Íþróttablaðið - 01.09.1928, Síða 10
220
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Kristjánsson, hlaut 28 stig; 2. sveit K., Aðal-
steinn Hallson, Björn Sigfússon og Einar Þ.
Malmquist, hlaut 40 stig; sveit V., Sigurður
.lal'etsson, Oddur Helgason1 * * *) og Þorvaldur Guð-
niundsson, hlaut 45 stig; 2. sveit 1., Valgeir
Guðjónsson, Ólafur Helgason og Þór Cortes,
hlaut 46 stig; og loks sveit M., Grímur Gríms-
son, Ragnar Hjörleifsson, og Jón N. Sigurðs-
son, hlaut 48 stig. Tveir keppendurnir komu
ekki að marki, báðir frá V.
Hlaut kappsveit Kennaraskólans þvi verð-
launin að þessu sinni.
Veðrið var ekki gott, suðaustan-stinnings-
vindur og krapahret síðari hluta hlaupsins.
II. Viðavangshlaupið
á sumardaginn fyrsta hélt í. R. nú í 13. sinn.
Þátttaka mjög lítil, aðeins 2 félög: Ármann
með 5 menn (1 sveit) og Knattspyrnufélag
Reykjavíkur með 7 menn (1 sveit). Hlaupið var
gömlu leiðina.
K. R. vann mótið. Kom sveil félagsins að
marki þannig: 1. Geir Gígja á 13' 3", 2. Jón
Þórðarson á 13' 17,4', 3. Þorsteinn Jósefsson á
13' 26", 4. Jakob Sigurðsson og 6. Þorbrandur
Sigurðsson. Svo átti það líka 8. og 10. mann.
Af Ármenningum komu inn: Sigurbjörn
Björnsson, 5., Stefán Runólfsson, 7., Karl Hall-
dórsson, 9. og M. Frederiksen, 11. Fimti Árm.
kom ekki að marki, svo að félagið fékk ekki
fulla sveit inn og misti því stiga. Því vann
K. R. hlaupið með Iægstu fáanlegri stigatölu:
15 stigum.
III. Víðavangshlaup drengja
hélt Glímufél. Ármann fyrsta sunnudag í
sumri eins og undanfarin ár.
Var hlaupið látið fara fram fyrir hádegi, kl.
10%, og fór langbest fram af hlaupum þeim,
sem hér hafa verið háð nú um langt skeið,
bæði hvað léttleika og líðan keppendanna
snertir að því er virtist, en þó greinilegast hvað
áhorfendur snerti. Þarna voru aðeins staddir
1) I>cssi upprennamli ipróttamaður veiktist og dó
seinni-partinn i apríl. Mœttu iþróttamenn og iþrótta-
vinir oftar en gert er minnast góðra látinna iþrótta-
manna í iþróttablaðinu.
þeir sönnu áhugainenn, sem vel skilja hvað
keppendum og starfsmönnum er best, þeir
ruddust þvi ekki svo að, að hvortki keppendur
né starfsmenn gætu hreift sig.
Á mótið sendu Á. og K. R. sínar 2 sveitirnar
hvort (Á. 11 menn, K. R. 10 menn) og Knatt-
spyrnufél. „Fram“ 1 sveit, 5 menn (en þeir
voru allir mjög ungir og þroskalitlir að sjá).
Svo fóru leikar að Á. vann mótið með 19
stigum fyrir 1. sveit: 1. Grímur Grímsson, 8'
35,2", 2. Hólingeir Jónsson, 8' 41,4", 4. Guð-
rnundur Jónasson, 5. Ólafur Ólafsson og 7.
Bjarni Sigurðsson. K. R. var næst með sína 1.
sveil með 39 stig: 3. Oddgeir Sveinsson, 8'
53,2", 6. Aðalgeir Halldórsson, 9. Kristinn
Guðnuindsson, 10. Hákon H. Jónsson og 11.
Gunnar Kristmannsson. Þá var 2. sveit Á, m.
(>7 stig, 2. sveil K. R. með 89 stig og sveit I7.
með 112 stig.
Eg hef hér að framan getið flestra þeirra
manna, sem þátt tóku í þessum hlaupum og
luku þeim.
I öllum slíkum tilfellum fá aðeins fyrstu
mennirnir einhverja viðurkenningu fyrir að
hafa lokið þrautinni, sem um er að ræða, eitt-
hvað til minja. Þó er ekki sagt að þeir hafi
reynl neitt meira á sig, lagt sig neitt betur
fram en hinir, sem seinni verða. Því finst mér
þeir seinni eigi það jafnt skilið og þeir getu-
mestu eða duglegustu, að „þess sé getið sem
gert er“, að síðari tíma menn, börn þeirra og
barnabörn megi sjá það svart á hvitu að þeir
hafi leyst þessa þraut af hendi, gert það sem
þeir gátu og náð marki.
Knattspyrnumótin í vor.
Knattspyrnumót S. flokks (til 15 ára aldurs).
Mótið hófst 21. maí og tóku 4 félög þátt í
því. Kappleikar fóru á þessa leið:
Valur vann Fram með 10 : 0, K. R. vann
Víking með 2 : 0, K. R. vann Fram með 8 : 0,
Valur vann Viking með 3:1, Víkingur vann
Fram með 2 : 0, K. R. jafntefli við Val (0 : 0).
Varð því að keppa aftur til úrslita milli þeirra
og fóru leikar þá svo, að K. R. vann Val með
3 : 0. Úrslit voru þessi: Nr, 1 K, R. (7 stig),