Húsfreyjan - 01.01.1950, Síða 33

Húsfreyjan - 01.01.1950, Síða 33
Hjálparstúlknaskólinn á Voss býður íslenzkri stúlku skólavist Norðmenn hafa eins og svo margar aðr- ar |)jóðir vaknað til skilnings á því, live brýn nauðsyn er á því að bæjar- og sveit- arfélög liafi í þjónustn sinni sérstakar hjálparstúlkur, sem léðar eru inn á heim- ili, }>ar sem húsmóðir forfallast frá störf- um. Má geta j)ess að á fjárhagsáætlun norska þingsins 1950—51 eru áætlaöar 600.000 krónur til styrktar þessari starfsemi. Húsmæðrasambandið í Hörðalandi í Noergi hefir ljeitt sér fyrir því að koma upp skóla eða námskeiðum fyrir hjálp- arstúlkur, en þetta samband hóf í fyrstu þessa slarfsemi þar og hafði margar lijálp- arstúlkur á sínum vegum. Sambandinu er Ijóst, að sérmenntun þessara hjálparstúlkna er þýðingarmikil, bæði til að livetja stúlk- ur til að fara í þessa starfsgrein, og til að tryggja heimilunum, að þær hafi undir- búning til þess að taka aö sér heimili. Þessi skóli húsmæðrasambandsins er á Voss og hann starfar í tveim 5 mánaða námskeiðum ár livert. Fyrra námskeiðið liefst í janúar, hið síðara 15. ágúst. Skólanefnd þessa skóla á Voss hefir sýnt íslandi þá miklu velvild, að bjóða einni íslenzkri stúlku, sem kann að vilja sinna þessum störfum hér heima síðar, skóla- vist á námskeiði því, er liefsl 15. ágúst n. k. Fær íslenzka stúlkan sömu kjör og norskar stúlkur, ]). e. ókeypis kennslu og fæði þann hluta dags, sem kennsla stendur yfir. Nem- andinn verður að borga húsnæði (ca. 20 norskar kr. á mánuði), en skólanefndin hýðst til að aðstoða við útvegun á hús- næði. Gert er ráð fyrir að íslenzki nem- andinn þyrfti 75-—100 norskar kr. á mán- uði. Nemendur skólans þurfa að liafa lieil- hrigðisvottorð og siðferðisvottorð og ein- liverja mennlun í heimilisstörfum eða haldgóða æfingu á því sviði. Kennsla I skólanum er bæði bókleg og verkleg. Kennd er t. d. næringarefnafræði og vöruþekk- ing. lieilsufræði og harnasálarfræði o. fl. Ennfremur matreiðsla og saumur á ein- földum fatnaði, meðferð á þotti og ræsting. Tvær vikur starfar liver nemandi á sjúkrahúsi og eina viku á fæðingarstofn- un. Auk þess nokkra daga á gamalmenna- liæli og á kúabúi til að læra einföldustu meðferð málnytar. Þessu lilboði um skólavist á Voss liefir enn ekki verið ráðstafað. En sjálfsagt er að þiggja þetta vinsamlega boð og er mjög gaman og gagnlegt fyrir einhverja myndar- lega stúlku, sem liefir áhuga á svona starfi að stunda í 5 mánuði þetta nám á Voss. Nánari upplýsingar fyrir stúlkur er vildu sækja um þessa skólavist eru gefnar á skrifstofu Kvenfélagasamhands Islands, Laugavegi 18. Skrifstofan opin kl. 10—12 árdegis. Þessi starfsgrein á áreiðanlega framtíð hér á fslandi. Kvenfélög og kvennasam- bönd þurfa hér sem annars staðar að auka skilning almennings og valdhafa á þessari merku starfsemi. Þá verður þess ekki langt að híða að ríki, bæjar- og sveitarfélög áætli árlegt fé til styrktar og framkvæmd- ar þessu nauðsynjamáli. Reynslan er sú, að dýrara er þjóðfélags- lega séð, að leysa upp heimilin, koma börn- unum fyrir á harnaheimilum eða annars staðar, er húsmóðirin verðúr að hætta störfum eitthvert tímabil, - en dýrast er þó fyrir þjóðfélágið, að heimili og börn fari í vanhirðu og eftirlitsleysi lengri eða skemmri tíma. Takmarkið er að hvert einasta hérað eða hayarfélag hafi hjálparstúlkur í þjón- ustu sinni lil að koma til móts við þau heimili, þar sem húsmóðirin forfallast frá sínu ábyrgðarmikla starfi. Soffía Ingvarsdóttir. HÚSFREYJAN 33

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.