Íþróttablaðið - 01.07.1927, Síða 12
68
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Á þessu móti keptu 5 félög: »Fram«, K.R.,
»Valur«, »Víkingur« og flokkur frá Vestmannaeyj-
um, sem K.R. bauð að koma og keppa. Voru
Vestmannaeyingarnir gestir K.R. á meðan þeir
dvöldu hér.
Leikar fóru svo, að »Valur« vann mótið að lok-
um með 8 stigum, K.R. hlaut 6 stig, »Víkingur«
4, »Fram« 1 og Vestm.e. 1 stig, þannig (í sömu
röð og kept var): Fram á móti Vestm.e. 2 : 2 mörk,
Valur - — Víking 5 : : 3 —
K.R. - — Vestm.e. 3 : 2 —
Víkingur - — Fram 6 : : 1 —
K.R. - — Val 1 : : 1 —
Víkingur - — Vestm.e. 1 : : 0 —
K.R. - — Fram 2 : 0 —
Valur - — Vestm.e. 2 : : 0 —
Valur - — Fram 1 ; : 0 —
K.R. - — Víking 6 : 1 —
K.R. - — Val 2 : 2 - +
Valur - — K.R. 2 : 1 - +
Knattspyrnumót íslands.
(Vormót 1. flokks).
Það fór fram dagana 24., 27., 29. og 30. júní
og 3. og 4. júlí. Keppendur voru knattspyrnufé-
lögin 4 reykvíksku: Fram, K.R., Valur og Víkingur.
Enn bar K.R. fullan sigur af hólmi. Hefir fé-
lagið þegar 4 sinnum unnið þennan bikar fyrir
sigur á þessu móti, nfl. árin 1912, 1919, 1926 og
1927 og þar með tignarheitið: »bezta knattspyrnu-
félag íslands".
Kappleikar þessir fóru þannig:
K.R. vann Fram með 6 : 0 mörkum,
Valur — Víking — 2:1 —
— — Fram — 3:0 —
K.R. — Víking — 4:2 —
Víkingur — Fram — 1:0 —
K.R. Val — 2:0 —
Stigatalið varð því: K.R. 6, Valur 4, Víkingur
2 og Fram 0.
Um það hvernig fél. hafa leikið og komið fram
á mótum þessum get eg ekkert sagt að þessu sinni,
því gildar ástæður hindruðu mig frá að horfa á
leikana. Þó má geta þess, samkvæmt ummælum
áhorfenda yfirleitt, að oftast hafi verið leikið held-
ur í betra lagi og stundum mjög vel. Og eitt má
taka fram, samkv. þessum ummælum, að það er
nú horfið eða því sem næst, sem áður var því
miður alltítt, að kepp. og forystumenn félaganna
hafa tekið að rífast á vellinum út af smáatriðum
1 eða dómsúrskurðum. Upp úr slíkum barnabrekum
— krakkaskap — eru félögin sjálf og félagarnir
að vaxa, eru að læra að bera virðingu fyrir og
hlýða lögum, sem fara skal eftir, jafn vel þótt þeim
í einstökum tilfellum virðist lögunum ekki rétt
beitt. Þannig á það að vera.
Aftur á móti er annar ósiður að koma í ljós,
sá skrílsháttur að hvína og æpa á kappleikum,
sygnt og heilagt, í tíma og ótíma. Þetta gera auð-
vitað — af því sem áður er sagt — ekki kepp-
endurnir. Væri það líka heldur lítil búningsbót frá
hinu áður talda. En þetta eru krakkar, smáfé-
lagarnir og leikfélagar þeirra, sem mynda þannig
óhljóðakór, sem svo virðist líkast því sem spilað
sé á. Eru kór þessi svo sterk að óhljóðin heyrast
um allan bæinn og fleiri þingmannaleiðir út frá
honum. Þessi óhljóðakór ættu félögin ekki að ala.
Að þeim er enginn sómi og af þeim ekkert gagn.
Vfirleitt bera áhorfendaummælin K. R.-flokkun-
um vel söguna í kappleikum þessum og Vals svo
þar hæst. Segja þó suma Valsflokkana nokkuð
harðleikna.
Er leitt að heyra — og sjá á útkomunni — að
félag, sem svo framarlega og vel hefir staðið, sem
Fram gerði á sínum tíma, skuli vera orðið svo
aftur úr, sem raun gefur vitni. Nærri því hið sama
má segja um Víking. Bæði þessi félög hafa unnið
tignarheitið „besta knattspyrnufélag íslands", og
Fram um margra ára skeið(9). Þau virðast hvorugt
hafa náð því um hríð að ala sér upp nýja félaga,
ungviði, er tekið gæti við af þeim eldri, er þeir
flytjast upp eða burtu. Þegar svo er komið fyrir
félagi, fer því eins og ættkvísl, sem enga afkom-
endur á, það deyr út. Væri ekki ráð fyrir þau úr
því sem komið er, að slá sér saman ?
K. R. og Val virðist aftur á móti sífelt vera
að fara fram. K. R. hefir nú þegar um skeið stað-
ið í röð fremstu íþróttafélaga á landinu, auk þess
sem það vinnur þetta tignarheiti nú í annað sinn
í röð. En er K. R. að fá varasaman keppinaut
þar sem Valur er? Ég vona það vegna knatt-