Vera - 01.11.1986, Qupperneq 3

Vera - 01.11.1986, Qupperneq 3
VERA „bréf” Hótel Vík Reykjavík OFBELDI Kaera Vera! Viö útkomu 3. tbl. '86 af Veru, þar sem ofbeldi gegn börnum var tekið fyrir, barst lesendum þínum efni sem brýn þörf var á aö fjalla um á opinberum vettvangi. Efni þessa blaðs fjallaði um óhugnanlegan veruleika sem fólki tekst að loka augunum fyrir, á meðan hann ekki beinlínis snertir Það sjálft. En þetta eru staðreyndir sem verður að horfast í augu við. Væri því vel ef þessu væri fylgt eftir. Svo sem kunnugt er seldist þetta blað óvenju vel og er það gott að það hafi náð til svo margra. Það er engu að síður athyglisvert og um leið kaldhæðið að ofbeldi sé svo góð söluvara. Við skulum vona að sem flestir hafi keypt blaðið til að ^esa málefnalega umfjöllun Veru um of- beldi gegn börnum. Að lokum langar mig til þess að koma á framfæri ósk um að blaðið taki fyrir og geri grein fyrir sinni afstöðu gagnvart notkun starfsheita. Það kemur greinilega fram í málnotkun margra í dag að einhvers mis- skilnings gætir varðandi starfsheiti. Nú þegar mörkin milli hefðbundinna karla- og kvennastarfa riðlast þarf að koma á sam- ræmingu og einhverri reglu í sambandi við notkun starfsheita í málinu. Ljósmynd: Tuija Lindström. MAKALAUS Meö kveöju, Hilda. KONA Nú hefur þú aðgreint atvinnurekanda og ástmann stæsta skrefið er stigiö Þú mátt nú hafa skoðanir Þú þolir afleiðingarnar Þú hefur valið. Frelsið Þú þarft að læra að höndla valdið. Þú þarf að venjast sjálfstæðinu. Þú ert aðdáunarverð ein af konunum Sigríður Rósa frá Eskifirði hringdi í okkur til að þakka fyrir lesendabréfið um einstæðar mæður, sem var í síðustu Veru. Orð í tíma töluð sagði Sigríður Rósa og stakk svo upp á betra nafni á mæður án karlmanns: ,,Af hverju köllum við þær ekki makalausar mæður, orðið hefur tvær merkingar og báðar eiga vel við.“ Takk fyrir hringinguna Sigríður Rósa. Og við viljum nota þetta tækifæri til að benda ykkur á að lesendadálkurinn er öll- um opinn og að það er einmitt fínt að senda bréfin símleiðis — síminn hjá Veru er 22188 og skrifstofan er opin frá 14—16. Ragnhildur Kristjánsdóttir. Nú er skrafað og skeggrætt í þjóðfélaginu allt upp til hins háa Alþingis um þá miklu grósku sem hlaupið hefur í fjölmiðlun landans. Látið er í veðri vaka að við munum lifa því betra lífi sem fleiri snúa sér að því að snúa skífum og mæla misjafnlega gáfuleg orð á öldum Ijósvakans til afþreyingar fyrir landslýð. Mér þykir trúlegt að nú þegar starfi fleira fólk hér við fjölmiðlun en við að draga fisk úr sjó og stefni hraðbyri í margfalda þá tölu. Hvaðan skyldu eiga að koma peningar fyrir öllu þessu? (rás 2, Bylgjan, svæðisútvörp hist og her, nokkur stykki sjónvarpsstöðvar). Helst er að skilja að þeir eigi að koma frá auglýsendum. Hvaðan skyldu þeir fá peninga til að auglýsa fyrir? Náttúrlega frá þeim sem kaupa af þeim vörur. Altsvo, þvi meira sem þeir auglýsa þeim mun dýrari verður varan. Áreiðanlega verður vöruverðið hærra en ekki lægra á landsbyggðinni en suð- vesturhorninu sem mun þó sitja eitt að flestum þessum nýju fjölmiðlum. Svo er nú með réttlætið á því sviði! Frelsið lifi! Jæja, þá sný ég mér að eftirþönkum eftir leiðtogafund. Hversu ömurleg sem út- koman úr honum var, þá keppast menn við að lofa og prísa alla auglýsinguna sem ísland fékk um heimsbyggðina. Hún er góð og blessuð ef okkur skyldi ganga betur að selja okkar framleiðslu eftirleiðis, en ég set stórt spurningarmerki við ágæti þess að margfalda hingað ferðamannastrauminn. Erum við svona áfjáð í að gerast þjónar? Þeir háu herrar sem glaðastir eru yfir þessum framtíðarhorfum, reikna náttúrlega ekki með að stjana sjálfir við ferðamennina, nóg af kvenfólki til þess. Mér finnst það ekki vera tilhlökkunarefni að landið verði krökkt af útlendingum sumar- langt. Ég prísa mig sæla að búa á stað sem er nógu langt úr alfaraleið til þess að lítið er um ferðamenn. Á ferðamannastöðum erlendis virðast íbúarnir týnast í fjöldann og vissulega er allt eðlilegt líf þeirra úr skorðum gengið. Stöku sinnum hef ég séð skína út úr fólki á þannig stöðum óbeit á innrásarliðinu, og ég skil og virði það fólk. Líklega er óþarfi að gera sér grillur út af þessu, blessað íslenska veðurfarið sér fyrir því. Vonandi kemur aldrei sú tið að við hugsum til þess með eftirsjá hve stórkostlegt það hafi verið að búa ein í okkar fagra landi. Með bestu óskum um frið og farsæld til ykkar allra. 3

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.