Austurland


Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 18

Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 18
18 JÓLIN 1984. var vöknuð, er hann kom inn í svefnherbergið og var að fletta „Vikunni“. Bóndinn bauð góðan dag og konan tók notalega undir. Já, búin að jafna sig eftir snerr- una í gærkvöldi, hugsaði Maríus Katarínusson og dró andann léttar. Hún gat verið fljót til og <æst sig upp út af málum, sem hún var ekki beint vel heima í. Pau voru ekki auðveld viðfangs þessi verkalýðsmál, allra síst nú á dögum og ekki hægt að ætlast til, að hver og einn kryfi þau til mergj- ar umhugsunarlaust. En þó að konan virtist í góðu skapi, vildi Maríus Katarínusson fara að öllu með gát. Hann gekk að glugganum, dró frá ytri gardín- urnar og sagði: - Það er blíðan. Konan fletti blaðinu, rýndi í það af áhuga, en svaraði þó eins og ann- ars hugar: - Jæja. Líklega veiða þeir þá síldina. Kannski fylla þeir þræm- ar hjá sér héma fyrir austan. Maríus Katarínusson kipptist við eins og rekinn hefði verið í hann glóandi teinn. Andskotans síldarvella var þetta. Það virtist ekkert annað komast að hjá konunni. Líklega var hún enn við sama heygarðs- hornið, þrátt fyrir lygnt yfirborð. Annars væri það svo sem eftir þeim, amlóðunum fyrir austan, að fylla allt hjá sér. Ekki þorðu þeir í verkfall. Annars ætlaði Maríus Katarínusson ekki að láta hleypa sér upp, hann ætlaði að láta sem hann hefði ekki heyrt þessi um- mæli konunnar. Hann snéri því frá glugganum og sagði: - Ég er að hugsa um að dytta að girðingunni í dag. Það hefur trassast. - En hvað það er gott, sagði konan. Svo leit hún upp úr blaðinu með uppgerðarundmnarsvip og hélt áfram: - En mátt þú nokkuð vinna? - Skárri er það nú spurningin. Auðvitað má ég vinna hjá sjálfum mér, svaraði verkalýðsformaður- inn og var sármóðgaður. - Jæja, góði. Ég skil víst ekki þessi verkalýðsmál, þau eru á svo háu plani, sagði konan. Hún var ljúfmennskan uppmáluð. En svo benti hún í blaðið og sagði: - Sjáðu, - Finnst þér þessi þvottavél ekki flott? Gaman væri að geta keypt svona vél, sú gamla orðin algert skrapatól. En því verður víst ekki að heilsa, ef. . . Hér steinþagnaði konan og beit á vör. En þessi þögn sagði meira en mörg orð. Maríus Katarínusson ætl- aði að svara þessu flatneskjulega rósamáli á viðeigandi hátt, en áttaði sig í tíma, taldi upp að tíu í huganum og náði við það andlegu jafrivægj. - Á ég að hita upp ofninn eða setj a upp vatn? Það er víst að nálg- ast hádegi, sagði hann varlega. Hann var orðinn sársvangur. Konan svaraði ekki, en rýndi á ný ofan í blaðið stútfull af áhuga. Loks leit hún upp og sagði: - Vatn, varst þú eitthvað að tala um vatn, góði minn? Maríus Katarínusson endurtók fyrri ummæli. - Ef þú ætlar að elda eitthvað, þá geturðu gert það. En fyrir mig er það óþarfi, því að ég er komin í verkfall, svaraði konan. Maríus Katarínusson glápti fremur ógáfulega á konu sína. Hafði honum misheyrst eða hvað? Hann stamaði: Ve-verkfall, sagð- irðu verkfall? Konan leit snöggt upp og svar- aði festulega: - Já, ég sagði það, VERKFALL, hún stafaði orðið. - Ertu viss um, að þú sért ekki eitthvað lasin? spurði verkalýðs- formaðurinn með vaxandi