Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 36
persónurnar í myndinni, Salo-
mon og eiginmaður Stellu,
eru hins vegar taugaveiklaðir
og veikgeðja og sem slíkir
gera þeir oft mistök sem fá
hláturstaugar áhorfenda til
þess að sprikla. Stella um-
gengst þá báða á frekar móð-
urlegan hátt og þegar hún er
að yfirgefa sumarhúsið sem
þau voru öll stödd í, og Salo-
mon og eiginmaðurinn voru
að slást um hvor þeirra ætti
að fylgja Stellu í bæinn, virtist
henni vera nákvæmlega
sama um hvor auminginn
fylgdi henni.
Þó að það séu slegnar
nokkrar feilnótur í myndinni
Stella í orlofi og hún sé mjög
banal á köflum, eins og t.d. í
síðari hlutanum þegar verið
er að vinda utan af öllum
misskilningnum, þá er mynd-
in engu að síður iðandi af
fjöri. Flestir leikararnir, undir
leikstjórn Þórhildar, eru líka
sannfærandi í sínum hlutverk-
um, en allt þetta gerir það að
verkum að það er vel þess
virði að sjá myndina, ef mann
fýsir í afþreyingu eitthvert
napurt eða fagurt haust-
kvöldiö.
Kristín Ólafsdóttir
LAUSAR STOÐUR HJA
REYKJAVÍKURBORG
Forstöðumaður/
Matráðskona
Staða forstöðumanns við dagheimilið
Hamraborg v/Grænuhlíð.
Staöa matráðskonu við dagheimilið
Laugaborg v/Leirulæk.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstr-
ur á skrifstofu dagvistar í símum 27277 og 22360 og for-
stöðumenn viökomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sér-
stökum eyðublöðum sem þar fást.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstrur/
Aðstoðarfólk
Fóstrur og aðstoðarfólk vantar á eftirtalin heimili ýmist
í heilar eða hálfar stöður.
Lækjarborg — Brákaborg
Kvistaborg — Laugaborg
Austurborg — Dyngjuborg
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstr-
ur á skrifstofu dagvistar í símum 27277 og 22360 og for-
stöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar. Pósthússtræti 9, 6. hæð á sér-
stökum eyðublöðum sem þar fást.