Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 12

Húsfreyjan - 01.01.1950, Blaðsíða 12
f'járliagslegan stuð'ning lil þess að lialda matreiðs 1 unámskeið eða veita liúsfreyjum leiðbeiningu í garðyrkju. En engum efa er það undirorpið, að sú starfsemi efldist og óx samt sem áður mikið þegar á fyrstu árum sambandsins, einkum garðyrkjan, og béraðssamböndunum var það ómetanleg ur styrkur, að vita landssamtökin standa i bak við starfsemi sína, auk jiess scm stjórn K, í. var jafnan fús til að veita mál- efnum binna smærri sambanda livers kon- ar fyrirgreiðslu t. d. með útvegun kennslu- krafta o. fl. Svo glögg voru búnaðarsam- böndin á það, liversu um skipti til hins betra í umferðakennslu þessari, þegar kon- urnar tóku stjórn þeirra mála í sínar liend- ur, að sum þeirra veittu béraðssambönd- imum nokkurt fé til styrktar starfseminni og enn önnur, sem sjálf liöfðu leitast við að koma á aukinni garðrækt með leið- beiningum þar til liæfra manna, báðu liér- aðssamböinl kvenfélaganna að taka þessi mál í sínar hendur. Til þess að glöggt verði, bversu lítil fjárráð K. í. bafði skal þess getið að eitt ár, árið 1931, bafði það yfir 5000 krónum að ráða, 3000 krónum frá B. í. og 2000 krónum úr ríkissjóði. Á næsta ári la;kkar svo framlag B. I. í 2000 krónur og árið 1933 lækkar ríkissjóðsstyrkuriim einnig og verður þá aðeins 1600 krónur. B. í. veitti sambandinu styrk í tíu ár og bafði þá látið samtals 20850 krónur. Á sama tíma liafði K. í. fengið alls úr ríkissjóði 12200 krónur. Þó voru á þessum árum veittir slyrkir til leiðbeininga í garðyrkju og nám- skeiða í matreiðslu í rúmlega 60 staði. Auk þess bafði sambandsstjórnin orðið við málaleitan 13 stúlkna, er stimdnðn nám við erlenda skóla í matreiðslu eða banda- vinnu kvenna, og veitt þeim námstyrk, auð- vitað með það fyrir augum, að Jiessar stúlkur gætu svo kennt, Jiegar lieim kæmi. Varð og sú raunin á, að flestar eða allar urðu kennslukonur í sínum námsgreinum að náminu lokiiu og slunda sumar þeirra enn þá kennslu. Um útbreiðslustarfið er Jiað að segja, að það gekk vonuin framar. Voru þegar á næstu áruni eftir stofnuii K. 1. stofnuð þau béraðssambönd, er nú skal greina: Sainband borgfirzkra kvenna (1931), Samband breiðfirzkra kvenna (1932), Samband vestfirzkra kvenna og Samband kvenfélaga í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Voru öll Jiessi sambönd stofnuð beinl eða óbeint að tilhlutan stjórnar K. I. eða fyrir atbeina kvenna, sem stóðu í nánu sambandi og samstarfi við stjórnina. En auk Jiess, sem með tölum verður talið eða fullsannað með staðreyndum, má fullyrða, að K. 1. liefir með umræðum og samþykktum Landsþinganna liaft mikilvæg áhrif og óbeinlínis orðið til þess að breyta ýmsu til batnaðar. Verður þetta nánar rakið í sérstiikum kafla um Landsjiing K. I. » 4. ÁRIN 1940 1942. Árið 1940 er svo komið með f járráð K. 1., að sambandið befir ekkert fé lil umráða annað en 1000 krónur úr ríkissjóði og lítils liáttar afgang fyrri ára. Auk Jiess skellur Jiá bernámið yfir og raskar eðlilegum starfs- báttum ýmsra félaga. Mátti heita ógern- ingur að finna samkomustað fyrir alla stærri fundi, því að flest skóla- og sam- koinubús voru hernumin. Varð því eigi annað fyrir en að fresta öllum landsfund- um og þingum um skeið. Urn fjárbagsleg- an stuðning til héraðssambanda frá K. í. var ekki að ræða, Jiar sem fé var Jiví nær ekkert fyrir liendi. Hins vegar liöfðu flest eða öll béraðssamböndin einhvern styrk úr ríkissjóði fyrir atbeina einstakra Jiing- manna og gátu Jiví nokkuð baldið í borf- inu að svo miklu leyli, sem upplausn her- 12 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.