undrun. Formaður kvenfélagsins hló. Já, mér er alvara. Geturðu ekki hafa forkjulast í gærkveldi? Ertu ekkert slæm yfir höfðinu? - Hvaða flónskuhjal er þetta? Finnst þér ég eitthvað lasleg? - Ne-ei, að vísu ekki, en, en é-ég skil ekki almennilega við hvað þú átt. Maríus Katarínusson var alveg dolfallinn svo ekki sé meira sagt. - Ekki það. Ég hélt, að þú ættir manna best að vita, hvað verkfall er, sjálfur verkalýðsforkólfurinn, svaraði konan, hallaði sér á koddann, lagfærði brjóstahöldin og brosti blítt til bónda síns. - Það má vel vera, að ég viti það, en . . . en, nú gerði Maríus Katarínusson sér upp hlátur. - Á þetta að vera eitthert sprell? Konan settist upp og brosið hvarf af andlitinu. - Sprell, nei öðru nær. Ef þú stendur í þeirri meiningu, þá skal ég koma þér í skilning um hvað ég meina: - Frá og með deginum í dag elda ég hvorki né þvæ, né ræki aðrar húsmóðurskyldur á þessu heimili, fyrr en þið hafið aflétt ykl^ar heimskulega verkfalli, byrj- ið að vinna eins og ærlegir menn og hana nú! Eftir þessa kjarngóðu yfirlýs- ingu, varð þögnin alger nokkur andartök. Þá tók Maríus Katarín- usson til máls og reyndi að brosa: - Tja, hérna. Er þér alvara? - Er ég vön að fara með fleipur? svaraði konan snöggt. Þá vissi Maríus Katarínusson, að henni var fúlasta alvara. Hann vissi ekki,hvort hann átti að hlæja eða gráta. Hann gerði því hvorugt, heldur sagði: - Heldurðu að ég láti þig komast eitthvað með þetta verkfall okkar með einhverjum hótunum? Nei, og aftur nei. Ég fer bara og kaupi fæði hjá honum Nonna Pé. Þar með rauk Maríus Katarín- usson á dyr. Rétt áður en hann þeyttist fram í forstofuna, heyrði hann konuna kalla: - Verði þér að góðu! Hann skellti aftur forstofu- hurðinni, svo að húsið nötraði. Svo geystist hann niður götuna og jakkalöfin stóðu sem stél aftur af honum. Þegar hann kom inn til Jóns Pé, var hann að hita sér kaffi. - Hér er nú fremur dauf að- koma, vældi Jón Pé. Hann var rit- ari verkalýðsfélagins, langur og krangalegur með afar stórt barka- kýli, sem gekk í bylgjum, þegar eigandinn talaði. - Nú, er kerlingin dauð . . . ég meina er konan lasin? gusaðist út úr Maríusi Katarínussyni. - Miklu verra en það. Konan nefnilega neitar að gera nokkurt hætishót, fyrr en verkfallinu verð- ur aflýst. Barkakýli Jóns Pé fór ham- förum. Nú, svona lá þá í því. Það hafði þá verið þetta, sem þær höfðu ver- ið að brugga fram á nótt, heiðurs- kvinnurnar hugsaði Maríus Kata- rínusson. Hann sagði nú Jóni Pé það sem á dagana hafði drifið. -Áttuvið,aðþínkerl . . . kona sé komin í verkfall? vældi Jón Pé, þá Maríus Katarínusson hafði lok- ið máli sínu. - Já, einmitt, mín kerling. Það er mergurinn málsins, skilurðu það, svaraði Maríus Katarínusson heldur ónotalega. Satt best að segja var Jón Pé stundum frá- munalega seinn að fatta hlutina, enda heldur þunnar í roðinu fund- argerðirnar hans, en það varð að tjalda því sem til var. Svo þögðu þeir drykklanga stund, verkalýðsleiðtogarnir og Jón Pé lauk við að hella upp á könnuna. - Hvað er nú til ráða? tautaði Maríus Katarínusson svona eins og frekar við sjálfan sig. Ég vissi, að þetta verkfall var mesta flan, sagði Jón Pé og hellti kaffi í bolla handa yfirboðara