Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 28

Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 28
Frjálshyggjan -ný stefna í dag- vistarmálum I \ll % L' / ,j Á borgarstjórnarfundi þann 16. okt. sl. stóðu Sjálfstæðismenn og fulltrúar Alþýðuflokksins saman að samþykkt um dagvistarmál þar sem mörkuð er sú stefna að sveitarfélögin „hafi al- gert forræði um rekstur og skipan innri málefna dagvistarstofnana“. Sagt með öðrum orðum þá þýðir það að sveitarfélögin þurfa ekki að hlíta neinum lögum eða reglugerðum hvorki hvað varðar aðbúnað, starfsfólk né uppeldisstarf á dagvistarheimilum. Kvennalisti og Alþýðu- bandalag greiddu atkvæði gegn þessari sam- þykkt. í þessu máli sannast spakmælið að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Upphaf málsins var tillaga frá mér i borg- arráöi um að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði ríkis- valdsins á framlagi sínu til uppbyggingar dagvistar- stofnana. Bjóst ég við að hægt væri að ná samstöðu um slíka tillögu enda hefur borgarstjórn a.m.k. tvisvar áður mótmælt slíkum niðurskurði. Borgarstjóri tók sér hins vegar langan umhugsunarfrest og að honum loknum lagði hann fram tillögu þar sem segir að það séu út af fyrir sig eðlilegt að uppbygging dagvistarstofnana sé al- farið verkefni sveitarfélaga fremur en ríkisins. Forsend- ur fyrir slíku fyrirkomulagi séu þó að sveitarfélögum sé bættur sá tekjumissir sem þau verði fyrir og svo hitt að þau fái það „algera forræði" sem fyrr er nefnt. Meiri- hluti borgarráðs og síðan borgarstjórnar samþykkti þessa tillögu og þar með urðu tilburðir mínir til að mót- mæla niðurskurðinum að engu. Sjálfsagt sjá einhverjir — þar á meðal borgarfulltrúi Alþýðuflokksins — í þessari tillögu sjálfstæðisyfirlýs- ingu sveitarfélaga. Þau eru tákn valddreifingar, ríkis- valdið tákn miðstýringar. Málið er bara ekki svona ein- falt. Menn mega ekki gleypa slagorðið um sjálfstæði sveitarfélaga hrátt né heldur láta Sjálfstæðismenn um að matreiða það. Það má vel hugsa sér að færa aukin verkefni yfir á sveitarfélögin og sjá þeim þá jafnframt fyrir auknum tekjustofnum, en að undanskilja þau al- mennum kröfum um lágmarksgæði félagslegrar þjón- ustu er alveg fráleitt. Ef þessar hugmyndir næðu fram að ganga á öllum sviðum hefði það í för með sér mjög skertan rétt til menntunar, heilbrigðisþjónustu, öldrun- arþjónustu, félagslegrar framfærslu, þjónustu við fatl- aða og svona mætti lengi telja. Þar með er sjálfstæði sveitarfélaga orðið á kostnað íbúanna. Það kann að virðast sem ég sé að gera úlfalda úr mýflugu en ég er sannfærð um að svo er ekki. Þróun undanfarinna ára gengur öll í þá átt að draga úr opinberri þjónustu en efla einkarekstur. í rauninni hefur þetta gerst nokkuð sjálf- krafa sem afleiðing af kjaraskerðingum og láglauna- stefnu. Þegar opinberir starfsmenn s.s. kennarar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, læknar o.fl. eru orðnir verulega illa haldnir í launum verður einkareksturinn girnilegur kostur og fólk fæst ekki til starfa hjá hinu opinbera. Þannig þjónar lág- launastefnan beinlínis þeim tilgangi að skera niður félagslega þjónustu án þess að stjórnvöld þurfi að brýna busana. Samþykktin í borgarstjórn er angi af þessu máli. Rekstrarkostnaður dagvistarheimila hefur löngum ver- ið Reykjavíkurborg þyrnir í augum. Er nánast litið á þennan rekstur sem bagga á borginni. Kröfur til þessa reksturs hafa þó án efa gert það að verkum að einka- aðilum hefur ekki þótt hann fýsilegur. Hins vegar myndi málið horfa öðruvísi við þegar búið væri að losa sveitar- félögin við allar kröfur varðandi aðbúnað og starfsfólk. Þá opnast leiðin til stóraukins einkareksturs, þar sem fólk á engan rétt annan en þann að kaupa þá vöru sem er á boðstólum og borga fyrir hana það verð sem upp er sett. Þá er hætt við að það gleymist að dagvistar- heimili eiga að stuðla að auknum þroska barna en ekki vera geymslustaðir. Þess vegna bókaði ég líka í borgar- stjórn að í anda frjálshyggjunnar væri nú gerð tilraun til að skerða rétt og draga úr kröfum til góðrar félagslegrar þjónustu. Næði þetta fram að ganga byði það heim efnahagslegri mismunun og væri bein ógnun við það félagskerfi sem náðst hefur fram með þrotlausri vinnu og baráttu um áratuga skeið. Þess vegna skiptir það meginmáli, ekki síst fyrir konur, að berjast gegn ,,frels- istilburðum" Sjálfstæðismanna i dagvistarmálum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.