Mæðrablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 13

Mæðrablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 13
MÆÐRABLAÐIÐ 11 / sólskinsbrekku. aði okkur svona hálfpartinn til að verða eins laglegar og þær og flýtt- um okkur í gufubaðið, morgunverð- inn og sundið. — Á meðan gátu þær sofið og hvílt sig og komið svo prúðbúnar til hádegisverðar — hinn- ar konunglegu máltíðar eða réttára sagt hinnar fjölbreyttu nýtízku í manneldi. Þar var allt frá hráum lireðkum upp í Hólsfjallahangikjöt og svo molakaffi á eftir. Ekki þurfti þá alltaf mikið hlátursefni þegar molakaffið var komið á borðið. Við hlógum alveg tilefnislaust eins og telpur um fermingu, af því nú vor- um við óþreyttar og áhyggjulausar og gátum hvílt okkur eftir matinn og alveg fram að kaffi ef við áttum ekki erindi út í skóg að tína ber, yrkja gamankvæði fyrir kvöldvök- una eða æfa gítarleik, því að flestar munu hafa verið liættar að láta sig dreyma um að finna kóngsson ævintýrisins í skóginum. Stundum var reynt að klifa upp fjallið og þóttust þær góðar, sem komust upp í miðja hlíð. Eftir kaffið var oft setið inni í dagstofunni við útsaum, hekl og prjón og fengum við þá oft að hlýða á píanóleik, því alltaf lagðist okkur eitthvað til, hljóðfæraleikarar komu til okkar víðsvegar að, en Gunna spilaði aldrei á gítarinn fyrr en á kvöldin — cn þótt margt væri ágætt og skemmtilegt á kvöldvökunum var ckkert scm jafnaðist á við það þeg- ar hún spilaði á gítarinn og söng með sinni hreinu og björtu rödd, og Sótarakvæðið hennar fengum við við aldrei nógu oft að heyra, hún varð að syngja það aftur og aftur cins og fyrir börn og þá var hún Gunna með gullhárið okkar góða dís. Þessi vika varð okkur eins og stíg- andi tónverk með fjölþættni og hraða. Með hverjum deginum urðum við glaðari og hressari og fórum að skennnta okkur og kynnast hvar sem vegir mættust t. d. í gufubaðinu á stígnum eða á berjamó. Og kvöld- vökurnar urðu æ skemmtilegri, fjör- ugri og tilbreytingasamari — þá voru upplesin frumsamin ljóð og sögur, þess á milli sungið og spilað, svo fóru vísur að fljúga bcint af vörum og þær Halldóra, Ólöf og Val- gerður, voru svo hraðskældnar að við, scm þóttumst góðir skrifarar höfðum ekki við að rita en allar hlógu og allar sungu. Eitt kvöldið var sýnt frumsamið leikrit. Það mun hafa verið samið og leikið, af tveim konunum, allt sama daginn. Svona var eins og allar andans lindir yrðu leystar úr læðingi, er líða tók á vikuna. En seinasta kvöldið var liratt stíg- andi, mjög fjörugt. Þá var dansað niðri í leikfimissalnum og allar kon- urnar 60 eða 70, sem voru þarna í boði Mæðrastærksnefndar, dönsuðu við allar húsmæðraskólasrúlkurnar á Laugarvatni, garðyrkjuskólapiltana, smiðina, heimamenn og stúlkur, kennara og sumargesti liótelsins. All- ir eitt í eldfjörugum dansleik langt fram á nótt og skemmtu sér hið Starfsemi Mæðrastyrksnefndarinn- ar er orðin all margþætt, eins og þetta blað ber nokkurt vitni um: Skrifstofa nefndarinnar með lög- fræðing sínum og starfskonu veitir konunum margvíslega hjálp, leið- beiningar og aðstoð, sem oflangt yrði að lýsa hér nánar, þó að margir myndu hafa áhuga fyrir að heyra bczta, og þar voru margar svifléttar konur í síðum ísl. búningi, sem auð- sjáanlega höfðu fyrr stigið dans. Vissulega kunnum við vel að meta þessa góðu daga og nutum þeirra líka af alhug og í einingu. Hver og ein lagði sitt bezta fram í upplestri ljóða, sagna og leikja, hinar hlé- drægari hlý handtök, mjúka tóna inn í sönginn eða glaðan þátt í dansinn, en allar góðvild og hugar- hlýleik sem lýsti samveruna eins og' gullið glit á bláu vatni. Svona var þessi vika á Laugar- vatni öll með ágætum og er hér þó aðeins á fátt eitt minnst. En slíkra hvíldarstunda þurfa all- ar þreyttar mæður og konur að njóta hvert einasta sumar. Sigríóur Einars. meira um það. Þar er líka tekið á móti því fé og gjöfum, sem nefndinni er um hver jól trúað fyrir að koma til skila til bágstaddra mæðra og barna. Sumarstarfsemin er stór þáttur í störfum nefndarinnar. Annarsstað- ar í blaðinu er nokkuð sagt frá Laugarvatnsvikunni, en henni hefir fylgt það lán, að verða til hvíldar Byggmm sumarheimili mœðranna

x

Mæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mæðrablaðið
https://timarit.is/publication/838

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.