sínum. - Vertu ekki að þessu dauðans jarmi. Heldurðu að við séum ekki menn til mæta þessu. Það næða oft svalir vindar um menn í ábyrgðar- stöðum. Áttu mola? spurði verka- lýðsformaðurinn. Jón Pé ýtti sykurkarinu til Maríusar Katarínussonar og mælti heldur luntalega: - Mér kemur þetta ábyrgðarhjal lítið við. En hitt veit ég, að ég vil minn mat. - Þarna er þér rétt lýst, Nonni minn. Þú ert eiginhagsmunaseggur og grútarsál og furðulegt, að þú skulir hafa gengið í nokkurt stétt- arfélag. Þú hefur þrælslund. Þú vilt sem sagt guggna á verkfallinu? Jón Pé kinkaði kolli. - Það var líka mokveiði í nótt, bætti hann við. - Mér er andskotans sama um alla veiði, mér er annara um ær- una. Nú þurrkar þú þennan keitu- svip af andlitinu og svo förum við niður á matsölu og fáum okkur ær- lega máltíð. Á eftir muntu líta ver- öldina bjartari augum. - Ég hef nú aldrei getað verið iðjulaus og jafnframt bjartsýnn, sagði Jón Pé, en fór að leita að jakkanum sínum. Rétt á eftir héldu þeir félagar í átt til matsöl- unnar úti á tanganum. En þar var allt lokað og Iæst. Á hvítt pappaspjald er fest var innan á gluggann í útidyrahurðinni var letrað með rauðri krít: Hér verður ekki opnað, fyrr en samningar takast milli atvinnurekenda og verkalýðsfélagsins og verkfallinu aflýst. Nú fór að kárna gamanið. Það var greinilegt, að hér voru öflug samtök á ferðinni. - Þessi vitleysa jaðrar við upp- reisn, sagði Maríus Katarínusson og horfði á græna fólksbifreið renna upp að matsölunni. Hann þóttist kenna, að þar var Níel- jóníus framkvæmdastjóri á ferð. Framkvæmdastjórinn snaraðist út úr bifreið sinni, gekk til þeirra félaga og bauð góðan dag. Þeir tóku eilítið dræmt undir. Eins og allir vita, er andrúmsloft stundum rafmagnað, þegar tveir andstæðir pólar mætast. Framkvæmdastjór- inn las á skiltið og sagði svo bros- andi: - Þær eru harðar í horn að taka eða finnst ykkur ekki? - Þær eru bandvitlausar. Þetta er lögleysa, sagði Maríus Katarín- usson. - Nú, hefur kvenfólk ekki rétt á að fara í verkfall? spurði fram- kvæmdastjórinn og brosti enn og klóraði sér undir hattbarðinu. - Ja, jú, það má vel vera, en þær verða þá að boða það með löglegum fyrirvara, sagði verka- lýðsformaðurin. - Við verðum að vera umburðar- lyndir. Þetta er víst fyrsta verkfallið þeirra og von á einhverjum form- göllum. En þær verða fljótar að læra á þetta. Næsta verkfall boða þær örugglega með löglegum fyrirvara, sagði framkvæmdastjórinn. - Fjandinn fjarri mér. Ég er glorhungraður, sagði Jón Pé. - Sama segi ég. Það er víst best að koma sér heim og reyna að malla eitthvað í sig, sagði fram- kvæmdastjórinn. Verkalýðsoddvitamir litu með nokkurri furðu á framkvæmda- stjórann, og svo spurði Maríus Katarínusson með hæfilegri hlut- tekningu: - Er konan þín lasin? - Nei, ekki aldeilis. Skiljið þið ekki, hún er ritari kvenfélagsins, svaraði Níeljóníus. - Áttu við, að hún sé líka í þessu verkfalli? sagði Jón Pé og reyndi ekki að Ieyna furðu sinni. Níeljóníus framkvæmdastjóri hló hátt. - Já, það máttu bóka. Hún er stéttvís og stéttarfélög em ráðandi afl í nútíma þjóðfélagi. Að svo mæltu gekk hann að bifreið sinni og steig inn. En það var sem hann ætti eitthvað