Vera - 01.11.1986, Side 14

Vera - 01.11.1986, Side 14
ELDHÚS FRAMTÍÐARINNAR? í kvennasmiöjunni í Uppsölum, sem haldin var 21.-25. maí s.l. undir kjörorðinu KVINNOR VISAR VAGEN (konur vísa veginn!) sýndu samtök kvenarkitekta (KVINNORS BYGGFORUM) þetta eldhús sem œtti á ýta undir sam- vinnu viö matargerð og önnur eldhúsverk. Hvernig líst ykkur d? f sýningarskrdnni segja þœr írd því að skv. nýlegri könmrn taka 71% karla aldrei til og 73% búa aldrei til mat. Það em íyrst og fremst konur sem vinna og dveljast í íbúöahverfum, samt em það yfirleitt karlar sem skipu- leggja hveríin og teikna húsin. Fyrir síðustu sveitar- stjórnarkosningar í Svíþjóð vom aðeins 16% nefndar- manna í bygginganefndum konur þar af aðeins 6% for- menn. Hvernig skyldi það vera á íslandi núna? Kvenna- framboðið í Reykjavík átti fulltrúa í bygginganefnd og skipulagsnefnd á síðasta kjörtímabili en Kvennalistinn á enga fulltrúa í þessum nefndum (sjá síðasta hefti Vem). AFMÆLIS- HÁTÍÐ Bandarísku kvenrétt- indasamtökin NOW (National Organization oí Women) héldu kampa- kátar upp á 20 ára afmœli sitt í Denver í Colorado- fylki í júní s.l. Kœti þeirra stafaði ekki síst af niður- stöðum könnunnar frétta- blaðsins Newsweek sem birtist 31. mars s.l. Sam- kvœmt þeim álitu 56% bandarískra kvenna sig vera kvenréttindakonur, 71% vom þeirrar skoðunar að kvennahreyfingin hefði haft jákvœð áhrif á líf þeirra. Það sem ekki er minnst um vert, og kemur e.t.v. einhverjum á óvart, er að um 88 af hundraði kvenna á aldrinum 18 til 29 ára álíta að kvennahreyí- ingin hafi haft jákvœð áhrif á líf þeirra. Þetta má kalla gott veganesti fyrir nœstu 20 árin! KONUR í ÞRIÐJA HEIMINUM Margir vilja gera lítið úr árangri kvennaáratugar S.Þ. Við verðum að gjalda varhugar við slíkum úrtöl- um. Þœr eiga ekki við rök að styðjast og það er vísust leið til að draga kjark úr okkur og halda okkur niðri ef við látum telja okk- ur trú um að erfiði okkar sé unnið fyrir gíg. í septemberheíti frétta- tímaritsins South, sem gef- ið er út í Bretlandi og er einskonar Time og News- week fyrir Þriðja heiminn em bókadómar helgaðir bókum um konur í Þriðja heiminum. Þar segir í inn- gangi að það sé ótvírœð- ur árangur kvennaára- tugarins að hinn vanrœkti helmingur mannkyns sé kominn á dagskrá heims- ins. Mikilvœgasti árang- urinn sé e.t.v. að hafa gert konum um allan heim ljóst að þrátt fyrir allt sem skilur þœr að þá eiga þœr það sameiginlegt að þœr eru lítilsvirtar í heimi karla og að þœr búi við misrétti og kúgun sem gegnsýri allt þeirra líí og það sem meira er; stjórnarhermm þessa heims hefur líka oröið þetta ljóst. Þessi nýi skilningur á ekki síst rœtur að rekja til þeirra bóka um konur og líí þeirra sem nú ílœða yfir markaðinn. Meö sumum þessara bóka öðlast konur sem kvenna- áratugurinn hefur ekki náö til andlit og rödd. Eða hver hefur áður hirt um að skrifa um þátt kvenna í hrísgrjónarœkt- inni í Suð-austur Asíu, um konurnar á bak við blœj- umar í Arabalöndum, um konurnar sem þjást og stríða undir aðskilnaðar- stefnunni í Suður Afríku. Þannig mœtti lengi telja. Ef einhver hefur áhuga á að fá bókatitla um konur í Þriðja heiminum getur hún snúið sér til Guðrúnar Ólafsdóttur í síma 25088. FÓSTUR- EYÐINGAR Fóstureyðingar em víð- ar á dagskrá en hér á landi. í Bandaríkjunum hafa samtök sem berjast á móti úrskurði hœstaréttar frá 1973 um frjálsar fóstur- eyðingar ekki látið sér nœgja blaðaskrií, funda- höld og undirskriítasafn- anir. Þau hafa staðið fyrir hreinum ofbeldisaögerð- um. Heilsugœslustöðvar sem framkvœma íóstur- eyðingar hafa orðið fyrir sprengjuárásum, hjúkmn- arfólki hefur verið hótað og orðið fyrir aðkasti að ekki sé talað um konur sem hafa leitað eftir fóstur- eyðingu. En þótt mikið beri á þess- um samtökum er fylgi þeirra ekki eins mikið og þau vilja vera láta. í mars síðastliðnum efndu kvenréttinda- samtök til fjöldagöngu undir kjörorðinu National March for Women’s Lives (Þjóðargangan fyrir lííi kvenna). Um 125.000 manns tóku þátt í göng- unni í Washington, og hafa aldrei fleiri tekið þátt í aðgerö fyrir réttindum kvenna í sögu Bandaríkj- anna (heimsins?). í Los Angeles söfnuðust saman yfir 30.000 manns í úr- hellis rigningu og roki. Allar fremstu baráttu- konur Bandaríkjanna og íulltrúar fjölmargra sam- taka kvenna tóku þátt í þessum aðgerðum. í Washington tóku nokkrar nunnur virkan þátt í göng- unni jafnvel þótt þœr œttu á hœttu að vera reknar úr reglum sínum. r(^ 14

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.