Reykvíkingur - 11.07.1928, Side 24

Reykvíkingur - 11.07.1928, Side 24
280 REYKVIKINGUR Presturinn: ósköp eru að sjá þig svona drukkinn, Jón, dag eftir dog. Jón: Ég má til að drekka, prest- ur mlnn, til þess að drekkja sorg- um mínum. Presturinn: Og tekst pér [iað? Jón: Nei, því er nú ver, pær synda alt af ofan á. Drengur, sem var spurður að hvað árstíðirnar hétu, svaraði: Pipar, edik og salt. Hann var pá spurður hvort þær væru ekki f jór- ar. Eftir nokkra umhugsun svar- aði hann: norður, suður, út og inn. Næturgesturinn: Pað er Ijóta flóabælið þetta hjá yður. Ef flærnar hefðu vitað að samtök eru máttur, þá hefðu þær fleygt mér út úr rúminu. Gestgjafinn: Þetta hlýtur að vera vitleysa. Hér í húsinu er ekki ein einstök fló! Næturgesturinn: Nei, ekki ein einstök! Þær eru áreiðanlega all- ar giftar, og koma svo í heilum fjölskyldum til þess að ónáða gestina. Konan í Saurbæ var afar nisk og Jón bóndi fékk litlu að ráða. Þegar Jón var orðinn gamall lagðist hann veikur og var svo þungt haldlnn að læknir var sóttur. Ekki sagði Iæknir neitt við Jón um hvort hann væri hættu- lega veikur, en eitthvað talaði hann við konu Jóns. Seinna um daginn leggur hangi- kjötslykt inn til Jóns, og þá bið- ur hann guð að hjálpa sér, því þá vissi hann að konan var farin að sjóða í „begravelsið“. Tveir menn, sem báðir voru úr sömu sveitinni, hittust eflfr tíu ár í Reykjávik og sögðu hver öðrum hvað á daga þeirra bafði drifið. „Og svo er ég nú giftur og á frísklegan og heilsugóðan strák." „Já einmitt," sagði vinur hans. „Og svo segir fólk að hann sé nauðalíkur mér!“ „0 kærðu þig fjandann um það,“ sagði vinur hans, „bara hann sé hraustur og heilsugóð- ur.“ s Maður, sem var 84 ára gamalh ætlaði að ganga að eiga 16 ára gamla stúlku. Þegar þau komu upp að altarinu, segir presturinn við manninn: „Skírnarfonturinn er þarna," og bendir í áttina. „Skírnarfonturinn ?“ svarar mað- urinn, „hvað á ég að gera við hann ?“ „Æ fyrirgefið," segir prestur, „ég hélt þér ætluðuð nð láta skíra þetta barn.“

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.