Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 12
Ingvar Orre, einn af ung-
skáldunum sænsku, fæddur
1932. Tilheyrði hann hópi
skálda sem stofnaði félagið
„Metamorfors" í upphafi ný-
liðins áratugs. Sá hópur
kallaði sig rómantískan. Hef-
ur gefið út Ijóðabækur,
„Trubaduren" (1953) og
„Sierskan“ (1955) og auk
þess skáldsöguna „Förspel“
(1954) sem fjallar um mennt-
skælinga í Stokkhólmi.
lektorín hafði á Söder og annars var svo
skemmtileg, en vitaskuld skellti hann
skollaeyrum við svoleiðis rausi. Yfirleitt
hlustaði hann ekki á fólk, liann hlustaði
á vinda. Þess má geta, að dag og nótt
kvað við í íbúðinni seiðandi gnýr, stund-
um eins og fossniður, stundum eins og
brimhljóð, en oftast eins og suð í ótelj-
andi býflugum. I eyrum herra Kollektorín
lét það eins og draumur og ævintýri.
Hvernig hafði hann eignazt þetta mikla
safn? spyrjið þið.
Jú, ýmist hafði hann skotizt í smá leið-
angra með plastháfinn sinn, skiptst á
vindum við aðra eða keypt þá fyrir stórar
fjárhæðir sem hann hafði unnið sér inn
með súrum sveita endur fyrir löngu, þegar
hann starfaði á skrifstofu hjá ríkinu.
Auðvitað var þetta tómstundagaman ekki
með öllu kostnaðarlaust: ferðir og allt
sem þurfti að kaupa, ljósmyndir, veiði-
tæki, hirzlur og sýningarskápar — allt
þetta kostaði meira en herra Kollektorin
hafði í rauninni efni á. En sá sem safnar
einhverju af ástríðu skeytir aldrei um
slíkt. Þvert á móti hafði hann einn góðan
veðurdag brotið allar brýr að baki sér
til áframhaldandi fjáröflunar með því
hreint og beint að segja upp stöðunni.
Hann kunni ekki við sig í loftillu skrif-
stofuherbergi.
Hann hafði sagt skilið við mannfólkið í
eitt skipti fyrir öll, bæði af sparnaðar-
ástæðum og svo fór honum líka að standa
meir og meir á sama um það, því upp-
teknari sem hann varð af vindunum. Nei.
þá kaus hann heldur að lifa í samneyti
við vindana sína, og hann hlustaði daginn
út og daginn inn á sögur þeirra og und-
ursamlega söngva.
En það væri nú kannski vel til fundið að
yfirgefa herra Kollektorín sjálfan eitt
andartak og víkja heldur ögn að safninu
hans. Hverskonar vindar voru það sem
hann átti? Því er auðsvarað: safninu var
10 Birtingur