Íþróttablaðið - 01.07.1927, Blaðsíða 5

Íþróttablaðið - 01.07.1927, Blaðsíða 5
Iþróttablaðið Gefið út af Iþróttasambandi Islands. (Áður „Þróttur" stofnaður af í. R.) II. árgangur. Júlí — Ágúst 1927. 7.-8. tölublað. Hvöt. (Lag eftir N. P. Hildebrandt). ,Tökum á, þá tekst það\ Réttu’ úr þér! Renn þitt skeið og djarfur ver! Frá þér varpa deyfðar-draumum, drekk af lífsins heilsu-straumum; vilja þinn með trúar-taumum tem — og með þér gæfan er! Brjóst framsett! Bjartsýnn ver, og gakk þú létt fram með hreysti, fjöri, kjarki; forða þér við leti, slarki; örugt sæk að settu marki; sómi vertu þinni stétt! Hvort þú átt höll að bústað eða lágt hreysi, gildir einu, eldur ef að hjartans lífi heldur. — Þrekraun sérhver þroskun veldur; því skal setja markið hátt. Drottni treyst drekka þótt þú hljótir beiskt; trúin veitir styrk að stríða; styðji guð, ei þarf að kvíða. — Sigurlaunin loks vor bíða ef vér höfum ekki þreyst. Lausl. þýlt úr dönsku. B. B. „ . . . Fjöll sýni torsóttum gæðum að ná“. Að því er sögur herma, létu hinir fornu Islend- ingar, sem nokkurs orðstírs hafa getið sér, sér ekki minna sæma en vera fyrstir, mestir, á hverj- um fundi, heima og heiman. Nú höfum við, arftakar þeirra, gert þvert á móti um margar aldir. Við höfum með ánægju látið okkur sæma að vera eftirbátar — attaníossar — annara þjóða. Virðist okkur þetta svo rækilega gróið í merg og bein, að okkur dettur ekki í hjart- ans hug annað en að taka líka nú, er við förum að hreyfa okkur, öll víxlsporin, sem hinar þjóðirn- ar hafa tekið og nú eru vaxnar yfir, þótt við get- um, einmitt af reyslu þeirra, farið beint fram hjá þeim pöldrum, sem þær hafa af þekkingarskorti álpast ofan í. Þetta er berast á verklegu framkvæmdunum okkar mörgum hverjum. Á einu sviði erum við að byrja að nudda stír- urnar úr augunum og reyna að horfa á eftir hin- um. Það er í íþróttunum og líkamsmentinni. En svo virðist helst, sem forráðamenn þjóðarinn- ar hugsi helst til þess, að láta hana fara sömu króka- leiðirnar að markinu og hinar hafa farið, þrátt fyr- ir það að þær sýna og kenna að það hafi verið mistök, sem hafi taíið þeim árangurinn. Þeir vilja ekki láta sér annara víti að varnaði verða. Við verðum því, íþróttamenn og íþróttavinir, að leggjast fast á eina sveif um að hindra þessar taf- ir, verja þjóðina og- fulltrúa hennar frá að sigla þessum langmerkustu málum eftirkomenda okkar á sker. Og ef við tökum sameinuð til okkar ráða, þá verður okkur ábyggilega mikið ágengt.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.