Austurland


Austurland - 23.12.1984, Qupperneq 37

Austurland - 23.12.1984, Qupperneq 37
JÓLIN 1984. 35 leitaði á hugann, saga sem ég heyrði um hvalaambur, þetta efni sem gerði mann ríkan og notað var í ilmvötn. Ég gekk aldrei svo um fjöru, þegar ég var barn, að ég þefaði ekki út í loftið í von um að finna ein- hverja góða lykt og rekast svo á gráan klump á milli steinanna. Ég hélt áfram út fjöruna. Parna vom hleinarnar, sem selir lágu svo oft á. Nú sátu þar nokkrir æðarfuglar og hjöluðu saman. Ég hélt upp úr fjörunni og heim að bænum. Gamall hundur lá í varpanum. Hann dillaði rófunni og gelti ekki einu sinni. Hann virtist viðurkenna tilverurétt minn á þessum slóðum, og áfram hélt ég út hringmyndaða hólana með djúpum gjám á milli. Ég kom að einni gamal- kunnri og gægðist inn um þröng- an munna og lét stein detta niður í myrkrið. Pað heyrðist ekki, þegar hann kom niður. Kannski var hún mosavaxin í botninn. Nei, svo marga steina hafði ég látið detta þarna niður, að botnin hlaut að vera þakinn grjóti. Áfram, áfram, á vit bernsku minnar. Ég kom í litla hvamm- inn innan við höfðann, þar sem var skjól fyrir öllum áttum. Ég lagðist í grasið og gaf mig á vald bemskudraumum og þeir komu hálfgleymdir og eins og í þoku. Sumir höfðu að vísu ræst og vom mér nú einskis virði með öllu nema einn, og jafnvel enn þann dag í dag eftir fimmtíu ára sjósókn er hann jafn bjartur og fagur og heillandi. Það var draumurinn um fisk- veiðarnar. Og ég varð aftur átta ára hnokki, sem stalst að heim- an á fögru sumarkveldi og lagði leið mína hérna niður hvamm- inn með tvö ónýt hrífusköft fyrir veiðistöng, og færið sjálft var hnýtt saman úr ónýtum línu- taumum. Ég tíndi nokkrar skeljar í fjörunni og lét í vasa minn og klifraði út á klettabrík. Þar raðaði ég þeim á sillu, tók eina og braut hana sundur með steini, kroppaði úr henni skel- fiskinn og beitti færið mitt. Ég lét það síga fram af klöppinni og hallaði mér upp að hurðinni, ha, hurð? Já, þetta var nú svo sem ekki venjuleg hurð. Tuttugu álnir á hæð og eftir því breið, úr blágrýti og féll svo fast að berginu, að gættir sáust varla. Nei, það voru engin smá- menni, sem gengu hér um dyr og þeir ferlegu steinhurð að loka. Hana, þar beit hann á, og brátt lá fallegur þarafiskur á klöppinni. Höfðinn var holur innan og í fornöld hafði hann verið hýbýli trölla. Ég gerði mér í hugar- lund, að tröllabömin hefðu veitt sér fisk til sælgætis þarna á dyra- hellunni. Og tröllin liðu undir lok. Þau döguðu uppi á nær- liggjandi fjallatindum. Eitt var máske á Örnólfsfjalli, stakur steindrangur, sem bar við himin neðan úr sveitinni. Hann var kallaður Örnólfur. Svona fækk- aði þeim tröllunum í höfðanum og að lokum var bara eftir eitt tröllagamalmenni og það fór inn í höfðann og lokaði svona rammlega, lagðist á steinbálk- inn sinn og hreyfði sig ekki meira. Og núna er þar hvít og skinin beinahrúga, stór bein, stærri en ég, og þarna munu þau liggja til dómsdags. Ég var búinn að veiða fimm þyrsklinga og hnýtti þá í kippu. Húmið var að skella yfir. Ég læddist upp klöppina og skimaði flóttalega í kringum mig. Þessi staður vakti mér alltaf hræðslu, þegar skyggja tók. Þarna var líka svarti kletturinn. Þar hafði ég einu sinni að kvöldlagi heyrt draugalegan kuldahlátur og það háði mér við fiskveiðarnar á klöppinni í langan tíma á eftir og lítill drengur með fiskikippu og tvö brotin hrífusköft í hönd- unum labbaði aftur upp í hvamminn. O jæja, þarna missti ég þráð- inn í bernskudraumum mínum og leit upp og mér allt að því sýndist ég sjá