Húsfreyjan - 01.12.1950, Page 8

Húsfreyjan - 01.12.1950, Page 8
Næsta ár, 1910, var fyrst byrjað að halda reglulega (undarbók. Það ár var Guðrún Gísladóttir kosin formaður. Hef- ir bún gegnt formannsstörfum síðun, eða í samfleytt 40 ár. Heiðursfélagar liafa verið þessar konur, sem nú eru allar látnar: Ragna J ónsson, Elín Tómasdóttir, Kristín Wíum, Ilakel Imsland, Ingibjörg Skaptadóttir, Guðrún ísdal, Betzy Guðmundsson. I félaginu bafa alls verið 106 meðlimir frá upphafi. Af stofnendum munu nú aðeins vera 4 á lífi: Kristín Þórarins- dóttir, Sigríður Böðvarsdóttir, Jónína og Guðrún Gísladætur. Félagatala var hæst árin 1917 og 1923, 39 meðlimir, en nú er félagatala 21. STEFNUSKRÁ. Skömmu eftir að félagið var stofnað kom félagskonum saman um, að það skyldi ekki eingöngu vera skemmtifélag, heldur þyrfti það að starfa eittbvað, „öðr- um til gagns og sér til sóma“. Var þá samþykkt að félagið skyldi hafa það fyrir markmið að lijálpa fátækum og styrkja ýms góð málefni. FÉLAGSSTÖRF. Jólagjafir. Á fyrstu árum félagsins vann það aðallega að því að gleðja fátæka um jólin með matar- og fatagjöfum. Saumuðu félagskonur öll þau föt, er útbýtt var. Á seinni árum hefir aðallega verið útbýtt gjöfum til sjúklinga í bæn- um og til vistmanna á ellibeimilinu „Höfn“. Námske.ið. Um margra ára skeið,í eða þar til lögleidd var bandavinnukennsla í barnaskólum, hélt félagið uppi nám- skeiðum í handavinnu fyrir stúlkur á aldrinum 8—14 ára. Stóðu námskeiðin frá 6 til 8 vikur árlega og skiftust félags- konur á um að kenna, þrjár og þrjár í senn. Ilúsnæði lagði barnaskólinn til án endurgjalds og var kennslan alveg ókeypis. Á seinni árum befir félagið stofnað til 5 saumanámskeiða, oftast með samstarfi við Kvenfélag Seyðisfjarðar. Þá hefir félagið staðið fyrir námskeiðum í hjúkrun (að tilhlutun R. K. 1.), síldar- matreiðslu, garðyrkju, vefnaði og almenn- um matreiðslunámskeiðum. Heimilisiðna&arsýning. Árið 1928 stofn- aði félagið, ásamt 2 öðrum kvenfélögum í bænum, til lieimilisiðnaðarsýningar. Tókst bún mætavel og voru þar valdir úr munir, sem sendir voru á fjórðungs- sýningu á Eiðum sumarið 1929 og síðar á Landssýninguna í Reykjavík, árið 1930. Ýms málefni. Á þeim 50 árum, sem liðin eru frá stofnun félagsins, hefir það lagt fram um 20 þúsund krónur til styrkt- ar ýmsum velferðarmálum og líknar- starfsemi, ýmist með beinum framlögum úr sjóði félagsins, eða það hefir gengist fyrir almeimum samskotum. Helztu að- ilar, sem notið bafa styrks á þennan liátt eru: Á Seyðisfirði: Gróðrarstöð, Lúðrafélag, Aurasjóður skólabarna, kirkjugarður, samkomubús, Seyðisfjarðarkirkja, sumar- dvöl barna, Skógræktarfélag og ferðasjóð- ur skólabama. Utanbæjar: Heilsuhælissjóður, Land- spítalasjóður, Húsmæðraskólinn á Hall- ormsstað, Kapellusjóður Hallormsstaða- skóla, Menningar- og minningarsjóður kvenna, Noregssöfnun og Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna. Auk þess bafa verið styrktir ýmsir að- ilar, utanbæjar og innan, sem orðið hafa fyrir slysum eða tjóni. Hæsti styrkur, sem veittur hefir verið, 8 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.