Íþróttablaðið - 01.07.1927, Page 24
80
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Svona lítur opinbera auglýsingin um Olympíu-
leikana í Amsterdam út, sem nú er send um öll
lönd. A henni sést þolhlauparinn renna um löndin,
en til hliðar við hann sést Maraþonsstólpinn og
Olympíu-fáninn með hringunum fimm, sem eru í-
mynd heimsálfanna. Myndina hefir hollenskur lista-
maður, Kees Roovers, gert.
fAun nokkur íslendingur leika undir þessu merki?
Álafosshlaupið
var háð sunnud. 10. júlí. Þátttakendur voru aðeins
5. Hlaupið byrjaði, frá Alafossi eins og vant er,
kl. 11,20 f. h. og lauk á venjulegan hátt á íþótta-
vellinum.
1. Magnús Guðbjörnsson á 1 klt. 11' 59"
2. Stefán Runólfsson - 1 — 13' 43"
3. Ingimar Jónsson - 1 — 17' 9,6"
Hinir 2, Helgi Guðmundsson og Björn Hall-
dórsson, urðu að hætta seinni partinn á hlaupinu.
Guðm. landlæknir Björnson skoðaði hlauparana
bæði fyrir og eftir hlaupið.
Nú var Magnúsi afhentur nýr bikar, mjög falleg-
ur, smíðaður af Ríkarði Jónssyni úr ísl. birki úr
Hallormsstaðaskógi, er sendiherra Böggild hefir
gefið.
Ýmislegt.
Knattskpyrnufélag Reykjavíkur hefir gefið
í. S. í. fallegan og stóran silfurbikar, sem keppa
á um í reipdrætti árlega, á milli austurbæinga og
vesturbæinga. Er gert ráð fyrir að kept verði um
þennan bikar 17. júní n. k. og mun reglugerð fyrir
bikarinn birtast síðar hér í blaðinu ásamt mynd af
honum, og myndir af Álafossbikarnum nýja, sem
J. E. Böggild sendiherra gaf í. S. í.
Umsóknir um námskeið Jóns Þorsteinssonar,
samkv. auglýsingu hans hér í blaðinu, ættu þeir,
er nota ætla, að senda honum sem allra fyrst.
Kvenna-íþróttafélag hafa 30 stúlkur í Rau-
foss í Noregi stofnað og gengið í héraðssambandið.
Segir »Idrettsliv* 23. maí síðast, að þær hafi starf-
að þegar í 5 mánuði og orðið vel ágengt.
Hvenær koma íslenzku stúlkurnar?
Árskýrslur, mótaskýrslur og metaskýrsl-
ur svo og skatt, eru þau félögin, sem ekki hafa
þegar gert það, beðin að muna að senda til I. S. I.
Baksundsmet J. Weissmullers á 150 yards
segir »Chicago Daily Tribune« frá 7. apríl s. 1. að
17 ára unglingur, George Kajac frá New Vork,
hafi hrundið þá kvöldið áður. Um tímann er ekki
getið. — Sjá mynd í glugga versl. »Áfram«
Laugaveg 18.
Ýms met segja Amerísk blöð frá í apríl að
bætt hafi verið á leikmótum sem þar hafa verið
haldin, þar á meðal í stangarstökki, 440 yards
hlaupi og fleiri íþróttagreinum. — Sjá myndir í
glugga versl. »Áfram«, Laugaveg 18.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Steindór Björnsson.
Prentsmiöjan Gutenberg.