Reykvíkingur - 11.07.1928, Page 17
REYKVIKINGUR
273
Sagbi hann, ab þessi reynsla heíðí
°rðið sér lærdómsrík. Að lokum
bað hann mig að taka í hendina
ú sér til merkis um að við vær-
um sáttir, og gerði ég það.
Fallhlífarlys
við Flensborg.
Um daginn (það var 10. f. m.)
var flugsýning við Flensborg í
Suður-Jótlandi. Meðal þess er
sýna átti var það, aö þýzki flug-
maðurínn Knies ætlaði að stökkva
ðt úr flugvél með fallhlif.
Gekk flugsýningin vel þar til
Knies stökk út úr flugvélinni, því
Þá fór öðruvísi en til hafði verið
mtlast: Fallhlífin breiddist ekkii út
°S Knies féll með Mum þunga
smum til jarðar og beið sam-
stundis bana.
Var þá hætt flugsýningunni.
Knies þessi varð aðeins 22 ára
gamall. t>að voru mörg þúsund
^nns þanna saman komin, sem
Urðu að horfa upp á slys þetta
°g dauða hans.
Þrítugur verkamaður i Kaup-
mannahöfn Orla Levy að nafni,
varð um daginn ósáttur við kær-
ustuna, 27 ára gamla stúlku, og
reyndi að fyrirfara henni. En hún
var ansi sterk og slapp hún lítið
meidd. Seinna reyndi maðurimn að
fyrirfara sjálfum sér, en einnig
það mistókst.
Stærsta skip heimsins
Kjölurinn lagður til.
White Star félagið ætlar nú að
láta búa til skip, sem verður 60
þús. smál. og þar með stærsta
^kip í heimi. Það verður 915 feta
langt og verðið er áætlað 7 milj.
sterlingspunda. Það verður búið
til hjá Harland &Wqlf í Belfast,
og er kjölurinn þegar lagður. Á-
ætlað er að það taki 3 íil 4 ár að
smíða það.
Ekkd er ákveðið ennþá hvernig
vélar verði látnar í það, en lík-
legast verða það olíuhreyflar en
ekki gufuvélar; verður það þá
langstærsta mótorskipið jafn-
framt. Stærst af mótorskipum er
nú ítalska skipið „Augustus", sem
er 33 þús. smál.
Þessu nýja skipi er ætlað að
Vera í flutningum inilli Engiands
og Bandaríkjanna.
White Star félagið hefir aldrei
'lagt áiherzlu á að liafa hraðskreið-
ustu skipin, en það er búist við að
þetta skip muni verða hrað-
skreiðara en Mauretania (eign Cu-
nard-fólagsins), sem nú er hrað-
sKxeiðast allra skipa.