Austurland


Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 3

Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 3
JÓLIN 1984. 3 ----------Austurland-------------------- MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson. Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) @7756. Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir - Pósthólf 31 - 740 Neskaupstað - @7756. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað @7756. Prentun: Nesprent. ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI Knútur Þorsteinsson: Grýla Áður fyrr með belg á baki, á bæi ferðir Grýla tók, búfé rændi og börnum leiðum, byggðalýðsins skelfing jók. Vakkaði við gátt og glugga grimm á svip um húmdimm kvöld. Fólskuþyrst og flá í ráðum, fældist ljóssins dýrðarvöld. Löngu dauð er gamla Grýla, en ganga nýjar heims um slóð hálfu verri hinni fyrri, heimta fleiri líf og blóð. Máttarvöldum byrginn bjóða, böls og nauða tendra stríð. Aldrei geigur uggvænlegri ögraði hrjáðum jarðarlýð. Hinar nýju gervigrýlur ganga ekki um með belgina. Ægiflaugar elds og dauða út þær senda í geimana. Loftin eiturlævi blanda, loka friðarskjólunum. Væri hollt þær vísdómsgrýlur vesluðust upp á rólunum. ✓ I lok aðventu Þessa daga er skammdegið hvað svartast hér á norður- slóðum. Á stysta degi ársins munu fyrstu lesendur þessa jólablaðs AUSTURLANDS einmitt sjá þessar línur. Skammdegið var fyrri tíma íslendingum oft þungt í skauti og þrúgandi myrkrið hafði í för með sér ýmsa erfið- leika í lífsbaráttunni og lamandi áhrif á menn og málleys- ingja. Þá voru vetrarsólstöðurnar merk tímamót í ár- hringnum og gáfu tilefni til að fagna hækkandi sól og vax- andi birtu. Hátíð var því haldin um þetta leyti og tjaldað því sem til var í mat og drykk til að gera sér dagamun. Nú er öldin önnur hvað allar ytri aðstæður og aðbúnað snertir, en enn er haldin hátíð, þegar sól tekur að hækka á lofti á ný. Aðventu er nú að ljúka, en hún var og er enn undirbún- ingstími jólanna, mestu hátíðar ársins. Sá undirbúningur er ólíkur því sem áður var og það er jólahaldið einnig. Nú er jólafastan mesta kauptíð ársins og jólin eru haldin með miklum ytri glæsibrag og miklu til kostað í viðurgerningi og jólagjöfum. Má vera, að ýmsum gleymist tilefni hátíð- arinnar í amstri hins upplýsta skammdgeis nútímans. En hvað sem segja má um viðskiptalegu hlið aðventunn- ar, eru jólin öllum kærkomin og ekki síst börnunum, en jólin eru umfram allt hátíð barnanna. Allir vilja búa börn- um sínum sem gleðilegust jól og bjartar minningar bernsku- jóla ylja mörgum manni langa ævi. Og það barn sem fékk kerti og spil í jólagjöf á aðfangadagskvöld eftir langa til- hlökkun og við veruleg hátíðabrigði á heimilinu öllu, var ekki síður ánægt og sátt við sinn hlut en það barn sem nú fær í allsnægtum dýrar gjafir við minni tilbreytni í heimil- ishaldi og ölum háttum en áður tíðkaðist. En þjóðfélagið er breytt, aðbúnaður allur er breyttur, lífskjörin eru breytt. Og allar eru þessar breytingar mjög til hins betra, þegar á heildina er litið, sem betur fer. Mestu skiptir vissulega, að hver og einn sé að vissu marki í sátt við sjálfan sig og aðra menn, hafi samkennd með öðrum og búi við innri ró og frið. Ef jólin stuðla að þessu, skiptir minna máli, hvernig hinar ytri aðstæður við hátíða- hald eru áhverjum tíma. Ekki mun það umdeilt, að lífskjör almennings á íslandi hafa farið mjög versnandi á síðustu misserum og ekki eru líkur á öðru en þau versni enn að mun á næsta