Vera - 01.11.1986, Side 38
hennar er ekki svört/hvít eins
og Veruleiki reynir aö lýsa.
Og þar sem leikritinu Veru-
leika var líka ætlað aö vera
innlegg í umræðu dagsins í
dag um konur og kvenna-
baráttu, má benda á aö sú
kvennahreyfing sem varð til í
lok 7. áratugarins í tengslum
viö stúdentabyltingar og nýjar
vinstri hreyfingar hamraöi
stööugt á því aö öll kven-
frelsisbarátta væri líka
barátta fyrir betra og inni-
haldsmeira einkalífi, hiö
persónulega var pólitískt og
öfugt. Þetta sjónarmið varö
aö vísu undir á tímabili í
kvennahreyfingunni, þegar
kvennabaráttan átti fyrst og
fremst aö vera hluti af stétta-
baráttunni, en hefur aldeilis
fengiö endurnýjaöan slagkraft
meö þeirri kvennahreyfngu
sem viö þekkjum hér á landi
undir merki Kvennaframboða
og Kvennalista. Þó hefur
kvennahreyfingin alltaf lagt
áherslu á aö konur þekktu
sjálfar sig, hlustuðu á eigin
rödd og tilfinningar. Þaö i
sjálfu sér þýddi ekki endilega
aö konur ættu aö foröast aö
stofna til alvarlegra ástarsam-
banda viö karlmenn, eöa
hætta aö eiga börn, heldur
var tilgangurinn sá að rýna í
eðli og tilgang ástar og hjóna-
bands. Afleiðingin varö m.a.
sú að konur fóru að gera
öðruvísi kröfur til sambúöar
viö karlkynið. Ætli þaö séu
ekki frekar karlmennirnir sem
hafa oröið útundan og dregist
aftur úr, eftir aö konur fóru aö |
athuga sinn gang — margir
uröu hreinlega skíthræddir —■
öryggi þeirra var ógnað —
enda voru þessar nýju, sterku
konur í byrjun oft grimmar og
herskáar í afstöðu sinni til
karla og karlaveldis t.d. í
gömlu Rauðsokkahreyfing-
unni hér hjá okkur. Og þann-
ig er dóttirin Nína í leikriti
Súsönnu. Hún hljómar eins
og enduróp frá dögum Rauð-
sokkahreyfingarinnar og er
því í dag eins og hver önnur
tímasekkja. Hún er rétt aö
byrja aö fatta aö hún er kyn
númer tvö og eins og sumar
konur í upphafi kvennahreyf-
ingarinnar, sem höföu svo
mikla minnimáttarkennd yfir
því aö vera konur, þá vill hún
helst veröa eins og kall og
helst vera klárari en þeir.
Nina minnir helst á þessar
óþreyjufullu, byltingarsinnuðu
LEIGA
HUSWEEHS
Við viljum vekja athygli leigjenda og leigusala á því,
að Félagsmálaráðuneytið gefur út eyðublað fyrir leigusamninga
um íbúðarhúsnæði. Notkun þess tryggir réttindi beggja aðila.
HÚSEIGENDASAMBAND
ÍSIANDS
Flið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga um íbúðarhúsnæði fæst
án endurgjalds hjá bæjar- og sveitarstjómum og á skrifstofum okkar.
Önnur samningseyðublöð eru ekki gild
i=§=iHúsnæðisstofnun ríkisins
Leigjendasamtökin