Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 19

Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 19
/ Eldhúsið er mikilvægasti vinnustaður heimilisins, þar eru unnin a. m. k. þriðj- ungur þeirra starfa, sem fram fara á heimilinu. Jafnframt því að vera aðal vinnustaður heimilisins er eldhúsið oft einnig borðstofa, leikvangur barna og dagstofa fjölskyldu. Svo umfangsmikil notkun krefst nákvæmrar skipulagningar, til þess að hinir ýmsu þættir trufli ekki livor annan. Fyrst og fremst verður að taka tillit til starfa liúsmóðurinnar, vinnustæðum verður að koma rétt fyrir og innrétting þeirra að vera eftir nýjustu kröfum. Vinnustaðimir verða að vera í friði fyrir annari umferð í húsinu. Matborðið þarf lielzt að vera nokkuð frá aðal vinnu- stöðunum, svo að umferð við það trufli ekki vinnuna. Eldhúsið er miðdepill hversdagslífsins, og á að vera öndvegis- staður íbúðarinnar, en til þess að svo geti orðið, verður það að vera rúm- gott (10—12 m2) og vel skipulagt. ELDHÚSIÐ OG ÖNNUR HERBERGI HÚSSINS. Staðsetning eldhúss í íbúðinni ákvarð- ast fyrst og fremst af áttunum. Norð- vesturhórn lnissins er bezt fallið fyrir eldhús. Norðurgluggi er þá hafður yfir vinnuborði, en vesturgluggi yfir matborði, svo að húsmóðirin fari ekki alveg á mis við sólskinið í því herbergi, sem liún í rauninni eyðir mestum tíma dagsins í. Hinsvegar er óheppilegt að liafa eld- húsið í suðurhlið hússins þar, . sem sólar nýtur mest, bæði vegna þess að skemmtilegt er að stofan sé sólrík og oft getur verið óþægilegt vegna matreiðsl- unnar að sólin skíni beint á vinnuborðið. Þegar athugað er samband eldliúss við aðra hluta íbúðarinnar em þrjár um- ferðalínur mikilvægastar. Fyrsta samband milli eldliúss og búrs eða geymslu. Annað samband milli anddyris og matborðs, sem verður að vera aðgreint frá því fyrra, liefir fengist af inislitum tvisti frá Englandi, að ekki þótti ráðlegt að panta liann vegna i>ess að hann lætur lit og var því eingöngu beðið um Iivítan tvist. Ekki er von á vöru þessari fyrr en eftir áramót. R. Þ. LEIÐRÉTTING. Menn eru beðnir uð afsaka, að í síðasta tölu- hluði, í greininni: Frá sainbandsþingi húsmæðra- félaga Norðurlanda féll úr nafn frú Aagot Vil- hjálmsson frá Vopnafirði, þegar taldir voru upp islenzku fulltrúarnir, sem sátu þingið. Sömu- lciðis var frú Uclga Kristjánsdóttir talin vera frá Þverá í Laxárdul, en liún er frá Þverá í Dalsmynni, S.-Þingeyjarsýslu. THORVALDSENSFÉLAGIÐ. Þ. 19. nóvember síðastl. voru liðin 75 ár síðan Thorvaldsensfélagið var stofnað. Það mun vera clzta starfandi kvenfélag á landinu. Félagið hcf- ir alltaf verið freinur fáliðað, en hefir áorkað miklu í mannúðarmálum. „IIúsfreyjan“ var kom- in í prentun, þegar okkur var kunnugt um þennan merkisdag. Óskum við félaginu allra heilla, og vonum í næsta blaði að okkur gefist kostur á að birta fróðleik um hinn lunga og merkilega sturfsferil Thorvaldsensfélagsins. HÚSFREYJAN 19

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.