Birtingur - 01.04.1960, Qupperneq 32

Birtingur - 01.04.1960, Qupperneq 32
ekki annað í hug en Krústjoff sé hálf- gildings stigamaður og Eisenhower meii'i- háttar dýrlingur. Svona er íslenzk hugsun múlbundin og viðjum reyrð. Samt ei-um við einmitt ein þessai’a smáþjóða, sem eiga að taka upp sjálfstæða utanríkis- stefnu. Við erum ein þeirra þjóða, sem ber að hundskast úr hernaðarbandalagi við atómveldi og senda hermenn þess brott af landi sínu. Við erum þjóð, sem á að setja stórveldi harða kosti fyrir fylgi okk- ar og sýna því að ekki tjói að hafa fjör- egg heimsfriðarins að leiksoppi. Það er sjálfsagt til ofmikils mælzt, að við eigum frumkvæði að nýrri pólitík smáþjóða — af því við hugsum alltaf eins og hreppsnefnd- armenn bakvið slagorðin; en við geturn þó sjálfir hafið nýja og mannsæmandi og friðvænlega utanríkispólitík upp á eigin spýtur. Leið okkar til að draga úr þeim stórveldisofsa, sem enn kynni að leiða til styrjaldar, er sú að vera dýr á atkvæði okkar og liðsemd. I hvert skipti sem offors vestrænna stórríkja varpar skugga um heimsbyggðina, berast okkur í hendur nýjar röksemdir fyrir úrsögn úr Atlants- hafsbandalaginu og afnámi herstöðvanna. Það er hægt að knýja stórveldi eins og Bandaríkin til friðsamlegrar breytni á al- þjóðavettvangi, ef nógu margar þjóðir ’ýsa í verki vanþóknun á allri annarri hegðun. Leiðtogafundurinn í París rann út í sandinn, en friðurinn í heiminum þarf ekki að fara út um þúfur — aðeins ef mörgu smáu þjóðirnar, sem eru meiri- hluti mannkyns, reyna að standa á eigin fótum í pólitískum skilningi og virða sinn eigin hag og sóma ofar þrælahlýðni við atómveldin. Bandaríkin og Sovétríkin eru framverðir þeirra tveggja hagkerfa, sem skipta mönn- um í höfuðflokka nú á dögum. Þess verð- ur ekki krafizt, að menn gerist andlega hlutlausir gagnvart þeim eða leggi utan- ríkispólitík þeirra að jöfnu. Ég, sem þetta rita, játast hugsjón hinna sósíalísku þjóð- félagshátta; og mér geðjast sýnu verr að bandarískri utanríkispólitík en sovézkri. Þeim, sem hallast að kapítalískum þjóð- félagsháttum, er öfugt farið. En það er aflægisháttur, ef ekki illkynjuð trúar- brögð, að auðvaldssinni leggi ævinlega fulla blessun yfir bandaríska utanríkis- pólitík eða sósíalisti yfir sovézka. Þessi tvö miklu heimsríki setja sinn eigin metn- að margsinnis ofar heimsfriðnum; undir niðri hefur hvort þeirra um sig löngum í huga einhverskonar sigur síns eigin hag- kerfis yfir hagkerfi hins. Af þessum sök- um meðal annarra hafa þau í fimmtán ár reynzt þess ómegnug að skapa tryggan frið á jörðinni. Sá vandi bíður nú smá- ríkjanna, og þeirra þjóða sem þegar eru hlutlausar, að leitast við að gera friðar- baráttuna ópólitíska, reyna að skilja milli heimsfriðarins og hagkerfastreitunnar. Þeir sem æskja friðar, en dingla aftan í atómveldunum, hlekkjaðir á höndum og hjarta — þeir eru ekki raunsæir friðar- sinnar, ef þeim er þá ekki undir niðri annara um hagkerfið en friðinn. Þessi ríki þurfa einmitt að fá sterkt aðhald af mjög ströngu almenningsáliti um víða veröld. Þau mega ekki lengur ganga eins lausbeizluð og þeim hefur leyfzt um sinn, með húrrandi loftungur í knippum við hvert fótmál. Það væri mikið og torvelt verkefni að hnita saman nýja friðarblökk „hlutlausra" ríkja um allar jarðir, og stofna að baki þeim heimssamtök ábyrgra friðarsinna — með allsherjar-afvopnun sem fyrstu kröfu. En væri einhver önnur leið raunhlítari eins og sakir standa? Eða megnum við ekki neitt — nema fórna höndum í ótta? 19. og 20. maí. 30 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.