Íþróttablaðið - 01.07.1927, Qupperneq 27

Íþróttablaðið - 01.07.1927, Qupperneq 27
íþróttablaOið. Iþróttakensla. I haust byrja ég á nýrri kensluaðferð í líkamsæfingum, sem allir geta tekið þátt í, hvar sem þeir eru á landinu. Aðferð þessi er í því fólgin, að fyrsta hvers mánaðar, meðan námskeiðið stendur yfir, sendi ég nemendum mínum nákvæma lýsingu á æfingum þeim sem ég kenni, ásamt fjölda mörgum myndum. Mun ég reyna að hafa lýsingar og myndir svo skýrar, að ekki geti verið um það að ræða, að fólk geri æfingarnar rangt. Fyrsta leikfimisnámskeiðið með þessu fyrirkomulagi hefst 1. okt. eða 1. nóv., ef nem- endur óska þess heldur, og stendur yfir í 7 mánuði. Námskeiðið er að eins fyrir hraust fólk, en bæði fyrir konur og karla á hvaða aldri sem er. Nemendum skifti ég í deildir eftir . aldri, er gjaldið fyrir kensluna frá kr. 2.50 til kr. 6.00 á mánuði. Fólk, sem ætlar sér að taka þátt í námsskeiðinu, ætti að senda umsóknir eða fyrirspurnir til mín hið allra fyrsta. Jón Þorsteinssson, fvá Hofstöðum. Mullersskólinn. Reykjavík. Sími 738. m m m m m m m m m m m BRAMPTON -reiðhjól Hin ágætu »BRAMPTON« Fálkareiðhjól höfum við fyrirliggjandi af öllum stærðum, og kosta þau nú að eins kr. 185,00, en áður kr. 205,00. Reiðhjólin eru smíðuð úr hinu heimsfræga »Bramptons« efni, og að öllum út- búnaði eins vönduð og hægt er, eins og áður. — Ennfremur fyrirliggjandi »ARMSTRONG« reiðhjól og »CONVINCIBLE« reiðhjól (Halvracer) í mismun- andi litum, reiðhjól, sem allir íþróttamenn vilja eiga. — Fáum hin heimsfrægu »B. S. A.« reiðhjól með næstu skipum. — Þar eð reiðhjól þessi eru þektustu, reyndustu og tvímælalaust beztu hjólin hér á landi, og kosta ekki meira en miðlungs- tegundir alment, getur ekki orkað tvímælis, hvaða hjól menn eiga að kaupa, vilji þeir fá það bezta fyrir sanngjarnt verð. — Fimm ára ábrygð tekin á öllum ofangreindum tegundum. Seld með hagkvæmum greiðsluskilmálum. Höfum ennfremur reiðhjól fyrir kr. 140,00. Sendisveinahjól, nokkur stk. eftir, seld með mikið lækkuðu verði. — Tvímælalaust mestar vörubirgðir á landinu af öllum varahlutum til hjóla. — Verðið mikið lægra en á síðasta ári. Reiöhjólaverksmiöjan Fálkinn. m m m m m m m m m m m m m m m m

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.