Austurland - 23.12.1984, Side 14
14
JÓLIN 1984.
Guðmundur Bjarnason:
Með Berki til Grimsby
Á alþjóðasiglingaleiðum er skylda að vera með fána. Fánahylling
hjá Holla Ljósm. G. B.
Pað er kunnara en frá þurfi
að segja, að sá erlendur staður,
sem er í bestum tengslum við
Neskaupstað er Grimsby, ensk-
ur hafnarbær sem stendur við
mynni Humberfljóts á miðri
austurströnd Englands. Það er
nótaskipið Börkur NK-122 sem
heldur uppi reglulegum sigl-
ingum til Grimsby stóran hluta
ársins, en þangað siglir skipið
með ferskan fisk.
Sá sem þessar línur skrifar
hefur löngum haft mikinn áhuga
á því að fylgjast með uppboði á
fiski á erlendum markaði. Það
var svo um miðjan september
sl. að ákveðið var að skella sér
í siglingu með Berki, var það 7.
söluferð Barkar á þessu ári.
Með mér í ferðina fór fóstur-
sonur minn ívar, 15 ára gamall.
Siglingin út
Það var um miðnætti aðfara-
nótt laugardagsins 15. septem-
ber að Börkur lagði frá bryggju
í Neskaupstað. Um 800 mílna
sigling til Grimsby var framund-
an og veðrið ekki upp á það allra
besta fyrir landkrabba, suðaust-
an stinningskaldi og veltingur.
Ég hafði beðið um það áður
en lagt var af stað, að fá að
standa vaktir. Stóð ég vakt með
Magna skipstjóra á leiðinni 8
tíma á sólarhring frá 8 - 12 að
morgni og 20 - 24 að kvöldi.
Áður en lengra er haldið er
rétt að geta skipshafnarinnar,
en 8 manna áhöfn er á Berki.
Magni Kristjánsson skipstjóri,
Jón Einar Jónsson 1. stýrimað-
ur, Sturla Þórðarson 2. stýri-
maður, Hólmgeir Hreggviðsson
1. vélstjóri, Guðjón B. Magnús-
son 2. vélstjóri, Benedikt Gutt-
ormsson matsveinn, Þórður
Þórðarson og Sveinn Magnús-
son hásetar. Allt bráðhressir og
skemmtilegir menn.
Það var heldur valtur maður
sem staulaðist á vaktina klukk-
an 8 fyrsta morguninn. Eftir að
hafa verið uppi í brú í 4 tíma í
suðaustan veltingnum þurfti ég
að bregða mér út á brúarvæng-
inn og skila einhverju af morg-
unmatnum út úr líkamanum á
þeim stað er hann kom inn! En
eftir að hafa borðað hádegismat
hjá Benna hvarf þessi krankleiki
að mestu. Eftir rúma sólar-
hringssiglingu í sama veltingn-
um komum við í Vestmanna-
sundið í Færeyjum og er ekki
laust við að talsverður feginleiki
hafi gert vart við sig þá klukku-
tíma er við sigldum í skjóli af
eyjunum. Daginn eftir gekk
veðrið niður og sigldum við eftir
það á sléttum sjó allt til
Grimsby.
Það var ýmislegt um að vera
á leiðinni. Menn styttu sér
stundir m. a. við videógláp og
vopnaburð og mikið og margt
var spjallað. Skipverjar voru
óþreytandi að rifja upp sögur úr
fyrri siglingum og óneitanlega
var maður farinn að hlakka til
að koma til Grimsby.
Um morguninn 18. septem-
ber komum við í mynni Humb-
erfljótsins. Þar voru þá fyrir
ógrynnin öll af skipum sem legið
höfðu í langan tíma vegna verk-
falls hafnarverkamanna. Eftir
stutta siglingu upp fljótið var
komið að fiskidokkinni í
Grimsby. Inn í dokkina er
örmjó renna sem Börkur passar
svo til nákvæmiega í, í mesta
lagi meters breidd að auki. Þrátt
fyrir þessi miklu þrengsli rann
Börkur í gegn án þess að koma
við. Dokkin er einungis opin á
flóði og er fjara tekur er hliðinu
lokað og á háfjörunni er nokk-
u' : netra mismunur á yfir-
borði jávar utan og innan
dokkarinnar. Þegar inn í dokk-
ina var komið, var strax farið að
olíubryggjunni til að taka olíu,
en löndun á fiskinum átti ekki
að hefjast fyrr en um kvöld-
matarleytið.
Ross-fjölskyldan.
Það var kunnuglegur togara-
hópurinn sem lá bundinn við
eina bryggjuna. Þarna var öll
Ross-fjölskyldan samankomin.
Ross-togurunum sem sóttu sem
fastast á íslandsmið hér á árum
áður hefur nú verið lagt fyrir
fullt og allt.
Strax og bundið hafði verið
kom maður frá tollinum um
borð og gerði klára pappíra og
annað, og að því loknu var hver
frjáls ferða sinna. Þar sem við-
dvölin ytra var ekki löng drifu
menn sig strax í land til að
versla. í Grimsby er mikið um
stórverslanir á okkar mæli-
kvarða og því vandræðalítið að
fá þar flest sem hugurinn girnist.
Vöruverð þar er mjög miklu
lægra en heima á íslandi og því
versla menn mikið.
