Vera - 01.11.1986, Side 39

Vera - 01.11.1986, Side 39
kvenfrelsistýpur, sem svo auðvelt er að skopast að. það var til fullt af þeim í Evrópu og Bandaríkjunum UPP úr 1970, þær voru ekki bara á móti karlaveldinu, heldur ömuðust líka við húsmæðrum, fannst þær °Þarfar og hallærislegar. En ^vennahreyfingin hefur breyst °9 geri ráð fyrir að ung stúlka ár'ö 1986 með háskólapróf I fólagsvísindum og heimspeki, (sem eru engin smávegis fræði) hafi líka breyst. Eða hefur Nína í Veruleika Súsönnu ekkert lært í há- skólanum? Aftur á móti er móðirin ^iklu trúverðugri fulltrúi sinn- ar kynslóðar og betur samin Persóna af hálfu Súsönnu. i-iún hefur heldur ekkert rugl- ast af menntun og kvenna- baráttu, hún er bara ósköp Venjuleg kona, sem virðist Vera nokkuð sátt við sitt hlut- skipti og vill engar breytingar. Súsönnu er greinilega mikið niðri fyrir í Veruleika sinum og stundum tekst uenni að semja hnyttin til- Sv°r, en ekki tekst henni að semja leikverk úr samtali Peirra mæðgna. Til þess er texti hennar of spennulaus og raunsæislegur. Þetta raunsæi er svo undirstrikað í umgjörð eða leikmynd Kuregej Alexöndru, en leik- stjórinn reynir á stöku stað að brjóta það upp og vinna gegn textanum, en það virkar oft- ast bæði yfirspennt og til- gerðarlegt. Leikkonurnar tvær gera sitt besta úr þessum efnivið. Guðný Helgadóttir tekst betur í hlutverki móður- innar að skapa lifandi persónu, en Ragnheiður Tryggvadóttir er ekki beint öfundsverð í prédikunarrullu dótturinnar í heild sinni minnir þetta leikhús í Hlaðvarpanum meira á plakat og áróðursleik hús vinstri róttæklinganna upp úr 1968, heldur en nokkra leiklist, enda finnst mörgum list og listsköpun bara vera pjatt á okkar dögum. Þessir róttæklingar ætluðu sér að frelsa heiminn á einu bretti og helst á einni nóttu. En byltingin tekur sinn tíma og því miður þá tekur það líka tíma að skrifa leikrit, leiklistargyðjan lætur ekki leika á sig. Hlín Agnarsdóttir Opið hús í Hlaðvarpanum Hlaövarpinn hefur tekiö upp þaö ný- maeli að vera meö „opið hús“ á mánu- dagskvöldum kl. 20.30. Boöiö er upp á léttar veitingar og forvitnilega dagskrá. Dagskráin fram til jóla verður sem hér segir: Mánudagur 10. 11. Herbrúöir. Inga Dóra Björnsdóttir flytur erindi og stjórnar umraeöum. Mánudagur 17. 11. Hvernig er að vera unglingsstúlka í dag? Snjólaug Stefánsdóttir reifar málin. Mánudagur 24. 11. Hver gengur meö börn framtíðarinn- ar? Ný taekni á sviði frjóvgunar og meö- göngu. Umsjón: Ulrica Schildman. Mánudagur 1. 12. Baccinjukvöld. Vinsmökkun og vinmenning. Umsjón: Einar Thoroddsen. Mánudagur 8. 12. Lækningamáttur grasa. Ásta Erlingsdóttir grasalaeknir fjallar um grasalækningar. Mánudagur 15. 12. Kynning og upplestur úr jólabókum eftir konur. Umsjón: Helga Kress. Láttu nú sjá þig, njóttu veitinganna, samvistanna og láttu i þér heyra i um- ræðunum. Hér ereitthvað fyrir okkur all- ar! Samkeppni um Ráðhús Reykjavíkur Borgarstjóm Reykjavíkur efnir til samkeppni um tillögu að ráðhúsi í Reykjavík. Heimild til þátttöku hafa félagar í AÍ og þeir, sem leyfi hafa til að leggja aðalteikningar fyrir Byggingarnefnd Reykjavíkur og uppfylla ákvæði 12. gr. byggingarlaga nr. 54/1978. Trúnaðarmaður dómnefndar, Ólafur Jens- son, Byggingaþjónustunni v/Hallveigarstíg, afhendir keppnisgögn frá og með miðvikudeginum 22. október 9egn skilatryggingu að upphæð kr. 2.000,00. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns í síðasta lagi 4. æars 1987. Reykjavík, 22. okt. 1986 Borgarstjórinn í Reykjavík Hugsaöu vel um Veruna þína. Nú er hægt að fá möppu á 200 kr, merkta Veru í Kvennahúsinu, Hótel Vík. Þá er líka hægt að fá Veru frá upphafi, ef þig vantar í safnið. Hafðu samband, síminn er 22188. Bestu kveðjur, 39

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.