Austurland


Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 20

Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 20
20 JÓLIN 1984. Barnaefni Unnið af starfsfólki barnaheimilisins Sólvalla í Neskaúpstað Skreytum hús með greinum grœnum Skreytum hús með greinum grœnum Fa la la la la, fa la la la la Gleði ríkja skal í bœnum Fa la la la la, fa la la la la Tendrum senn á trénu bjarta Fa la la la la, fa la la la la Tendrum Ijós í hverju hjarta Fa la la la la, fa la la la la Ungir gamlir allir syngja Fa la la la la, fa la la la la Engar sorgir hugann þyngja Fa la la la la, fa la la la la Jólabjöllur blíðar kalla Fa la la la la, fa la la la la Boða frið um veröld alla Fa la la la la, fa la la la la Þjóðlag frá Wales Skín í rauðar skotthúfur Skín í rauðar skotthúfur skuggalangan daginn Jólasveinar sækja að sjást um allan bœinn Ljúf í geði leika sér lítil börn í desember Inn í frið og ró, út í frost og snjó því að brátt koma björtu jólin bráðum koma jólin Upp á lofti, inn í skáp eru jólapakkar Titra öll af tilhlökkun tindilfættir krakkar Komi jólakötturinn kemst hann ekki í bæinn inn Inn í frið og ró, inn úr frosti og snjó því að brátt koma björtu jólin bráðum koma jólin Stjörnur tindra stillt og rótt stafa geislum björtum Norðurljósin loga skær leika á himni svörtum Jólahátíð höldum vér hýr og glöð í desember Þó að feyki snjó, þá í frið og ró við höldum heilög jólin heilög blessuð jólin Franskl þjóðlag. Textahöf. Friðrik Guðni Þórleifsson. Jólagóðgæti Möndludeig V2 kg möndlur V2 kg flórsykur eggjahvíta eða vín (sherry, koníak eða romm) Möndlumar em settar í sjóð- andi vatn, og suðan látin koma upp. Vatninu hellt af og hýðið strokið af möndlunum með höndunum. Breitt úr möndlun- um á fat, bíði til næsta dags. Möndlumar saxaðar 1-2 sinnum, best er að saxa þær í möndlukvöm, í seinna skiptið er sykurinn saxaður með. Þá er eggjahvítan eða vín sett út í og deigið hnoðað. Nota má vatn, en þá geymist deigið ekki eins vel. Þegar móta á úr deiginu, má hnoða meiri flórsykri upp í það til drýginda (200 - 300 g) en þá verð- ur möndludeigið ekki eins gott. Geyma má deigið ómótað í málm- eða smjörpappír nokk- urn tíma. Eins má vefja deigum klút utan um það. Eigi að geyma deigið eða það, sem er mótað úr því, lengi, er rétt að setja möndlurnar og syk- urinn, eftir að búið er að saxa það, í pott og hita við hægan hita stutta stund og hræra við- stöðulaust í því á meðan, kæla það síðan og hnoða. Randamolar 300 g möndludeig kakó rauður, gulur eða grœnn ávaxtalitur Deiginu er skipt í þrjá hluta: 1. litaður með ávaxtalit, 2. litaður með kakói, 3. ólitaður. Öll deigin flött út í álíka stór- ar kökur, sem lagðar eru saman eins og terta, með eggjahvítu eða vatni á milli laga. Hvíta kak- an er höfð í miðjunni. Skorið sundur í litla tigla eða tekið und- an litlum mótum. Blandaðar kúlur 125 g rifið súkkulaði 125 g kakó 50 g möndlur 250 g flórsykur 125 g rúsínur saft Súkkulaði og annað er skorið smátt og hrært saman við flór- sykurinn. Vætt með góðri saft. Hnoðað í jafnar kúlur, snúið upp úr flórsykri. Jólakaramellur 4 dl sykur 2V2 msk. sýróp 4 dl rjómi 4 dl kakó 60 g smjör 75 g hnetur Allt annað en hneturnar er sett í þykkan pott og soðið við vægan hita, hrært viðstöðulaust í. Þegar það fer að þykkna er dropi af því settur í kalt vatn, og ef hann heldur iögun, er þetta hæfilega soðið. Þá er brytjuðum hnetunum bætt út í. Hellt í smurt mót. Skorið í bita þegar það er hálfkait.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.