Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 37

Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 37
Viðreisn Thor Vilhjálmsson Þjóðinni hefur lánast að hefja fágaða stjórnvitringa uppfyrir sig sjálfa til að ráðstafa aurunum sem eitt sinn höfðu þá óheppilegu stefnu að ætla sér ofan í vasa þegnanna en hefur nú með kænsku og snilli sérfræðinga í aurum verið beint þaðan undir hinu glæsta merki viðreisn- arinnar sem er háleit og dularfull eins og fornaldarinnar sálútvíkkandi launhelgar þar sem ekki er nema á vitorði æðstu prestanna hvað verið er að reisa við. Þeir einir þykjast sjá eitthvað rísa líkt og með ófresku skyni afrískra töfradoktora með náttúrubörnum myrkviðarins. Og þegar sauðsvartur almúgi sér aðeins hrynja og falla kringum sig þá segja þessir doktorar í abrakadabra: nú liggur vel á mér. Frels- ið, segja þeir við þá sem eru fastir undir rústum draumsins um að rísa undir hús- byggingu sem þeir hafa haft fyrir tóm- stundayndi að þræla í að byggja. Frelsið er hið glæsta hnossið, segja þeir við þá sem með einu pennastriki er gert að borga nær tvöfalt hærri vexti af lánum sem margur heiðarlegur maður var áður að kikna undir, geta hvorki selt né haldið áfram, fólk sem dreymir um að búa í húsi og slítur sér út á fáum árum við það samkvæmt sinni eigin frelsisþrá. Sitja bara fastir eins og fluga á límbornum pappír. Kyndilberar Ætli rithöfundar og þjóðskáld í meistara- flokki og landsliði sem úthlutunarnefnd listastyrkja velur eftir smekk sínum eða aðstandenda sinna, ætli það hljóti ekki allt að vera mjög fínir menn. Slíkir menn sem eru upphafnir til fordæmis fyrir okkur hina yngri sem lægra erum settir í laun- um fyrir viðleitnina og stöndum fjær hylli hinna afskekktu ráðamanna þjóðfélagsins, Pas de deux við Bolafljót Birtingur 35

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.