Húsfreyjan - 01.03.1957, Page 27

Húsfreyjan - 01.03.1957, Page 27
til vill væri gott að fá svolítið af bóm- ull og hreinum umbúðum." ,,Já, það er víst bezt,“ sagði Gréta, sem nú kenndi engrar vorkunnsemi, en var hörð sem steinn. Hún gekk að skápnum í anddyrinu og dvaldizt þar um stund. Hún vildi helzt vera í einrúmi stundarkom. Hún hallaði sér upp að veggnum og greip höndum fyrir andlitið. „Hann skal aldrei fá að vita það,“ hugsaði hún. „Hann skal al- drei fá að vita, að ég hef aldrei fest trún- að á sögurnar hans.“ Ást hennar til hans var sársaukakennd. Þó þótti henni enn svo vænt um hann. Erfiðleikarnir og sárs- aukinn aðeins juku ástina. Hún var al- drei sterkari né óbifanlegri en einmitt þeg- ar ómennska hans var hvað mest. Þegar Gréta kom aftur, sagði hann: „Þetta, hvað öll sár á mér gróa fljótt, er nú eitt öryggið mitt gegn slysum og ó- farnaði. Þú veizt þetta manna bezt frá fyrri slysum mínum.“ En á honum var þó óttasvipur, því að hið sanna varð ekki umflúið og nú tókst honum ekki lengur að gabba sjálfan sig. Ef Grétu renndi nú grun í sannleikann líka? En Gréta sá, hvað honum leið. Hugs- un hennar var glaðvakandi og augun opin. „Manstu, þegar hann Leó skar þig í handlegginn?“ sagði hún rólega og sak- leysislega. „Þegar þú komst heim um kvöldið og sýndir mér það, var það bara smárispa." Hún settist og fór að taka umbúðirnar af fætinum. Hann sneri til veggjar. „En hvað þú ert heimsk," hugsaði hann um Grétu. „Það er alveg sama, hvað vitlaust það er, sem ég segi þér. Þú trúir því öllu. Ég giftist þér líka vegna þess, að þú ert svo einföld. Ég þorði ekki að eiga neina aðra,“ hugsaði hann, en honum hálfsárn- aði þó við sjálfan sig. „Manstu líka, þegar þú ætlaðir út í skóg og steigst ofan á flöskubrotin? Skór- inn skarst í sundur og hællinn á þér líka. En þegar heim kom, var leðrið í skónum auðvitað sundur skorið. Það hafði ekki þína hæfileika til að gróa. En á hælnum á þér sást ekkert nema smáblettir eins og eftir tennur.“ „En þú fékkst engin berin í það skipt- ið,“ sagði Hans til þess að kvelja sjálfan sig, því að hann mundi svo vel eftir því, hvað hann hafði sofið vel og lengi úti í skóginum. Þann daginn hafði allt „hlaupið í baklás“ hjá honum, svo að hann vildi ekkert gera annað en sofa. „Nei, hvernig hefði það átt að verða,“ sagði Gréta. „Þú gazt ekki tínt ber, þeg- ar þú stórskaðaðir þig. Það, sem lá við, að þér blæddi út úti í skóginum.“ „Líklega sést heldur ekki mikið núna,“ hvíslaði Hans. „Eg sé ekkert enn,“ sagði Gréta, sem var að enda við að taka umbúðirnar ut- an af. En þegar hún tók það siðasta af, kom hún auga á tvo örsmáa, bláa bletti og sagði: „Það er sannarlega þakkarvert, hvað allt grær fljótt á þér.“ Hún þvoði blettina, lagði bómull yfir þá og vafði sem vandlegast utan um. „Hann skal aldrei nokkurn tíma fá að vita það,“ hugsaði hún. Hans lét hana fara sínu fram. En þeg- ar hún hafði gengið frá fætinum, vafði hann hana örmum. Hann langaði til að hvísla í eyra hennar því, sem hann hugs- aði: „Ef ekki væru til eins einfaldar kon- ur og þú, þá gætu aumingjar, eins og ég, ekki þrifist. Okkur væri þá óhætt að hengja okkur i hæsta gálga, því að ef þið væruð ekki til, þá hlypi allt hjá okkur „í baklás“ á hverjum einasta degi og eng- inn væri til, sem liti upp til okkar.“ En hann steinþagði og kreisti saman varirnar. Ástin til Grétu funaði upp í honum, auðug og sterk, svo að honum fannst hann nú vera fær í flestan sjó. Gréta naut kossanna hans. Henni fannst nú sem hún væri drottning hans. Ástin og skynsemin toguðust á í henni. En á þessari stupdu skildist henni þó, að ást- in, sem hann vakti í hjarta hennar, var eins og hver önnur náðargjöf, sem jafn- vel breiddi hulu yfir vesalmennsku hans. S. Þ. íslenzkaði. HÚSFREYJAN 27

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.