Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 40

Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 40
rúmast aðeins nokkur sýnishorn. Bók Cowleys er til í bandaríska bókasafninu að Laugavegi 13 í Reykjavík. Ofurstuttur inngangur er frá Guðmundi sjálfum framan við kaflann eftir Cowley þar sem hann nefnir fjóra eldri höfunda: Sinclair Louis sem hann virðist hafa rugl- að saman við hnefaleikameistarann Joe Louis því rithöfundurinn hét Lewis, — Hemingway, Wiliiam Faulkner, Caldwell. Síðan segir Guðmundur: ,,Ég hef um nokkur undanfarin ár og helzt síðan ég var á ferð vestra í fyrrasumar, reynt að kynna mér dálítið nýjustu stefn- ur í skáldsagnagerð Bandaríkjamanna og hef í því skyni lesið nokkuð margar bæk- ur ungra höfunda og eins yfirlitsverk bók- menntafræðinga, þar á meðal „The Lite- rary Situation“ og „Exiles return“ eftir Malcolm Cowley og „After the lost ge- neration“ eftir Aldridge.“ Því miður bendir ekkert í grein Guðmund- ar til að hann hafi lesið nokkra heila bandaríska bók nema Light in August eftir Faulkner einsog kann að koma fram í skáldsögum Guðmundar. Mér sýnist jafn- vel ekki öruggt að hann hafi lesið þessa bók Cowleys alla. Hin bókin eftir Cowley: Exiles return er nefnd á hlífðarkápu bók- arinnar The Literary Situation í áber- andi auglýsingum. En frá bók Aldridge sem hann þykist hafa lesið segir á bls. 66—69 í The Literary Situation. Síðan tekur hann til við að þýða og kem- ur að hinni svonefndu ,,new“ fiction og hefur þessu sinni gæsalappirnar á sama stað og Cowley. Svo segir Guðmundur: „Það sem fyrst og fremst einkennir skáld- sögur af þeim flokki er það, að þær túlka enga mikla sameiginlega reynzlu þessarar skáldakynslóðar, eins og eftirstríðsskáld fyrri heimsstyrjaldarinnar gerðu. Höf- undar nýju listarinnar virðast heldur ekki hafa það markmið að ná til alls fjöldans, enda þótt sumir þeirra hafi að vísu, eins og fyrir tilviljun, hreppt það hlutskifti að komast á metsölulistann og verða þekkt nöfn meðal milljónanna, sem fylgj- ast með bókaþáttum sunnudagsblaða. Þeirra á meðal eru t. d. Frederick Beuch- ner, Robie Macauley, Jean Stafford, Tru- man Capote, Paul Bowles og Jack Kerouac. Þessir eru allir ungir en svo eru fáeinir eldri höfundar sem skrifa í svipuðum dúr en eru frumlegri, og munu sumar bækur þeirra hafa orðið fjölda yngri höfunda að fyrirmynd, þó að beztu verk þeirra verði varla stæld með æskilegum árangri, í þessum hópi eru t. d. konurnar Caroline Gordon og Eudora Welty.“ Svona er þessi málsgrein hjá Cowley: „They are not pictures of a great common experience and they are not intended for a wide audience-though some of them have found the audience as if by stum- bling into it. Some of the authors are known by name to everyone who follows the book-review sections of Sundey news- papers: they are men and women like Frederich Buechner, Robie Macauley, Jean Stafford, Truman Capote, Paul Bowles. There are a few talented older novelists — for example, Eudora Welty and Caroline Gordon — who write in somewhat the same manner, and I suspect that their books have served as models for many younger members of the group, although their best qualities are hard to copy.“ Síðan segir Guðmundur: „Sum þessara ungu skálda hafa gefið út margar bækur án þess að hafa vakið nokkra almenna eftirtekt, svo er vitað um önnur sem ekki hafa fengið neinn útgef- anda ennþá. Hvað um það: þau eru öll talin eða telja sig sjálf „alvarlega“ unga rithöfunda og hafa sett sér það markmið að framleiða skáldverk á borð við það 38 Birtingur

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.