Eining - 01.06.1957, Page 5
EINING
5
Vorþing umdæmissftúku Suðurlands
stóð dagana 25. og 26. maí sl. Hófst
kl. 2 eftir hádegi, í Hafnarfirði, í elzta
templarahúsi landsins. Umdæmistempl-
ar, Þorsteinn J. Sigurðsson, kaupmaður,
setti þingið og fór því næst fram stig-
veiting. Sjö tóku umdæmisstigið.
Þá var lögð fram ársskýrsla umdæm-
istemplars, en í henni eru einnig skýrsla
um æskulýðsstarfið í umdæminu, nám-
skeiðin og starfsemina að Jaðri, einnig
barnaheimilið og svo reikningar.
Skýrslan sýnir, að útbreiðslustarfið
hefur verið allumfangsmikið. Ymist hef-
ur framkvæmdanefnd umdæmisstúkunn-
ar skipulagt hópferðir til nokkurra staða
og efnt þar til velheppnaðra útbreiðslu-
funda, svo sem í Hafnarfirði, Keflavík,
Ólafsvík, Stykkishólmi, Garði eða ein-
stakir menn á vegum umdæmisstúkunn-
ar hafa farið um viss svæði, svo sem
Vestur-Skaftafellssýslu, Arnessýslu og
víðar. Frá ýmsu af þessu hefur verið
sagt áður hér í blaðinu, en einn er sá
þáttur í starfsemi umdæmisstúkunnar,
sem Eining hefur lengi beðið eftir að
geta skýrt frá. Það er barnaheimilið að
Skálatúni í Mosfellssveit, og birtist því
hér skýrsla stjórnarformanns heimilis-
ins, Jóns Gunnlaugssonar, stjórnarráðs-
fulltrúa, eins og hún er í ársskýrslu um-
dæmistemplars. Jón Gunnlaugsson er
einmitt maðurinn, sem hrundið hefur
þessu merka fyrirtæki í framkvæmd og
byggt það upp með aðstoð góðra sam-
starfsmanna og góðvildar ýmissa aðilja
þannig, að mjög svo lofsvert er.
Skýrsla formanns:
Það er nú í 14. sinni, sem reikningar
barnaheimilisins eru sendir, og í 3. sinni
síðan Skálatúnsheimilið tók til starfa.
Börnin í Skálatúni hafa aldrei verið eins
mörg og þau eru nú, eða 26 talsins, og verð-
ur það að teljast hagur fyrir reksturinn.
En starfsfólkið liefur einnig aukizt og eru
nú 11 starfsstúlkur og 3 karlmenn, og allir
virðast hafa nóg að gera. Verið er nú að
undirbúa sáningu á 5 ha. nýrækt í viðbót
við þá ræktun í Skálatúni, sem áður er gerð.
Er þá langt komið með að rækta það af
Skálatúnslandinu, sem óræktað var þegar
við tókum við því. Bústofninn hefur aukizt,
eru nú rúmlega 40 kýr og kýrefni, en þó
hafa ekki borið í vetur og vor nema 22 kýr.
Ekki er enn ráðið hvað gera verður við
Kumbaravog, en Reykjavíkurbær skilar hon-
um nú í næstu fardögum, er hann og í bezta
lagi að öllu leyti, og að ýmsu leyti betri en
liann hefur verið nokkurn tíma áður. T. d.
er túnið komið í ágæta rækt og er vel girt
með sauðheldri girðingu.
Þessar gjafir og styrkir hafa lieimilinu
borizt:
Frá
Einari á Freyjugötu ........... kr. 500,00
Ingibjörgu og Bjarna Péturss. — 1.000,00
Barnavinafélagi Reykjavíkur í
ýmsum vörum .................. — 23.891,41
Ónefndum — jólaglaðningur . . — 200,00
Halldóri Halldórssyni, arkitekt — 500,00
Ríkissj.: Af byggingarst. 1957 — 15.000,00
kr. 41.091,41
Áður ótilf.:
Áfengisvarnarnefnd kvenna í
Reykjavík og Hafnarfirði,
kvikmyndasýningarvél .... — 7.600,00
kr. 48.691,41
Frá dregst: Tvífært 1955 .... — 1.000,00
Kr. 47.691,41
Enn fremur hafa heimilinu borizt, fyrir
milligöngu Páls Kolbeins stjórnarnefndar-
manns, kæliskápur og jólaglaðningur og
frá þremur bandarískum konum vönduð
leikföng.
Að síðustu minnist ég þess með þakklæti
að umdæmisstúkan hefur sent börnunum
eins og áður ríflegan jólaglaðning, „jóla-
gjafasjóður stóru barnanna" um hendur frú
Ragnhildar læknis Ingibergsdóttur í Kópa-
vogi og frá bandaríska varnarliðinu um
hendur lögreglustjórans á Keflavíkurflug-
velli.
Megi þessi stofnun eflast vel og stækka,
því mikil er þörfin, og eru nú 12 börn á
biðlista, sem engan samastað eiga. Búið er
að teikna viðbót við heimilið en stjórnin
sér sér ekki fært að hefja byggingaraðgerð-
ír enn. Jón Gunnlaugsson.
Skýrslunni fylgir reksturs- og efna-
hagsreikningur barnaheimilisins árið
1956. Varðandi hann skal þess hér að-
eins minnst, að skuldlaus eign heim-
ilisins er talin: kr. 726,463,00, en
niðurstöðutala reikningsins er: kr.