ári. Verð- hækkanir hafa dunið yfir á þessari jólaföstu og aðrar eru í vændum. Alþýðuheimilin á íslandi munu því ekki þola dýrt jólahald. Börnin á alþýðurheimilinunum munu ekki fá dýrar jólagjafir. Misskiptingin í þjóðfélagi okkar kemur hvarvetna fram, í þeim efnum er jólahaldið ekki undanskil- ið.Jól ríkra og snauðra verða ólík að yfirbragði, en vonandi ekki eins ólík að inntaki. En þrátt fyrir alla veraldlega misskiptingu auka jólin samkennd manna í svip, en væru þau megnug að viðhalda henni, væru þau sannarlega hátíð hátíðanna. Þá væri von um jöfnuð, þá væri von um frið. AUSTURLAND sendir lesendum sínum og lands- mönnum öllum óskir um gleðileg jól. B. S. Björn G. Eiríksson: Jól 1984 Ég sé í fjarlægð skína skært, með skírum geislaljóma, stjörnu, er oss var forðum fært á fold þar barn, í stalli fætt við englaradda óma. Á hagann bjarta birtu bar, er vöktu á nóttu hirðar þar. Frelsarinn oss þá fæddur var og fyrir mig nú jólaljósin skína. Til dýrðar Drottni um víða gætt dýrðar söngvar hljóma. Enn vér minnast megum þess, í myrkri, er ljósin björt fá sess á jólanóttu ljóma. Er að jötu lutu lágt lausnarans um miðja nátt smalarnir, á óttu er heyrðu hljóma, hina þýðu, helgu englaróma. Á helgri nátt, samt muna mátt, að margur enn í heim á bágt. Til dýrðar drottni um himin hátt helgir söngvar óma. Björn G. Eiríksson: Jól um vetur Vetrarstormar víða um grundir lenda, vetrarsnjó og kuldabönd þeir senda. Nálgast óðum helgust hátíð bjarta, hin hvítu jólaljós í gleði skarta. Norðan, þegar næðir vindasvali, og nepjan köld á leik um borg og dali, þá gott er sig í húsi heim að geyma, við heitan ofn í vonarlönd að dreyma. Þegar vetrar köldum kvíði hríðum, og kaldur snjórinn skartar fönnum fríðum, þá gjarna skulum geyma í okkar hjörtum, gleði yfir jólaljósum björtum. Ei gott er oft við lífsins stríð að lynda, lífið vill stundum þunga bagga binda. Enn munu jólin sína gleði senda, svo allt er bjart og myrkrakvöl fær enda. Stjörnur skært á himni heiðum lýsa, á helgri nótt þær veginn okkur vísa. Minning heit um mannkynssoninn bjarta, myrkurskugga víkur burtu úr hjarta. Þá eru sungnar í heimi helgar tíðir, svo heyra megi heims um grundu lýðir, þann fagnaðar og friðarboðskap bjarta, að frelsi er búið hverju mannsins hjarta. ÁRNAÐ HEILLA Er veröld sínum vetrarsvala skugga, varpa vill á næturdimman glugga, þá birtist ljósið, bjart og að sér laðar. Við barnsins jötu, hlójðir nemum staðar. Við nemum óm af aldagömlum orðum, er fjárhirðar í haga námu forðum. Sá boðskapur var fögnuð friðar gæddur. „Sjá“, frelsari í dag er yður fæddur. Því komið nú er klukkur ykkur gjalla, það kall á við um heimsbyggðina alla. Á bjartri nótt að hlýða helgum orðum, er hirðamir, sem vöktu, gerðu forðum. Lútum svo í auðmýkt alveg niður að barnsins jötu, er ríkir helgur friður. Sjá, frelsarans lampi lýsir vítt um heima, við ljós hans skulum bjart í hjarta geyma. En skjótlega hækkar aftur ylhlý sólin og unaðsgeislum vermir norðurpólinn. Þá vaknar úr dvala, allt sem áður kól, ég ykkur sendi ósk um farsæl jól. Hjónin Serina Stefánsdóttir og Sigurður Lúðvíksson Ljósm. Anna Karen Sigurðardóttír. Afmæli Sigurður Lúðvíksson, lag- ermaður, Nesgötu 20, Neskaup- stað, er 80 ára í dag, 21. des. Hann er fæddur í Neskaupstað og hefir alltaf átt hér heima. Serina Stefánsdóttir, húsmóð- ir, Nesgötu 20, Neskaupstað verður 70 ára á aðfangadag, 24. des. Hún er fædd í Neskaupstað og hefir alltaf átt hér heima.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.