Birtingur - 01.04.1960, Síða 22

Birtingur - 01.04.1960, Síða 22
ekki aðeins samtíð hans lit og hljóm. Þau eru líka partur jarðskorpunnar, sem við byggjum tilveru okkar á nú þegar tuttug- asta öldin er rúmlega hálfnuð. Auðvitað er fjarri lagi að kenna slíka menn við ófrumleik. Hitt er sönnu nær, að Doesburg hafi verið einkar lifandi í hreinsunarstarfi sínu. Hann málaði ekki aðeins myndir sínar, sem þó myndu nægja til að halda nafni hans á loft. Hann starfaði einnig með arkitektum, vann að höggmyndalist, orti kvæði, skrifaði sög- ur, ritaði fjölmargar greinar í blöð og tímarit um listir og bókmenntir og hélt fyrirlestra bæði í Hollandi og ann- arsstaðar. Árið 1921 mun hann hafa dvalist um hríð við Bauhausskólann í Weimar. Théo van Doesburg var vel fall- inn til allra þessara hluta. Hann var ágæt- lega heima í listmálum Evrópu; skilningur hans var skarpari, sjónhringur hans víðari en gengur og gerist um listamenn fyrr og nú. I hita baráttunnar gætti hann þó ekki alltaf hófs. Sagt er, að hann hafi átt það til að ráðast með svæsnum ásökunum jafn- vel að vinum sínum og bandamönnum, ef honum mislíkaði eitthvað í orðum þeirra eða athöfnum. Þannig varð jafn Ijúfur maður og Kandinsky svarinn fjandmaður hans. Og skömmu áður en hann dó sendi Mondrian honum uppsagnarbréf frá París. En víkjum að samstarfi þeirra, sem bar svo ríkulegan ávöxt. Það mun hafa verið í októbermánuði 1915, að Théo van Doesburg ritaði skilningsríka grein um Mondrian og list hans í De Een- heid, lítið hollenskt blað. Þetta atvik varð til þess að listamennirnir hittust og bund- ust vináttu. Doesburg átti frumkvæðið að flestum meiriháttar framkvæmdum þeirra félaganna á næstu árum, þótt hann væri ellefu árum yngri og óreyndari sem mál- ari. Þegar hann sagði Mondrian frá því í fyrsta sinn, að hann langaði til að stofna tímarit um plastískar listir, tók hinn síð- arnefndi hugmyndinni fálega. Mondrian leit nefnilega svo á, að skynsamlegra væri fyrir Doesburg að einbeita sér að því að skrifa um áhugamál þeirra í listdálkum dagblaðanna. Hann taldi, að það ætti að fræða hinn almenna borgara smámsaman um nýju sjónarmiðin. Bjartsýni og ákafi Doesburg fór þó með sigur af hólmi. Þeir mynduðu De Stijlhópinn og fengu til liðs við sig ungverska málarann Vilmos Hus- zar, belgíska málarann og myndhöggvar- ann Vantongerloo, skáldið Kok og arki- tektana: Oud, Van’t Hoff og Wils. Réttum tveim árum eftir að greinin góða birtist í De Eenheid kom út fyrsta tölublaðið af tímaritinu De Stijl. Théo van Doesburg hafði ritstjórn þess á hendi og skrifaði leiðarann: „Tilgangur þessa litla tímarits er að styðja að þróun nýrrar vitundar í fagurfræðilegum efnum. Það mun leitast við að opna hugi nútímafólks fyrir nýjum leiðum í myndlist og arkitektúr. I þeim tilgangi að vinna á móti andlegu vellunni, sem nú ræður ríkjum og hefur gengið sér til húðar — Barokkstefnu nútímans — mun það skýra frá nokkrum meginregl- um stílhreyfingar, sem er í deiglunni og byggist á algjöru jafngildi tíðarandans annarsvegar en tjáningarmeðala listarinn- ar hinsvegar. Það mun leiða saman þær greinar nútímahugsunar, sem einkum varða listir, greinar, er hafa þróast út af fyrir sig, þótt þær séu hver annarri líkar. Útgefendur tímaritsins munu reyna að ná settu marki með því að gefa sönnum nú- tímalistamönnum kost á að kveða sér hljóðs, listamönnum, sem bæta fegurðar- skyn vort og stuðla að uppvexti plastískr- ar vitundar vorrar. Það er verkefni sér- fræðinganna að vekja upp fegurðarskyn hjá þeim leikmönnum, sem hafa dregist aftur úr listinni. Hinn sanni listamaður, sem veit hvert hann stefnir, hefur tví- þætta köllun að rækja. I fyrsta lagi verð- ur hann að skapa listaverk, sem eru tær frá plastísku sjónarmiði; í öðru lagi ber 20 Birtingur

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.