1,573,463,00. Þetta er því allmikill bú-
skapur og til fyrirmyndar.
Nokkrar umræður urðu á þinginu
um skýrslurnar, en þó mestar um nokkr-
ar tillögur, og ályktanir, sem fram voru
bornar og einróma samþykktar. Þær
voru þessar:
1. Vorþing umdæmisstúkunnar nr. 1, hald-
ið í Hafnarfirði dagana 25. og 26. maí 1957,
lýsir yfir ánægju sinni og þakklæti til
biskups íslands, herra Ásmundar Guð-
mundssonar, fyrir forgöngu hans um fjár-
söfnun til hjálpar drykkjusjúkum heimilis-
leysingjum í Reykjavík.
2. Þingið telur, að drykkjumannahæli þau,
sem ríkið hefur komið á fót, sé viðurkenn-
ingarvert spor í rétta átt, einnig að lijúkr-
unarheimili Bláa bandsins í Reykjavík sé
mjög til bóta, en samt sé þetta ónógur hælis-
kostur. Þörfin sé mjög brýn á langtum meira
húsrými vegna þessara sjúklinga. Þess vegna
skorar þingið á framkvæmdanefnd sína, að
athuga, hvort unnt muni vera að hún komi
upp stofnun fyrir slíka menn og starfræki
liana á sínum vegum.
3. Þingið lýsir ánægju sinni yfir því, að
framkvæmdanefndin skuli hafa tekið upp
samstarf við kirkju landsins og presta henn-
ar, svo og skólastjóra og nemendur gagn-
fræðaskólastigsins, og lætur í Ijós ósk um,
að framhald verði á slíku samstarfi.
4. Þingið vottar Jóni Gunnlaugssyni og
stjórn Barnaheimilis templara í Skálatúni
virðingu og þakklæti fyrir frábært starf í
þágu heimilisins.
5. Þingið ítrekar áskorun sína til bæjar-
stjórnar Reykjavíkur um að hætta áfengis-
veitingum í veizlum og samkomum á veg-
um bæjaryfirvaldanna.
6. Þingið beinir þeirri ósk til fram-
kvæmdanefndar Stórstúku íslands, að hún
beiti sér fyrir fjölmennu allsherjar móti
íslenzkra bindindismanna, nú þegar í sumar.
Ef sýnt þykir, áður langt líður, að ekki
muni takast að koma á slíku allsherjar
móti, þá felur umdæmisstúkuþingið fram-
kvæmdanefnd sinni, að gangast fyrir því, að
sem flestir bindindismenn í umdæmi lienn-
ar geti komið saman til fundar fyrir næsta
haust, — á Jaðri, Þingvelli eða annars stað-
ar þar, sem bezt þykir henta.
A síðari degi þingsins — sunnudegi,
hinum almenna bænadegi kirkjunnar,
gekk þingheimur til kirkju og hlýddi
messu í Fríkirkju Hafnarfjarðar. Séra
Kristinn Stefánsson flutti ágæta ræðu
um efni dagsins, og bað einnig umdæm-
isstúkuþinginu og störfum þess blessun-
ar drottins.
Eftir messu var setzt að kaffidrykkju
í templarahúsinu, í boði templara í
Hafnarfirði, var þar rúmt hundrað
manns. Þegar flest var á þingi, voru full-
trúar og gestir 115, fulltrúarnir 83 frá
stúkunum í umdæminu, þar á meðal
þingstúkum og barna- og ungmenna-
stúkum.
Þegar þingfundur hófst á ný, flutti
Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri Flens-
borgarskólans, snjallt og ágætt erindi
um félagsleg vandamál í sambandi við
æskulýðsstarfsemi.
Öll framkvæmdanefnd umdæmisstúk-
unnar var endurkosin. Þingið fór mjög
vel fram að öllu leyti og sýndi, að enn
vaka áhugamenn.
* '
Avarp biskups
Vissulega munu bindindismenn í landinu
taka heilhuga undir áskorun biskups frá 13.
maí sl., um a?S hefja fjársöfnun til þess aíJ
unnt veríSi hi?S brátSasta atS búa aíS minnsta
kosti næturskjól þeim bágstöddu mönnum,
sem hvergi eiga höfÖi sínu aíS aíS halla.
Raunalegt er aíS svo skuli vera ástatt um
nokkra menn hjá siíSmenntuíSum þjótSum, og
raunalegast þó af öllu, atS ríkicS sjálft skuli
selja nautnameðal, er ræktar þann sjúkdóm
er einna verst leikur menn, gerir þá ósjálf-
bjarga og þunga byríi sjálfum sér og ö’Srum.
Líklega er áfengisböliS eini sjúkdómurinn sem
menn rækta vitandi vits. Kröfu verSur aS
gera til þess aS á slíku verSi breyting, og þá
þurfa einnig forustumenn þjóSarinnar aS taka
hreina afstöSu til áfengisvandamálsins og af-
neita áfengistízkunni algerlega. Sjálfsagt er
aS bjarga þeim, sem í brunninn eru fallnir,
en engu síSur aSkallandi aS byrgja hann svo,
aS ekki fari aSrir sömu leiS.
--------ooóoo--------
Abstraktlistin okkur sýnir
andlit sálar.
Málarinn sinn hugarheim
og hjarta málar.
Abstraktlistar undri mundu
allir trúa,
ef þeim tækist innyflunum
út að snúa.
P. S.