Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 3

Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 3
Husfreyjxin 1. árgnngur, 3. tölubla'ö Útgefandi: Kvenfélagasamband íslands Reyjkavík, desember 1950 „Endurminningin merlar æ í mánasilfri livaíí, sein var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi fjarlægðar, gleðina jafnar, sefar sorg. Svipþyrping sækir þing í sinnis hljóðri borg“. Ein bin dýrmætasta gjöf lífsins er að kynnast góðu og göfugu fólki, þeim sem fá vakið bjá okkur elsku og aðdáun, sem aldrei slokknar. Þannig minnist ég afa og ömmu. Þegar menn liafa hlotið frægð og frama, er eins og sá einstaklingur sé að einhverju leyti orðinn almenningseign, menn vilja allt um hann vita, jafnvel liversdagslega atburði einkalífsins, sem eru ef til vill ekki svo sérstaklega frá- brugðnir því, sem almennt gerist; þess vegna ætla ég í þetta sinn að segja frá jólum og ýmsu smávegis í sambandi við bernskubeimili mitl. Fyrstu jólin og afi er svo sameinað í endurminningunni, að mér finnst afi liafa gefið mér jólin. Ég sat á hnám lians inni á ,,kontór“,* og bann sagði mér söguna af stjörnunni skæru og barninu, sem fæddist í Betlebem og var lagt í jötu, og frá jólunum, þegar bann var lítill drengur lieima í Skógum, sem liann lýsir í kvæðinu „Fullvel man ég fimmtíu ára sól“. Orð hans man ég ekki, en þessa belgistund átti ég ein með afa, og til- finningin, sem hann vakti lijá mér fyrir lielgi jólanna, er viðvaranlegt verðinæti í lífi mínu. Þetta mun bafa verið, þegar ég var fjögurra eða fimm ára. Mér er og í minni jólafagnaður beima, annað- bvort bin sömu jól eða ári seinna. Þann vetur voru í fæði bjá okkur þeir Hall- dór Briem kennari og ívar Helgason verzlunarstjóri Edinborgarverzlunar ásamt sonuin sínum, Helga og Jóni. Þá var oft glatt á lijalla, gaman og alvara á ferð- * Ég vil geta þess, að á bernskuárum inínum voru niurgir þeir, sem settu svip á bæinn, ýmist danskir eðu af dönskum ættiim. Þess vegna var Akureyrarmál æði dönskuskotið. Geri ég það af ásettu ráði að nota ýmiss þeirra orða, mér finust þuu eigu lieimu i þcssu sumbundi.

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.