Eining - 01.08.1954, Blaðsíða 4

Eining - 01.08.1954, Blaðsíða 4
* 4 EINING í Reykjavík, eða hálf ellefta milljón króna. Salan í heild: Árið 1953 .... kr. 76.405.299,00 — 1952 .... — 64.030.759,00 Aukning kr. 12.374.540,00 Þetta mikla áfengismagn skiptist þannig niður á tegundir í 100% áfengis- lítra. Sterkir drykkir ......... 24212 lítr. Heit vín................. 12094 — Borðvín................... 2487 — Salan í flöskum skiptist þannig niður á áfengistegundirnar: Sterkt áfengi............ 682601 fl. Heit vín.................. 81480 — Borðvín.................... 3716 — (Fyrir þá, sem hefðu gaman af að átta sig á, hvað átt er við með skipting- unni í sterk vín, heit vín og borðvín, má upplýsa: Sterkir drykkir er allt áfengi kallað, sem inniheldur 21% áfengis- magn að rúmmáli upp að 96%. Enn fremur allar tegundir af líkjörum, áfeng- ismagn 35—56%. — Heit vín frá 13 —21% (Sherry, Malaga, Portvín, Wer- mouth o. fl.). Borðvín frá 8—13% (Borgundarvín, Rínarvín, Hvítvín, Rauðvín o. s. frv.).). Áfengismagn á íbúa hefur einnig auk- izt, þrátt fyrir fjölgun í landinu og er nú talið eftirfarandi: 1953 ........... 1.469 100% áfengi 1952 ........... 1.345 100% — Aukning 0.124 pr. íbúa Lögreglan í Reykjavík hefur upplýst að mjög sé líkt um áfengislagabrot og áður í bænum. Fullnaðarskýrslur eru ekki fyrir hendi, en þó allupplýsandi. Erlendur her hefur nokkur áhrif á þessi brotamál. 1953 ölvaðir við akstur .... 160 — ofdrykkja í heimahúsum 60 — áfengislagabrot..........3799 Það má líta svo á, að heldur sígi á ógæfuhlið í þessum málum“. * * * I skýrslu fræðslustjóra stórstúkunn- ar, Hannesar J. Magnússonar skóla- stjóra, er greint frá stofnun Bindindis- félags íslenzkra kennara, og á stjórnar- fundi þess félags bar hann fram tillögu um, að fenginn yrði maður frá Noregi til þess að leiðbeina við fyrirhugað nám- skeið, er samþykkt var á fundinum að efna til á vegum Bindindisfélags kenn- aranna. Skólastjórinn skrifaði svo Erling Sörlí, skrifstofustjóra landsráðs bind- indisfræðslunnar í Noregi, með þeim árangri, sem nú er kunnur, og segir frá námskeiði þessu á öðrum stað í blaðinu. * * * Sex undanfarin ár hefur frú Þóra Jónsdóttir í Siglufirði verið gæzlumað- ur unglingastarfs stórstúkunnar og rækt það starf af mikilli prýði. Síðastliðinn vetur ferðaðist hún þrjár vikur, og með henni eiginmaður hennar, Pétur Björns- son kaupmaður. Á því ferðalagi stofn- aði frúin barnastúku í Hólmavík, heim- sótti svo barnastúkurnar í Borgarfirði og á Akranesi, einnig þrjár barnastúkur austan Hellisheiðar, þá í Hafnarfirði og Reykjavík, ennfremur við Eyjafjörð. — I skýrslu frúarinnar segir frá námskeiði að Jaðri, í júní 1953, er Ungtemplara- ráð Reykjavíkur sá um. Á námskeiðinu voru 38 börn. Kennd voru ræktunar- störf og önnur útivinna, einnig innan- hússstörf. Gróðursettar voru þrjú þús- und trjáplöntur í landi Jaðars og nokk- ur hundruð blómaplöntur, búin til ný blómabeð og ýmislegt lagfært. Þá segir Sigurður Gunnarsson, skóla- stjóri í Húsavík, frá tveimur ungtempl- aramótum í Svíþjóð, en þangað kom hann að beiðni frú Þóru Jónsdóttur, þar sem Sigurður var að ferðast erlendis um þær mundir. 