem hver bogi
er byggður á. Þakhvelfingin er gædd sínum sjálf-
stæða, fjaðrandi mætti, og þungi hennar og hlið-
arþrýstingur hvíla á hornunum. Horn þessi eru
því einu hlutar byggingarinnar, sem þarfnast
sterkra stoða, því að á þeim hvílir allur þungi
hvelfingarinnar. Þess vegna eru hornin styrkt með
bogabútum eða svífandi gagnstoðum, sem virð-
ast halda uppi veggnum. Ekkert er svo máttugt
í rómanskri byggingarlist. Gotneski stíllinn er
ekki einungis sérkennilegur fyrir byggingar-
tækni, heldur er hann og frábrugðinn öðrum stíl-
um í súlnamótun. f Chartres-kirkjunni gefur að
líta ómælilega margbreytni í ávölum súlnaform-
um, sem skaga fram og hafa undursamleg áhrif
á ljós og skugga inni í kirkjunni.
Bæði skip og framhlið kirkjunnar í Chartres
eru prýdd líkönum og höggmyndum, sem gædd-
ar eru duldum krafti. Enginn veit, hver hefur
skapað þessi listaverk fremur en rúðumálverkin,
en það hljóta að hafa verið einlægir og sannir
listamenn, sem unnu fyrst og fremst fyrir guð og
listina, en ekki eingöngu til þess að þóknast f jöld-
anum. Hið mikla jafnvægi í þessum myndum
sýnir raunsæleik, maður sér í þeim þjáningar f jötr-
aðrar samvizku, í þeim speglast mannlegar þrár
og trúrænn vilji, og af togstreitu þessara afla
birtist eldlegur innblástur mikilla hugsjóna, sem
tjá leyndardóma lífsins. Myndirnar binda fram-
tíð mannsins við fjarlægar helgisagnir,. sem þær
hafa bjargað af flaki hins gamla heims.
Stcingrímur.
Rútíumálverk frá Chartres:
GAMALL MAÐUR ÞAKKAR HEILÖGUM NIKULÁSI
18
LÍF og LIST