Birtingur - 01.04.1960, Page 20

Birtingur - 01.04.1960, Page 20
er að staldra við þennan atburð, af því að hann virðist skipta töluverðu máli. Mon- drian kom til Laren til þess að mála. Hann tók herbergi á leigu í þorpinu ásamt félaga sínum og vini, tónskáldinu Jackob van Domselaer. Auk þess hafði hann litla vinnustofu til afnota um það bil miðja vegu milli Lai’en og Blaricum. Svo er að sjá sem þeir van der Leck hafi fundist oft um þessar mundir. Bart van der Leck gef- ur í skyn, að Mondrian hafi oft komið heim til hans að kvöldlagi til að spjalla um Vinnustofa málarans í París (1926) málverkið og vandamál þess. Hann hefur einnig látið að því liggja í samtali, að hann sé upphafsmaður Nýplastíkurinnar. Loks segist hann hafa haft þau áhrif á Doesburg og Mondrian, að þeir fóru að mála geómetríska fleti með hreinum lit- um. Síðastnefnda atriðið hefur Mondrian staðfest fyllilega. Hann segir í greinar- korni, sem hann skrifaði 1981, að hann hafi orðið fyrir áhrifum af hinni kláru tækni van der Lecks. Um þetta verður sem sé ekki deilt. Hins vegar hljóta menn að skilja Michel Seuphor þegar hann á erfitt með að koma auga á van der Leck meðal höfuðsmanna stefnunnar. Ástæðan er þessi: Bart van der Leck málaði ekki nema stutta stund hinar geómetrísku eða hálfgeómetrísku myndir sínar. Um 1918 hvarf hann frá þeim að fullu og öllu að því er ég best veit. Við tók hinn gamli heimur frásagnargleði og þægilegra at- vika. Og þótt hann hafi rekið olnbogann í nýtt tjáningarform af hendingu, var það ekki annað en saklaust ævintýri, ef miðað er við þá djúpu alvöru og takmarkalausu ástríðu, sem Piet Mondrian lagði alla tíð í verk sitt. Seuphor nefnir líka aðra ástæðu. Myndir van der Lecks voru kaldar og grunnar á þessum tíma, segir hann, það var í þeim eitthvað af hörku og sam- viskuleysi. Þess vegna er mjög erfitt að ímynda sér, að þær hafi sett varanleg spor í list Mondrians, sem er hlý og innhverf í eðli sínu. Forustuhlutverk Théos van Doesburgs dregur enginn í efa. Mér er ekki kunnugt um, að nokkur maður hafi reynt að gera lítið úr framlagi hans til Nýplastíkurinn- ar, De Stijl og annarra málefna, sem til bóta horfðu í listmálum á þessum árum. Bart van der Leck finnst hann að vísu hvorki frumlegur né áreiðanlegur: „Það var dag nokkurn, að Mondrian leit inn til mín. Doesburg var þá í fylgd með honum. Við höfðum ekki sést fyrr. Þegar Does- burg leit á abstraktmálverk, sem stóð á trönunum hjá mér þennan dag, hrópaði hann upp yfir sig: Ef list framtíðarinnar á að líkjast þessum ósköpum, þá er víst best að ég hengi mig strax. Nú jæja, nokkrum mánuðum seinna var hann farinn að mála nákvæmlega eins. Svona var Does- burg. Hann varð að sækja allar sínar hugmyndir til annarra“. Við skulum ekki leggja alltof mikinn trúnað á þessi um- mæli. Að minnsta kosti hefur undirritað- ur komist að þeirri niðurstöðu þegar hann hefur verið að velta persónunni fyrir sér, að Doesburg hafi verið eldheitur trúmaður og áhrifamikill prédikari. Margt það, sem hann spáði, hefur komið fram staf fyrir staf. Málefnin, er hann barðist fyrir, gáfu 18 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.