Svart á hvítu - 01.10.1978, Blaðsíða 52
Listaverkið á tíma
fjöldaframleiðslu sinnar
Walter Benjamin Þýöing: Árni Óskarsson
og Örnólfur Thorsson
Walter Benjamin fæddist árið 1892 í Berlín. Hann
lagði stund a' heimspeki í háskóia og lauk því námi
með verki sínu, ,,Um hugtakið listgagnrýni í þýsku
rómantíkinni“ (,,Der Begriff der Kunstkritik in der
deutschen Romantik“) árið 1919. Næstu árin
starfaði hann sem essayisti, þýðandi, bókmennta-
gagnrýnandi og listfræðingur. 1923—1925 skrifaði
hann frægt rit um upphaf þýska ,,sorgarleiksins“
(,,Ursprung des deutschen Trauerspiels") sem út
kom árið 1928. Um þetta leyti verður hann marxisti
og höföu kynni hans af Bertolt Brecht mikil áhrif á
þá þróun. Benjamin var gyðingur og fiúði til Parísar
þegar nasisminn hófst til valda í Þýskaiandi. Brátt
var Frakkland hernumið eins og allir vita og
Benjamin svipti sig iífi á flótta við spænsku landa-
„Fagrar listir mótuðust og greindust á
tímaskeiði sem var mjög ólíkt okkar tíma.
Menn höfðu þá hverfandi lítið vald á hlut-
um og aðstæðum miðað við þaö sem nú
er. En furöuleg framvinda tækninnar, sú
aðlögunarhæfni og nákvæmni sem náðst
hefur, veldur því að í náinni framtíð eiga
sér stað róttækar breytingar á fornri list-
iðju. í öllum listum er efnislegur þáttur,
sem verður ekki lengur ósnortinn af vis-
indum og starfi nútímans. Síðustu tuttugu
árin eru hvorki efnið, rúmið né tíminn hið
sama og þau hafa verið frá ómunatíð.
Nauðsynlegt er að gera sér Ijóst að svo
gagngerar nýjungar breyta allri tækni list-
anna og hafa þar með áhrif á sköpunina
sjálfa og koma því e.t.v. að lokum til með
að breyta sjálfu list-hugtakinu á undur-
samlegan hátt." (Paul Valéry: Pieces sur
l’art, París (o.J), bls. 103/104 ,,La
conquéte de l'ubiquité").
FORMÁLI
Þegar Marx tók sér fyrir hendur aö greina kapítalíska
framleiösluhætti voru þeir enn á byrjunarstigi. Marx
hagaöi starfi sínu þannig aö þaö öðlaðist forsagnargildi.
Hann rannsakaöi grundvallarskilyröi kapítalískrar fram-
leiöslu og settu þau þannig fram aö Ijóst varö hvers
vænta mætti af kapítalismanum í framtíðinni. í Ijós kom
aö ekki einvörðungu mátti búast viö auknu aröráni á
mærin árið 1940. Flest verka hans voru gefin út
löngu eftir dauða hans, á 6. áratugnum.
Sú grein sem hér fer á eftir birtist fyrst á prenti
árið 1936 og heitir á frummálinu ,,Das Kunstwerk
im Zeitaiter seiner technischen Reproduzier-
barkeit".
Greinin er þýdd úr þýsku eftir llluminationen
Frankfurt/Main 1977). Til hliðsjónar var höfð ensk
þýðing í llluminations (London 1973). Þýðendur
styttu sumar neðanmálsathugasemdir, slepptu
öðrum og bættu við nokkrum sjálfir. Nafnalisti er
unninn upp úr ensku útgáfunni. Þýðendur þakka
Halldóri Guðmundssyni, Vésteini Ólasyni og Sig-
rúnu Árnadóttur fyrir yfirlestur.
verkalýðsstéttinni heldur einnig því að kapítalisminn
myndi aö lokum skapa þau skilyrði sem leiða kynnu til
afnáms hans sjálfs.
Umbylting yfirbyggingarinnar tekur miklu lengri tíma
en umbylting undirbyggingarinnar og þaö tók meira en
hálfa öld aö koma til leiöar breytingum á framleiðsluskil-
yrðunum á öllum sviðum menningarinnar. Fyrst nú er
,hægt aö athuga á hvern hátt það gerðist. Til slíkra at-
hugana veröur að gera kröfur um visst forsagnargildi.
Forsagnir á þessum grundvelli varöa þó fremur þróun-
artilhneigingar listarinnar við ríkjandi framleiðsluhætti
en list verkalýösstéttarinnar eftir valdatöku hennar, að
ekki sé nú talað um kenningar um list hins stéttlausa
þjóöfélags. Díalektík þessara skilyrða segir ekki síöur til
sín í yfirbyggingunni en efnahagslífinu. Þess vegna væri
rangt aö vanmeta baráttugildi slíkra kenninga. Þær sópa
í burtu ýmsum úreltum hugtökum, svo sem sköpunar- og
snilligáfu, eilíföargildi og dulúð, en taumlaus (og sem
stendur illstýranleg) notkun slíkfa hugtaka leiðir til um-
vinnslu staöreyndanna aö fasískum hætti. Þau nýju
hugtök, sem innleidd eru í listfræðina í eftirfarandi
grein, eru að því leyti ólík hinum venjulegu að þau eru
öldungis ótæk í þjónustu fasismans. Aftur á móti eru
þau nothæf til þess að setja fram byltingarsinnaðar
kröfur í listpólitíkinni.
í raun hefur alltaf veriö hægt aö fjölfalda listaverk.
Menn gátu ætíö líkt eftir mannaverkum. Slíkar eftirlík-
50
SVART Á HVITU