Birtingur - 01.04.1960, Qupperneq 18
eftir Guillaume Apollinaire kom ekki út
fyrr en 1913). Ungur þýskur listkaupmað-
ur, Daniel Henri Kahnweiler, sem setst
hafði að í París 1907, hélt verndarhendi
yfir Kúbistamálurunum og sýndi nýjustu
myndir þeirra Braques og Picassos að
jafnaði í litla galleríinu sínu í Vignongötu
28 bak við Madeleinekirkjuna. Klíkan Gull-
insniðið var stofnuð í vinnustofu Jacques
Villons. Hún hélt fyrstu sýninguna í
októbermánuði með þessum þátttakend-
um: Juan Gris, Gleizes, Metzinger, Léger,
Delaunay, Marcel Duchamp, Picabia,
Lhote, Jacques Villon, La Fresnaye, Mar-
coussis og nokkrum öðrum. Kúbisminn
hrósaði sigri og nokkrar myndir Picassos,
sem orðinn var frægur maður, seldust
fyrir 4000.00 franka.
Við skulum ekki gleyma því, að Fóvistarn-
ir voru enn í fersku minni, að Expressjón-
isminn var borinn í heiminn og að hinir
síðbúnu málarar meðal Impressjónistanna
voru ekki dauðir úr öllum æðum. í þessu
yfirliti er heldur ekki gert ráð fy'rir fjöl-
mörgum tilhneigingum, sem ómögulegt er
að setja á bás nokkursstaðar né hetjum
líðandi stundar“.
Þetta segir Seuphor. Ég hef kosið að vitna
til þessarar greinar í bók hans, af því að
hún snertir mjög breytingarnar, sem urðu
á list Mondrians á næstu árum. Þegar hér
var komið sögu stóð málarinn á fertugu og
var þannig töluvert eldri en höfundar Kúb-
ismans til að mynda. Hann hafði að vísu
málað nokkrar sérkennilegar myndir og
búið til kröftugar teikningar, sem fóru
allhastarlega í taugarnar á borgaralega
sinnuðum listgrúskurum í Hollandi. En
hingað til hafði hann gert fátt eitt, sem
varðaði framvindu listarinnar. Sá kaflinn,
sem nú verður vikið að, var hinsvegar
ákaflega umbrotamikill og frjór og markar
tvímælalaus tímamót. Hann hófst með
kynnum Mondrians af Kúbismanum.
Hvers vegna valdi Mondrian Kúbismann
þegar hann leit yfir athafnasviðið, sem
16 Birtingur
Sveitarbær í nánd við Duivendrecht
(fyrir 1908)
t