1 sambandi ungtempl- ara í Svíþjóð eru nú 16,500 félagar í 250 félögum. Þessi æskulýðsfélög kosta mjög kapps um að efla bróðurhug þjóða á milli. Þegar frú Þóra tók við gæzlustarfinu fyrir sex árum, voru í landinu skrásettar 54 barnastúkur, félagatala 5917, en nú eru stúkurnar 60 og félagar þeirra 6564. Frúin sá sér ekki fært að taka þetta gæzlustarf að sér framvegis, og var kos- inn í hennar embætti Gissur Pálsson, rafmagnsfræðingur í Reykjavík. Unglingaregluþingið var háð sam- hliða stórstúkuþinginu. Ein bezta stund þess var, þegar dr. Richard Beck flutti þar hjartnæma og ágæta ræðu, sem yljaði okkur öllum innan brjósts. Og þyrfti að anda hjá okkur meira af þeim heita blæ, sem til hjartans nær. Það er vorblær alls félagslífs. Inn á stórstúkuþingið kom einn morgunn skólastjórinn á Flateyri í Ön- undarfirði, með myndarlegan hóp ung- menna, sum þeirra voru frá Ólafsvík og hin úr nágrenni ísafjarðar, Önundar- firði og víðar. Þar flutti skólastjórinn stutta en ágæta ræðu. í henni var andi og líf, og hún missti ekki marks. Hún birtist hér á forsíðu blaðsins. •I* *f' H* Skýrsla ritara stórstúkunnar, Jóh. Ögm. Oddsson, fjallar um hag og fjár- mál Reglunnar. Hér verða þær tölur ekki taldar, geta menn, er vilja kynna sér þær, átt aðgang að þingtíðindum stórstúkunnar. Þess skal þó geta, að þegar Jóh. Ögm. Oddsson kom í fram- kvæmdanefnd stórstúkunnar, voru skuldlausar' eignir hennar taldar kr. 1500,00. Þá skuldaði hún þó sex þús- und króna víxil í Landsbankanum. — Þann víxil borguðu sex Reglufélagar það sama ár. Á þeim tíma var þetta all- mikil fjárupphæð. Nú þegar Jóh. Ögm. Oddsson hverfur úr ritaraembætti stór- stúkunnar, sökum aldurs, eru skuld- lausar eignir hennar taldar kr. 838,- 397,00. Þær hafa aukizt síðasta stór- stúkuárið um röskar 90 þús. kr. I niðurlagi skýrslunnar kemst Jóhann svo að orði: , ,,Eins og templurum er kunnugt, hef eg nú ákveðið að láta af störfum sem stórritari. Aldurinn er orðinn hár og tel eg rétt, að ungir og ólúnir menn taki við þessu starfi . . . Þegar eg vík úr þessu sæti, eftir 34 ára starf í framkvæmdanefndinni, frá starfi, sem var mér oft hugljúft og ánægjulegt, væri vitanlega margs að minnast, en til þess er hvorki tími né t rúm . . . Á þessari löngu leið hef eg kynnzt fjölda templara um land allt, og enn fremur fjölda annarra manna utan Regl- unnar vegna starfs míns fyrir barna- blaðið Æskuna. Kynni mín við mörg ungmenni hér og hvar á landinu hafa öll verið hin ánægjulegustu. Yfirleitt hef eg mætt góðvilja og vin- áttu samherjanna . . . Hlýleiki og bróð- urhugur hafa leikið um mig — ekki < hvað sízt á alvörustundum lífs míns. Þeir hlýju straumar hafa verið sem græðandi smyrsl á opin sár“. Hér við bætir Jóhann svo nokkrum hlýjum þakkarorðum til samverka- mannanna og lýkur máli sínu með stefi eftir Guðmund Guðmundsson skáld: Þökk sé öllum þeim, er stóðu þéttast, fastast merki hjá! * Friður með þeim sé, er sofa, Sæmdarverki dánir frá! Heill sé þeim, er hæst og djarfast hefja sigurfána þann, sem vort líf og lán býr undir! — Lifi og eflist stórstúkan! Þeir óhlutvöndu menn, sem stund- um skemmta sér við það, að ófrægja Reglu Góðtemplara, sem er auðvitað ekki fullkomin fremur en annar félags- V skapur manna, mættu gjarnan kynna sér ofurlítið starf manna, eins og Jóh. Ögm. Oddssonar þessi 34 ár. Vinnudag- ur hans var oft langur, laun hans léleg, og um langt skeið vann hann tveggja manna verk eða meira. Slíkt má full- yrða, og er ekkert skjall. Verk slíkra manna eru ekki auðmetin á vogarskál- um óhlutvöndu flumbraranna. Margir menn Reglunnar, fyrr og síðar, hafa ' unnið mikið þjónustuverk til heilla al- þjóð, þótt ekki sé auðgert að stilla ár- angrinum öllum út í sýningarglugga. Veizluboð Isfirðinga. Þá er eftir að skýra frá þætti Isfirð- inganna í sambandi við stórstúkuþingið. Hann var ekki neinn bláþráður. Gestum sínum tóku þeir af hinni mestu rausn. Fyrst bauð bæjarstjórnin þingheimi í ökuför um nágrenni bæjarins, inn að jarðgöngunum á leiðinni til Súðavíkur, að rafstöðinni, og inn í ,,skóg“. Veður var dásamlega fagurt og var þetta hin

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.