Birtingur - 01.04.1960, Side 13

Birtingur - 01.04.1960, Side 13
nefnilega skipt í tvo flokka, sögulega flokkinn og þann landfræðilega. í þeim síðar talda voru t. d. sýnishorn af sænska sléttuvindinum og kvöldgolunni í Lapp- landi með og án miðnætursólar, þar voru hvassviðri, slagviðri og haglél hvaðanæva úr landi okkar. Innlendu vindunum hafði hann sjálfur safnað. En hann átti líka er- lenda dýrgripi: rauðan morgunandvara frá upplöndum Túnis, sandstorm frá Gull- ströndinni, fárviðri frá Kyrrahafi og álandsvinda frá Horni og Grænlandi. Eink- um var hann stoltur af því sýnishorni sem hann átti af angandi næturvindinum frá hinum svífandi skrúðgörðum; hann gat staðið tímunum saman og andað að sér þungum ilmi hans. Hann átti dragsúg frá koníaks-verksmiðjum Martells sem hann naut með kvöldkaffinu og sömuleiðis margskonar vinda frá kínverskum rís- ökrum og beitilöndum í Vilta vestrinu. Fellibylir, hvirfilvindar, staðvindar og stormar frá öllum höfum heims voru festir með stálþræði á skáphurðirnar og á pínulitlu spjaldi voru sérstaklega fágætir vindar, en það var vindur sem blásið hafði í sænska fánann á suðurheimsskaut- inu 1903. Þetta fágæti var annars staðsett við hliðina á strekkingi frá vesturströnd- inni sem eigandinn hafði sjálfur veitt í árabát 1950. I sama skáp rnátti víða lesa Norður- og Suðurtá Eylands, minjar frá sumarleyfinu 1944, ströndin milli Kalmar og Söderarm sama ár o. s. frv. t hinum flokkinum voru, eins og áður er sagt, sögulegir vindar. Það var frábært safn. Þar var meðal annars vindurinn sem dreifði þokunni við Lútzen 1632 — dýrgripur sem hann hafði fengið í skipt- um fyrir þrennskonar vinda úr sænska skerjagarðinum hjá þýzkum safnara sem taldi sig hafa ofnæmi fyrir púðurlykt. Hann átti líka þann vind sem blásið hafði um franska ríkið óróaárið 1789 og meira að segja blæ sem leikið hafði um hár Kleopötru áður en fundi þeirra Antoníus- ar bar fyrst saman, enda þótt angan hans ■væri nú tekin að dofna til muna, stað- reynd sem herra Kollektorín gramdist meira en orð fá lýst. Síðasta andvarp Gregoríusar III. var einnig í miklum met- um hjá eigandanum, ekki svo mjög vegna þess að hann væri tiltakanlega trúhneigð- ur, heldur af því að það hafði tekið hann þrjú ár að fá enska rithöfundinn til að selja sér það. I smádeild þar sem geymdir voru menningarlegir vindar var enn að finna þann andblástur sem mætt hafði skáldinu Thorild þegar hann kom í heim- sókn til Englands. I svefnherbergi herra Kollektoríns var sýningarskápur sem hafði að geyma lang- mesta dýrgripinn. Það var sýnishorn af livirfilvindinum sem gert hafði 15.000 manns heimilislausa á Nýju Guíneu 1913. Þetta var eina eintakið sem til var í heiminum, og sá sem náði því var sér- lega hugrakkur safnari sem þai’na hafði verið staddur af tilviljun. Þessi óviðjafn- anlegi dýrgripur var geymdur í sérstak- lega gerðum sýningarskáp með óvenju þykku gleri. Og þar sem jafnvel ofsa- fengnustu hvirfilvindar eru ósýnilegir hafði safnarinn okkar látið tveggja punda lóð í skápinn. Allan sólarhringinn sveif lóðið þarna fram og aftur, lyftist og dansaði og lamdist í þykka glerrúðuna. Fáir mundu víst telja, að svefnherbergi væri heppilegur staður fyrir jafn hávaða- saman grip, en herra Kollektorín fannst þessi skarkali eins og ljúfasta hljómlist. Og aldrei kom það fyrir að hann ætti bágt með að sofna á kvöldin þar sem hann lá undir rammfestri ábreiðunni. En nú fór svo að þessi hvirfilvindur varð herra Kelloktorín næsta örlagaríkur. Einn morguninn slöngvaðist nefnilega tveggja punda lóðið af svo miklu afli á rúðuna að þykka glerið mölbrotnaði og hvirfilvindur- inn slapp út. Að andartaki liðnu hafði liann brotið upp skápana og slitið hina vindana af pappaspjöldunum. Gúmíböndin Birtingur 11

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.