Íþróttablaðið - 01.07.1927, Blaðsíða 14
70
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
á sumum sviðum sambærilegir við aðra og getum,
ef við bara viljum, orðið það á fleiri sviðum.
En það er ekki nóg að þessir fáu menn, piltar
og stúlkur, viti það og skilji. Fleiri verða og þurfa
að læra að meta og skilja þetfa og nauðsyn og
gagn líkamsíþróttanna yfirleift.
Þið, Noregsfarar, verðið öll að sýra út frá ykk-
ur, kenna öðrum það, sem þið hafið lært við för-
ina, og sýna öllum í daglegu lífi ykkar og breytni,
að þið vitið og þekkið og metið gildi íþrótfanna
og virðið lög þeirra og skyldur þær, sem þær
leggja öllum sínum á herðar, og þið ætlið ykkur
enn hærra í íþróttametorðastiganum.
Þið eigið nú að leggja alt kapp — en þó með
forsjá — á að komast á Ólympíuleikana að ári
og sigra þar eða falla með sæmd.
Ef við sýnum trú vora að fullu í verki, þá fer
ekki hjá því að þeir trúarsnauðu verða að minsta
kosti að virða hana — og jafnvel að hrífast með.
Ummæli þau, sem þessir fimleikaflokkar í. R.
hlutu erlendis — og mest er að marka þau, er
þeir hlutu í Gautaborg þar sem við nógu marga
og margvíslega flokka var saman að bera — eru
þannig vaxin, að sem flestir íslendinga þurfa að
fá að sjá þau og heyra.
Því mun íþróttablaðið birta og geyma alt hið
merkasta af þeim í næsta blaði. Annir og þrengsli
valda því, að þau geta ekki komið nú.
Sundmót.
Við Sundskálann í Örfirisey hafa þessi sundmót
verið haldin í sumar.
Sunnudaginn 26. júní kl. 1. e. h. (í sam-
bandi við Afreksmerkjamófið).
I. Sund fyrir konur.
A. 50 metra, frjáls aðferð:
1. Regína Magnúsdóttir, 43,6 sek.
2. Heiðbjört Pétursdóttir, 53,0 —
3. Anna Gunnarsdóttir, 53,4 —
(Allar K.R.-félagar).
B. 200 metra bringusund. Synfu aðeins þær
sömu þrjár:
I. Regína, 3' 57,8' (met); 2. Anna, 4' 35"; 3.
Heiðbjört, 4' 40,7"
C. 12 stú/kur frá 9 — 18 ára, nemendur Ingi-
bjargar Brands, fimleika- og sundkennara, sýndu
ýmsar sundtegundir, björgun og útstökk. Mest léku
þær Elsa Nielsen, Helga Agústsdóttir og Sigríður
og Kristín Ólafsdætur. Meðal sundlistanna, er
þær léku, man eg eftir snarkringlusundi, skrúfu-
sundi og demantskrossinum.
II. Sund fyrir karla.
A. 100 metra sund (frjálst).
1. Jón Pálsson (S.Æ.), 1' 22,9" (nýtt met).
2. Björgvin Magnússon (K.R.), 1' 29,8".
3. Þórður Guðmundsson (S.Æ.), 1' 36".
4. Gísli Þorleifsson (Á.), l'36,4".
B. 200 metra sund — flestir til afreksmerkisins.
Syntu flestallir bringusund. Nokkrir syntu aðeins
til verðlauna, þar á meðal Jón Ingi, sem synti
hreint bringusund og setti nýtt met í því.
Synt var í riðlum Þannig:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
1. Sig. Steindórsson (Á.), 3' 46,5"
2. Pétur Árnason (K.R.), 3' 58,0"
3. Sig. E. Waage (K.R.), 4' 45,0"
1. Árni Pálsson (Á.), 4' 17,2"
2. Tómas Jóhannsson (K.R.) 5' 16,2"
3. Torfi Þórðarson (K.R.), 5' 17,0'
1. Óskar Þórðarson (Á.), 4' 40,2"
2. Helgi Guðmundss. (K.R.), 5' 0,2
3. Ingi Árdal (Á.), 5' 27,5"
1. Theódór Þorláksson (Á.), 4' 0,7"
2. Martin Jensen (Á.), 4' 55,0"
3. Ásm. Ásmundsson (K.R.), 4' 59,4"
1. Eiríkur Guðmundss. (Á.), 4' 25,5"
2. Stefán Thordersen (Á.), 4' 41,0"
3. Þórarinn Magnússon (Á.), 4' 53,0".
4. Ragnar Kristinsson (Á.), 5' 40,0"
1. Jón Ingi Guðm.son (S.Æ.), 3' 26,2”
2. Ásgrímur Ágústsson ( ), 4' 21,0" (skr.s.)
3. Bragi Steingr.son (K.R.), 5' 26,0"
C. 100 metra baksund.
1. Jón Pálsson (S.Æ.), 1' 58,2". (l' 46,6''.)
(baksundsmet).
2. Sig. Magnússon (K.R.), 2' 17,0".
3. Helgi Guðmundsson (K.R.), 2' 50,5". (2,48,8).
Mótið fór vel fram og veðrið var gott, en áhorf-
endur fáir.