strákangann hverfa fyrir næsta leiti. Ég gekk upp á höfðann og sá nú yfir alla sveitina. Búverkareykurinn frá sveitabýlunum liðaðist upp í tært loftið. Þarna út og suður frá höfðan- um lágu tvær franskar skútur og önnur þeirra var að létta anker- um og fannhvít seglin komu upp í logninu og drúptu höfði í sól- skininu. Hún ætlaði sjáanlega að láta útfallið bera sig til hafs. Svo létti hin ankerum og seglin komu upp, en það var sorgar- sjón. Seglin voru blökk og svört upp til miðs af sóti og nú fór vélin í gang og þeytti reykjar- gusum upp eftir seglum og rám og hún hélt til hafs hulin reykj- Gleðileg jól FARSÆLT KOMANDI ÁR Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Verslunin Myrtan Hafnarbraut 22 Neskaupstað Óskum félögum okkar og öðrum Austfirðingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Verkalýðs- og sjómannafélag Vopnafjarðar Verkalýðs- og sjómannafélag Fáskrúðsfjarðar óskar félögum sínum og annarri austfirskrí alþýðu gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári armekki. Þessi skúta hafði tap- að reisn sinni, en sjálfsagt voru Fransmennirnir ánægðir og losnuðu við margt erfiðið. En það læddist að mér sá grunur, að dagar þessara tígulegu gesta frá hinum fjarlægu ströndum Frakklands væru senn taldir. En þrátt fyrir það var ég innilega sáttur við tilveruna, þegar ég sneri við upp höfðann og hélt heimleiðis. Það kom að því jafnvel fyrr en ég hugði. Á fáum árum hurfu frönsku seglskúturnar af fiski- miðunum kringum ísland. Sum- ar voru lekar og fúnar og höfðu farið sína síðustu för, aðrar fengu vélar og voru sendar á enn fjarlægari fiskimið. Nú er svo komið, að þetta er að verða gleymskunni hulið og hönd tím- ans leggst þungt og jafnvel steindrangurinn mikli, hann Örnóflur á Örnólfsfjalli hefur kiknað við lófatak hans og hrun- ið af stalli sínum og farið í smátt í urðinni fyrir neðan. Kannski er ennþá til gamalt útihús, þar sem sést á ráarenda af seglskipinu Manon í trosnaðri þekjunni og ef til vill áreftið yfir dyrunum úr mahogní. Enn sést franski kirkjugarðurinn utan við þorpið. Girðingin sem var orðin fúin og að hálfu leyti sokkin í jörð, hefir verið rifin og þama er nú grasblettur með tveimur minnismerkjum og sakleysislegar sauðkindur kroppa grængresið, sem sprottið er upp af safanum, sem rennur úr beinum hinna frönsku sona. Og franski spítal- inn, stolt staðarins, var auður og yfirgefinn. Svoleiðis stóð hann lengi og menn lögðu lykkju á leið sína á dimmum kvöldum. Það var sagt að þar væm einhverjar vemr á reiki, sem ekki hefðu hér vistarleyfi. Svo var hann að lok- um rifinn og steyptur gmnnurinn stóð gapandi og eyðilegur. Að lokum var hann fylltur upp og um tíma var þar afgreiðsla fyrir bensín. Og í sjúkrastofunni, þar sem systir Angela reikaði hvít- klædd og þögul á milli sjúklinga sinna, hún syrgði alla ævi elsk- huga sinn sem hvarf á íslands- miðum, stóð um skeið bensín- dæla og engum dettur lengur í hug slæðingur af frönskum uppmna og þó. Já, ég veit ekki. En enga bensíndælu þekki ég, sem bilaði eins oft og á kyrrum sumarkvöld- um komu bílamir hver á eftir öðmm og tóku bensín og óku svo leiðar sinnar og hurfu út í rökkrið. Gleðileg jól FARSÆLT KOMANDI ÁR Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Brúnás Eqilsstöðum Óskum starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra jóla og gæfuríks nýs árs Sólborg hf. Fáskrúðsfirði Gleðileg jól FARSÆLT KOMANDI ÁR Alþýðubankinn Laugavegi 31 Reykjavík Landsbanki íslands Fáskrúðsfirði óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.