Íþróttablaðið - 01.07.1927, Qupperneq 6
62
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Við byrjum á því hvert um sig að rækta okkur
sjálf á alla lund, hrinda frá okkur og okkar öllu
því, sem skaðlegt er og við vitum um, en neyta
hins, er við vitum að er til bóta. Þannig æfum við
okkur á alla lund og hugsum ætíð hærra. Við
verðum að sýna trú okkar í verki, sýna að við
þorum og viljum einhverju offra og eitthvað gera,
svo að fram geti miðað.
„Hver tindur eygir upp og fram, hver útnes-
skagi bendir frarn". Já, náttúran okkar bendir okk-
ur áfram, hærra, hærra. Sístreymandi, kristalstærar
fjallalindirnar benda okkur á að halda altaf áfram
að sama marki, og vera tárhrein utan og innan.
Ef við alment vildum samræma okkur við nátt-
úruna okkar og nota okkur reynslu annara þjóða,
svo í þessu efni sem öðrum, þá mundi skjótt miða
að marki.
Að getan er til, til að verða ekki síðastur og
sístur, það sanna okkur utanfarir íþróttamannanna
nú í sumar, bæði fimleika- og K. F. U. M.-móts-
faranna. En þorum og viljum við sjálf leggja
nokkuð af mörkum, auk þess að æfa og æfa vel,
og viturlega — til þess að sýna þefta og sanna
enn betur á Olympíuleikunum að ári? Og mun
hið nýja Alþing verða skilningsbetra og fórnfúsara
í þessu efni, en hin fyrri ?
Við íþróttaunnendur allir erum stafnbúar á í-
þrótta- og heilbrigðismálafleytu þjóðarinnar og verð-
um að leggja allan vilja og alla krafta fram til
að róa henni í gegnum foræðisál hleypidóma, skiln-
ingsleysis, nautnasýki og attaníossa-háttar. Gerum
við það slindrulaust, þá mun sannast að „ef vel er
róið fram í, þá mun skuturinn ekki eftir liggja".
„Afram, sporið ofar, framar,
áfram þar til hleypidómar
eins og hlekkir hrökkva af þjóð;
meðan roðinn myrkrið lamar
móti oss í fjarlægð hljómar
sigurdagsins sæla ljóð“.
íþróttanámsskeið.
íþróttanámsskeið í. S. í. og U. M. F. í. var
sett hér í Rvík 1. nóv. 1926 eins og áður hafði
verið auglýst. Var það haldið að mestu leyti í
Goodtemplarahúsinu. Þar fór öll bóklega kenslan
fram, kensla í glímu og Mullersæfingum, kenslu-
æfingar og fyrirlesfrar. I leikfimishúsi Mentaskól-
ans var leikfimis- og stökk-kenslan, en köst, hlaup
og knattspyrna á íþróttavellinum. Sund í Sundlaug-
unum. Kenslan var óslitin frá 1. nóv. til. 26. febr.
Voru 24 nem. á öllu námsskeiðinu, en auk þeirra
tóku 9 þátt í fleiri og færri námsgreinum.
Þessir kendu þar:
Sund; Jón og Olafur Pálssynir.
KnattspyrnU': Ben. G. Waage.
Köst: Olafur Sveinsson.
Stökk: Reidar Sörenssen.
Hlaup: Jón Kaldal.
Leika: Valdimar Sveinbjarnarson.
Heilsufræði: Sveinn Gunnarsson.
Mullersæfingar, glímu, leikfimi og kensluæfingar:
Jón Þorsteinsson, sem einnig stýrði námsskeiðinu.
Vikivaka: Helgi Valtýsson.
Erindi héldu þar:
Steindór Björnsson: um útbúnað og mælingu
íþróttavalla og undirbúining og fyrirkomulag í-
þróttamóta.
Ben. G. Waage: um starf og stefnu í. S: I.
Gunnlaugur Björnsson: um U. M. F. í.
Axel V. Túlinius: um Skátahreifinguna.
L. H. Miiller: um Skíðaferðir og búnað.
Dav. Sch. Thorsteinsson: um hjálp í viðlögum
Þessir piltar sóttu mótið:
Aðalsteinn Guðmundsson, Hverfirg. 32 B. Rvík.
Ágúst Jónsson (15 ára), Álfhólum, Útlandeyjum,
Rangárvallasýslu.
Benedikt Jakobsson (20 ára), Laugarvatni, Laugar-
dal, Árnessýslu.
Bergur Guðmundsson, Þrasastöðum, Fljótum, Skag.
Bjarni Guðmundsson, Glæsist. Útlandeyjum Rang.
Brynjólfur Kr. Ketilsson (25 ára), Álfsstöðum,
Skeiðum, Árnessýslu.
Eggert Baldursson (19 ára), Rauðamýri, Nauteyr-
arhreppi, N.-ísafjarðarsýslu.
Friðrik Jesson (20 ára), Hóli, Vestmannaeyjum.