ógert, því að hann dró niður rúðuna og kallaði til þeirra félaga: - Þið eigið kannski samleið! Verkalýðsforingjamir litu hvor á annan, síðan á luktar dyr mat- sölunnar og loks til bílsins. Jú, þeir áttu víst samleið og þeir stigu inn í bifreiðina. Framkvæmdastjórinn ók af stað. Það var mjög notalegt að láta afleiðingar andstreymisins líða úr sér í dúnmjúkum sætunum og svo var framkvæmdastjórinn svo ári kumpánlegur, bauð vindla og ópal. Framan við frystihúsið var num- ið staðar. Framkvæmdastjórinn drap á bílnum og sneri sér að verkalýðsforingjunum, sem sátu í aftursætinu. - Það má nú segja, að dregið hafi til tíðinda hér í okkar ágæta plássi - bara tvö verkföll, sagði hann. Það hnussaði í Maríusi Katarín- ussyni. - Öllu má nú nafn gefa. Þetta er óhæfa, ég meina þessi frekja kven- fólksins. - Þama fer drekkhlaðinn síldar- bátur austur, sagði Jón Pé. Maríus Katarínusson hrökk við. Ætlaði hann nú að fara að þylja þessa síldarvellu líka. Hann gaf Jóni Pé þéttingsfast olnbogaskot. - Já, það var víst ágæt veiði í nótt, svaraði framkvæmdastjórinn. - Kitlar ykkur ekki í lófana? bætti hann svo við. - Þeir sem standa í réttlátri bar- áttu, láta ekki stundarhagnað brjála skynsemina, mælti verkalýðsfor- maðurinn festulega. - Rétt, vafalaust rétt, sagði fram- kvæmdastjórinn og kinkaði kolli. - En án alls gamans, þá getum við ekki neit- að því, að við erum líklega beint og óbeint oddamennimir í þessum verk- föllum. Og þar sem ansans ári lítið er að gera, þá ættum við kannski að spjaUa örlítið um þau. Jú, verkalýðsformanninum fannst það vel koma til mála og þá gengu þeir allir upp á skrifstofu frysti- hússins. Nokkm upp úr hádegi veitttu menn í plássinu því athygU, að eitt- hvað stóð til á skrifstofu frystihúss- ins. Menn komu þaðan út og hentust um plássið, komu til baka með fríðu föruneyti. Þóttust þeir, er mann- glöggir voru, kenna þar stjómar- og trúnaðarmenn verkalýðsfélagsins og jafnvel kaupfélagsstjórann. En hvað um það, eitthvað var á seyði. Upp úr miðaftanskaffinu mátti sjá, að búið var að festa upp auglýs- ingar á raflínustaura plássins. Þar mátti lesa, að samningar hefðu tekist milli atvinnurekenda og verkalýðs- félagsins og væri þar með verkfallinu lokið. Það vitnaðist raunar aldrei fyllilega, hvað fólst í þeim samning- um - en það er önnur saga. Hitt var staðreynd, að verkfallinu var lokið. Skæðar tungur höfðu líka á orði, að sumar auglýsingamar hefðu hallað ærið undarlega og töldu orsökina fyrir þeim halla, að slagsíða hefði verið á þeim, sem festu þær upp, en allir vita, hvemig slúðrið skmmskæl- ir sannleikann. Um kvöldið stóð svo kvenfélagið fyrir dansleik og veitingum í sam- komuhúsinu. Þar kom saman meiri- hluti þorpsbúa og var gleðskapur mikill. Maríus Katarínusson og frú vom þar mætt, en þau höfðu ekki fengið sér snúning þó ærið lengi. Og satt best að segja, þá lá einkar vel á Maríusi Katarínussyni, verkalýðs- formanni og hann var raunar örlítið upp með sér, því satt best að segja fannst honum, að þessi gleðskapur væri sér og konu sinni talsvert mikið að þakka. (Eftir uppkasti 1965, endurskoðað oghreinritaðdagana4. -26. okt. 1984).

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.