Húsfreyjan - 01.03.1957, Síða 16

Húsfreyjan - 01.03.1957, Síða 16
I Manneldisþáttur 1 Margt góðmetið berst á land á vetrar- vertíðinni, og ættu húsmæður, sem nærri verstöðvum búa, ekki að láta undir höfuð leggjast að gæða heimafólki sínu á hollu og gómsætu sjómeti, þegar færi gefst. Eitt af því, sem oft ætti að sjást á borð- um um þetta leyti, eru hrogn. Þorsk- hrogn eru mikil kostafæða. Orkugildi þeirra (hitaeiningagildi) er nærri því eins mikið og sama magns af hænueggjum og þau hafa að geyma vænan skammt af helztu vitamínum. Að vísu er innihald þeirra af A- og D-vitamíni lítilmótlegt í samanburði við þorsklifur, sem er einn okkar beztu A- og D-vitamíngjafa, en húsmæður, sem völ eiga á hvorutveggja, láta heldur ekki lifrina vanta á matborð- ið. Meira máli skiptir C-vitamínmagn hrognanna. 1 100 g. af hrognum eru um það bil 20 mg. af C-vitamíni eða jafn- mikið og í jafnþyngd af ýmsu grænmeti, t. d. tómötum og salati. Og það er ein- mitt C-vitamínið, sem hættast er við að skorti í fæðu manna hér á landi um þetta leyti árs, þegar nýtt grænmeti er ekki á boðstólum, og kartöflumar hafa tapað verulegum hluta af upphaflegum vitamín- forða sínum. Algengast er að borða hrogn heit á- samt fisk og lifur. Til þess að þau springi síður í suðunni, er gott að vefja þau í grisju eða smjörpappír. Þau þurfa 1—3 stundarfjórðunga suðu, eftir stærð. Köld hrogn eru ágæt ofan á brauð. Þau má líka súrsa, og er það góð geymsluaðferð með tilliti til C-vitamínsins, því að það varð- veitist vel í sýru. Hér fara á eftir nokkrar uppskriftir af hrognaréttum og eru þær teknar upp úr Mat og drykk: 16 HÚSFREYJAN SOÐIN HROGN MEÐ LAUKSÓSU. 1— IV2 kg. hrogn Lauksósa: 1 1. vatn 25 gr. smjörlíki 1 msk. salt 25 gr. hveiti 3V2 dl. mjólk 1 laukur 1 tesk. salt Hrognin eru soðin, skorin í þykkar sneiðar, látin á mitt kringlótt fat, og þar í kring er rað- að soðnum kartöflum. Lauksósunni hellt yfir hrognin. Lauksósa: Laukurinn flysjaður og skorinn í sneiðar. Soðinn augnablik í saltvatni. Smjörið brætt, hveiti hrært út í, þynnt út með mjólkinni, en nota má til helminga súra mjólk eða áfir. Laukurinn settur út í og saltað eftir smekk. SOÐIN HROGN MEÐ GRÆNMETI. m kg. hrogn Vatn og salt kg. gulrætur eða rófur blómkál eða kg. hvítkál 30 gr. hveiti 4— 5 dl. grænmetis- og hrognasoð Salt og pipar Saxaður graslauk- ur 1 1 30 gr. smjörlíki Hrognin þvegin og soðin í saltvatni í V2 klst. Tekin upp og skorin í þykkar sneiðar, sem rað- að er á fat. Grænmetið, sem hreinsað hefur ver- ið og soðið i saltvatni, er skorið í jafna bita og raðað yfir hrognin. Þar yfir er sósunni hellt. Sósa: Smjörið brætt, hveiti hrært út í, þynnt út með grænmetis- og hrognasoðinu. Soðið í 5 mínútur. Saxaður graslaukur og salt og pipar Framhald á bls. 21,

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.