Kráin Rainbow
Eitt af því sem þeir félagar
mínir á Berki höfðu talað sem
mest um á leiðinni var kráin
Regnboginn. Það var því með
óttablandinni virðingu sem ég
gekk þar inn fyrir dyrnar. Mér
kom því heldur spánskt fyrir
sjónir að þessi krá er allglæsi-
legur bar með plusssætum og
öðru tilheyrandi. Þarna geta
menn fengið vín og öl eins og
þá lystir og greiðugar stúlkur
eru á hverju strái! En mest varð
þó undrun mín er Þórður kynnti
mig fyrir Lindu Johnson. í stað
þess að mæta þarna stútungs-
kerlingu, eitthvað á annað
hundrað kíló að þyngd, blasti
við mér smávaxin stúlka liðlega
tuttugu ára, eldhress og kát en
hafði greinilega reynt sitthvað
um ævina. Já þetta var hún
Linda ljóslifandi, sendiherra
Síldarvinnslunnar í Grimsby!
Regnboginn er opinn til
klukkan hálf tólf að kvöldi. Þeg-
ar þar er lokað færa menn sig
venjulega yfir götuna á „Mat-
stofu unga Kínverjans" (Young
Chinese Restaurant- Disco and
Dinner), en þar er opið til
klukkan tvö. Þeir Barkarmenn
eru orðnir svo heimavanir þar
að þeir ganga alltaf inn eldhús-
megin. Gera Kínverjarnir enga
athugasemd við það. Meira að
segja sögðu strákarnir mér að
Gulli vinur minn hefði venju-
lega kíkt ofan í pottana er hann
gekk þar í gegn.
Salan á fiskinum
Þar sem hafnarverkamenn í
Bretlandi voru í verkfalli, voru
það atvinnuleysingjar sem
fengu vinnu við það að landa
aflanum. 70 - 80 manns unnu
við að landa og flokka fiskinn.
Og tækin sem notuð voru við
löndunina, drottinn minn dýri.
Ég er hræddur um að löndunar-
gengið hans Jóa Sveinbjörns
hefði fljótt strækað á slíkan út-
búnað. En þrátt fyrir frumstæð
löndunartæki voru 200 tonnin
sem Börkur var með komin á
land á 10 tímum. Meðferðin á
plastkössunum sem fiskurinn
var í, var alls ekki til fyrirmynd-
ar, en mér var tjáð að allt væri
þetta nú miklu betra þegar hafn-
arverkamennirnir önnuðust
þessa hluti. Um sjöleytið um
morguninn var búið að flokka
allan fiskinn eftir stærð í kassa.
Er hver kassi eitt kitt eða
u. þ. b. 63 kg.
Á þessum tíma birtist gríðar-
legur fjöldi manna í hvítum
sloppum, skiptu þeir áreiðan-
lega hundruðum. Gengu þeir á
milli kassanna, skoðuðu fiskinn
og lyktuðu af honum. Þarna
voru þá fiskkaupmennirnir
komnir. Uppboðið á fiskinum
hófst svo klukkan átta. Þrír upp-
boðshaldarar sáu um uppboðið
og hrúguðust fiskkaupmennirn-
ir umhverfis þá eins og mý á
mykjuskán. Æddi svo öll hers-
ingin meðfram fiskikössunum
og var vart hægt að fylgjast með
því hvað fram fór. Hróp og köll
og hvísl í eyru uppboðshaldar-
anna gerðust með slíkum hraða
að ógerningur var fyrir leik-
mann að átta sig á hvað var að
gerast. En á rúmum hálftíma
var allur fiskurinn seldur. Tæpar
28 krónur fengust fyrir hvert
kíló, sem var allgóð sala miðað
við hvað mikið magn var um að
ræða. En hvemig það verð
fékkst út úr öllum þeim hama-
gangi sem fram fór við söluna
skildi ég ekki, eins hefðum við
getað fengið 23 eða 33 krónur
fyrir kílóið.
Vetrargarðurinn
og víkingasveitin
Þar sem ekki átti að fara frá
Grimsby fyrr en á miðnætti að-
faranótt fimmtudagsins 20.
sept. opnaðist sá möguleiki að
geta skroppið stutta stund í
danshúsið „Vetrargarðurinn",
en það er einungis opið á mið-
vikudagskvöldum. Þar sem sýnt
var að við gætum einungis stans-
að þar inni í eina og hálfa
klukkustund voru nokkuð
deildar meiningar um hvort það
tæki því að heimsækja staðinn.
Það varð nú samt ofan á að fara
með mig og sýna mér dýrðina.
- Fórum við sex saman, ég,
Holli, Guðjón, Sturla, Þórður
og Svenni. - Á miðvikudags-
kvöldum er mikið um að vera í
Vetrargarðinum. Þangað koma
víst allar ógiftar vinnukonur í
Grimsby, sjómannskonur, reið-
ar eiginkonur og svo allt mellu-
gengið í bænum. Svo og tals-
verður fjöldi karla í veiðihug.
Við komum okkur huggulega
fyrir við borð og litum yfir alla
dýrðina. En brátt vorum við
truflaðir af konu nokkurri sem
kallaði okkur íslendingana öll-
um illum nöfnum. Af hverju vit-
um við ekki! Vart vorum við
lausir við kvensuna er einhverjir
drengstaular, tattóveraðir í bak
og fyrir fóru að bera það á okkur
að við hefðum tekið stól frá
þeirra borði. Ýttum við þeim
kurteislega frá okkur, en reiði-
legt augnaráð þeirra fylgdi okk-
ur stöðugt og fyrrnefndur kven-
maður sendi okkur sífellt
tóninn. Var því í skyndi stofnuð
Víkingasveit Guðmundar
Bjarnasonar þarna við borðið.
Var hlutverk sveitarinnar að
Ljósm. G. B.
„Þettaerfyrirtaksfiskur, Magniminn!". Þórður ogMagni.
Ljósm. G. B.