Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 12

Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 12
Iztt n kTBnréttindamál Þegar íslenzkar konur öðluðust kosn- ingarrétt og kjörgengi til Alþingis og unnu þar með lokasigur í baráttu sinni fyrir pólitísku jafnrétti, liugði margur að þar með væri lokið lilutverki kvenréttinda- baráttunnar hér á landi. Það má reyndar öllum vera ljóst, að er þessum áfanga var náð, var lagður grundvöllur að því að konur fengju fram- gengt hagsmunamálum sínum. En reynsl- an sýnir að á ýmsum sviðum standa kon- ur liöllum fæti í þjóðfélaginu, enda þótt þær, lagalega séð, séu að mestu settar jafnfætis körlum. Þannig er það t. d. alkunna að konur bera að jafnaði minna úr býtum fyrir vinnu sína en karlar, og að hlutverk konunnar sem móður skapar henni sérstöðu í þjóðfélaginu, sem taka þarf fullt tillit til, ef vel á að vera. Þessi aðstöðumunur hefir konum liingum verið ljós, og þá um leið hitt, að mikið skortir á að hlutverki kvenrétt- indabaráttunnar sé enn lokið. Þegar konur öcðluðust fullt pólitískt jafnrétti gerði margur sér vonir um al- menna þátttöku þeirra í liinu opinbera lífi. Það lá þó í augum uppi, að áður en svo yrði, þyrfti að sigrast á aldagöml- um venjum og rótgrónum hugmyndum um stöðu og hlutverk konunnar í þjóðfé- laginu, svo að verulegs árangurs yrði tæp- lega að vænta fyrstu árin. En því er ekki að leyna að nú í dag, svo löngu eftir að pólitíska jafnréttið var fengið, er nið- urstaðan sú, að bein þátttaka íslenzkra kvenna í hinu opinbera lífi er sáralítil. Konur kenna þetta oft karlmönnunum, en þegar öllu er á botninn hvolft, er sök- ina fyrst og fremst að finna hjá kon- únum sjálfum, sem eru a. m. k. helm- ingur kjósenda í landinu. Ég hygg að það, sem fyrst og fremst hafi staðið og standi enn í vegi fyrir því að konur notfæri sér til fulls hin pólitísku réttindi sín, sé tregða þeirra sjálfra til þess að koma fram í hinu opinbera lífi, samfara rótgrónu vanmati þeirra á sjálfum sér og um leið kyn- systrum sínum til þeirra hluta. Eitt aðal- hlutverk kvenréttindabaráttu nútímans er því að hvetja og örfa konur til beinnar þátttöku í hinu pólitíska lífi, og auka möguleika þeirra til þess að afla sér menntunar og þekkingar, sem geri þær jafnhæfar körlum til þátttöku á þeim vettvangi. Má í þessu sambandi geta þess, að Kvenréttindafélag Islands vinnur ötul- lega að því að auka og efla Menningar- og minningarsjóð kvenna, en sá sjóður styrkir konur til framhaldsnáms í ýms- um greinum. Það heyrast stundum raddir um það, að konurnar eigi sjálfar að sameinast um kvennalista eða kvenframbjóðendur við kosningar. Eins og nú háttar til í hinu pólitíska lífi hér á landi, tel ég ekki miklar líkur til þess að slíkt mætti lánast. Konur hafa, ekki síður en karlar, mjög sundurleitar pólitískar skoðanir og skipa sér eftir þeim í flokka, og fráleitt að gera ráð fyrir því að konur almennt kasti atkvæði sínu á frambjóðanda, sem greinir á við þær í skoðunum, enda þótt frambjóðandinn sé kona. En vandfundn- ar munu þær konur, sem gætu sameinað liin ólíku sjónarmið kvenna í þeim mál- um öllum, sem þær yrðu kjörnar til að fjalla um. 12 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.