Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 18

Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 18
FRÁ SKRIFSTOFUNNI INNHEIMTA FYRIR I'YRSTA ÁRG. HÚSFREYJUNNAR er nú í fullum gangi. Með 2. hefti í september voru send út innheimtubréf til kvenfélaganna, þeim send kvittanahefti og óskað eftir að þau hæfu innheimtuna. Mjög margur konur hafa nú þegar greilt ritið til skrifstofunnar, en aðrar vinna að innheimtu innan síns umdæmis. Þess- uin konum öllum vill afgreiðslan þakka og skal því hætt við, að þær konur, sem vinna að útbreiðslu og innheimtu rits okkar, vinna rit- inu og starfi kvenfélaganna meira gagn heldur en þær gera sér í hugarlund, því að öll við- Icitni ritstjórnar og afgreiðslu er gagnslitil til þess að halda ritinu uppi, ef það ekki er borgað skilvíslega. Við þökkum enn á ný þeim konum, sein hafa brugðist vel við innheimtu ritsins. Afgreiðslan lagði í það mikla vinnu að fá félagskonur í kvenfélögum til þess að innheimta fyrir Húsfreyjuna og hefir komið í ljós, að það var ekki að ófyrirsynju. Það hefir nefnilega sýnt sig, að innheimta ineð póstkröfu fer í inörguin tilfellum þannig, að póstkrafan er endursend, annað hvort fyrir handvönnn pósthússins, sem á að annast innheimtunu eða fyrir hirðuleysi kaupendanna. Þetta er mikið áfall fyrir ritið og sorglegt til þess að vita, að kvenfélagskonur skuli á sama ári og þær gerast kaupendur að sínu eigin riti, láta það koma fyrir að þær endursendi póstkröfuinnheimtu, sem þeim er menningarmál. Hún var þannig gerð, að ekkert mannlegt var henni óviðkomantli. Frú Áslaug var víðlesin og vel menntuð, mælsk og djörf og því vel til forustu fallin. Hún var prýðilegur fulltrúi fyrir Hvítabandið, og því til sóma jafnt út á við, sem innan félagsins. Margir fátækir og umkomulitlir áttu ltjá ltenni skjól og griðastað. Hún var mikilhæf húsfreyja og bar heimili hennar vott um smekkvísi. Nú liefir frú Áslaug kvatt þessa jörð. Hún skilur eftir margar og kærar minn- ingar, og gott óg þakkarvert lífsstarf. Blessuð sé minning hennar. Hólmfríður Jónsdóttir. 18 húsfreyjan send eftir fyrirmælum félagsstjórnar þeirra. Eftir þá reynslu, sem nú er fengin af póstkröfuinn- heimtu, mun afgreiðslan leggja á það enn meiri áherzlu en áður, að ritið verði innlieimt á annan hátt, heldur en með póstkröfu. Þær konur, sem hafa látið endursenda póst- kröfur sínar, geta eklci vænzt þess að fá ritið, fyrr en þær hafa gert skil. PRESSUGER (þurrger). Eins og konur vita hefir skrifstofa Kvenfé- lagasamliandsins á undanförnum árum verið milli- liður milli kvenfélaga og Áfengisverzlunar rík- isins um útvegun á þessari vörutegund. En það hefir verið með pressuger eins og annað nú á síðari árum, að það liefir verið hörgull á því annað slagið. Á síðastliðnum vetri hafði Áfengis- verzlunin ágætt pressuger, sem að vísu var svo lítið af, að ekki var hægt að fá nema mjög takmarkað magn í livern stað, en þó var það svo, að i fyrravetur fengu kvenfélög pantanir sin- ar afgreiddar, þar til á útmánuðum, að varan var uppgengin, og mun ein pöntun liafa borizt skrifstofunni eftir það. Nú í haust hefir borizt pöntun úr einum stað og í því sambandi átti skrifstofa Kvenfélagasam- bandsins tal við Áfengisverzlun ríkisins, en fékk þær upplýsingar að þurrger væri ekki til og myndi ekki verða fáanlegt á næstu mánuðum, þar sem það hefði ekki verið pantað erlendis frá. TVISTUR. Stjórn Kvenfélagasambands íslands liafa þrá- faldlega borizt óskir um útvegun á tvisti til vefnaðar. Þcssi vara hefir verið ófáanleg, a. m. k. í þe :m löndum, sein við höfum liaft við- sldptasamhönd við, og er því kennt um, að tvistur sé notaður í samhandi við hernaðar- framleiðslu. Nú hefir að lokum tekizt að fá samhönd við cnska verksmiðju, sem getur selt tvist og er nú talin von um að úr rætÍBt í þessu máli. Er stjórn Kvenfélagasamhandsins gerði fyr- irspurn um möguleika fyrir innflutnings- og gjald- eyrisleyfi fyrir þessari vöru, var lienni tjáð, að Halldóra Bjarnadóltir á Akureyri hefði fengið innflutningsleyfi fyrir tvisti, sem ætlaður væri kvenfélögum og heimilisiðnaðarfélögum. Er því þeiin kvenfélögum, sem óska að fá tvist rélt að snúa sér til Halldóru Rjarnadóttur með pantanir sínar. Um þennan tvist skal þess getið, að hann er af venjulegri stærð, hvítur, óbleiktur. Sú reynsla

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.