Vera - 01.08.1997, Qupperneq 9

Vera - 01.08.1997, Qupperneq 9
X ynjaskiptur vinnumarkaður krónur til náms á fyrsta háskólastigi og fengum 15 umsóknir,“ segir Guðmundur. „Þessi styrkur verður veittur árlega, að minnsta kosti á meðan ástandið er svona í greininni. Jafnréttisáaetlunin er að öðru leyti í mótun hjá okkur en eitt af því helsta sem við viljum gera er að reyna að jafna tekjur á milli kynjanna með því að draga úr yfirvinnuþættinum. Það er aðallega þar sem launamunurinn kemur fram.“ Erfítt að stýra námsvali Skortur á konum í stétt verkfræðinga kemur ekki á óvart þegar litið er á innritunartölur í Háskóla ís- lands. Sumar greinar innan Háskólans eru nær ein- okaðar af öðru kyninu og er verkfræðin ein þeirra. Konur eru aðeins 16% nema í verkfræði og hlutur þeirra virðist lítið sem ekkert vera að aukast því af skráðum nýnemum í verkfræðideild í júní 1997 voru 106 karlar en 11 konur. Það er þó hjúkrunarfræðin sem á „vinninginn" í kynjaskiptingunni, því þar eru alls fimm karlmenn skráðir til náms á móti 426 kon- um! Háskólaráð setti haustið 1995 á stofn milli- fundanefnd um jafnréttismál og var formaður henn- ar Valgerður Edda Benediktsdóttir, fræðimaður við Raunvísindastofnun Háskólans. Nefndin vann drög að jafnréttisáætlun og lagði meðal annars til að jafn- réttisnefnd yrði komið á fót sem einni af fastanefnd- um háskólaráðs. Sú tillaga náði fram að ganga og mun nýja jafnréttisnefndin hafa tillögurnar að leiðar- ljósi við störf sín, að sögn Valgerðar. „Það er erfitt að eiga við skiptingu kynjanna eftir námsgreinum því það er eiginlega ekkert hægt að stýra inntöku nemenda," segir hún. „Það þarf ekkert nema stúdentspróf til að komast inn í skólann, nema í greinum þar sem fjöldatakmarkanir eru. Erlendis veit ég til þess að notaðir séu einhvers konar kynja- kvótar í háskólum og þá tekið inn það kynið sem minna er af í tiltekinni námsgrein. En það myndi varla ganga hér. Það yrði bókstaflega allt vitlaust.“ Valgerður bendir á að mikið hafi þegar áunnist í jafnréttismálum í Háskóla íslands sem megi meðal annars sjá á auknum hlut kvenna í ýmsum greinum, svo sem lögfræði, viðskipta- og hagfræði og læknis- fræði. „Það er ekki svo langt síðan að það voru mjög fáar konur í Háskólanum yfirleitt en nú er hlutur kvenna um eða yfir 40% í mörgum deildum. Það er helst í hjúkrunarfræði, verkfræði og einhverjum greinum innan raunvísindadeildar þar sem hlutur annars kynsins er þriðjungur eða minna. Þetta eru þær greinar þar sem aðgerða er helst þörf.“ Jafnréttisáætlunin tekur einnig til launajafnréttis og stöðuveitinga við Háskóla íslands en meirihluti háskólakennara eru karlmenn. Þeir eru yfir 90% prófessora en konum hefur þó fjölgað nokkuð und- anfarin ár í lektorsstöðum og eru nú um helmingur lektora. „Þær konur sem eru lektorar núna eiga eftir að vinna sig upp og verða dósentar og prófessorar," segir Valgerður. „Þetta er að koma að einhverju leyti en það þarf að hjálpa til og þess vegna var þessi áætl- un gerð.“ Karlmenn fást ekki fyrr en kaupið hækkar Utan háskólastigsins er kennararstarfið að mestu leyti kvennastarf, sérstaklega í grunnskólum. Á árun- Kynjaskipting eftir námsgreinum 342 444 Karlar Konur 825 802 488 0 205 156 ■o ffl 254 196 £ 413 257 35 17 235 44 £ ffl £ 454 281 <b % <n ■o > Heimild: Kennsluskrá Háskóla íslands 1997-1998. Miöaö er viö heildarfjölda nema skólaáriö 1996-1997. um 1974 til 1994 útskrifuðust alls rúmlega 2000 manns með kennarapróf og kennsluréttindi frá KHÍ og HÍ. Þar af voru nær 80% konur en aðeins rúm 20% karlar. Erla Kristjánsdóttir, námsstjóri Kenn- araháskóla íslands, segir kynjahlutföll í kennaranámi lítið hafa breyst undanfarin ár. „Upprunalega var kennarastarfið kvennastarf eins og öll umönnunar- og þjónustustörf," segir hún. „Karlmenn voru að vísu á tímabili fleiri í kennarastéttinni en nú, en þeir voru aldrei í meirihluta hér á íslandi. Karlmönnun- um fjölgar þó þegar komið er upp í framhaldsskóla og á háskólastiginu eru karlmenn í meirihluta.“ Kannanir hafa bent til þess að mörg börn, sérstak- lega stráka, vanti karlkynsfyrirmyndir. Fjöldi barna er alinn upp af einstæðum mæðrum, eða á heimilum þar sem faðirinn er lítið heima. Síðan fara þau til dagmömmu, á dagheimili, í leikskóla og loks í skóla, þar sem flestir eða allir starfsmennirnir eru kven- kyns. „Þetta er vandamál, sérstaklega með yngstu krakk- ana,“ segir Erla. „Sumir litlir strákar sjá ekki karl- mann nema í fjarlægð. Það er þó jákvætt að konum hefur fjölgað í skólastjórastöðum, sérstaklega hér í Reykjavík. Það er því af sem áður var þegar allir skólastjórar eða yfirkennarar voru karlmenn en kon- urnar kennarar. Það kenndi krökkunum að tengja karlkynið við valdastöður og því er þessi breyting til batnaðar." Erla sagði ekki standa til að hafa kynjakvóta og taka fremur karlkynsnemendur inn í skólann, eins og dæmi eru um annars staðar á Norðurlöndum. „Und- anfarin ár höfum við verið með þrefalt fleiri umsækj- endur en komast inn í skólann og það er eingöngu farið eftir hæfni þegar valið er úr þeim hópi. Við höf- um ekki góða reynslu af því að taka inn karlmenn sem standa ekki eins vel að vígi og konurnar.“ En hvemig er þá hcegt að jafna hynjaskiptingu innan kennarastéttarinnar? „Ég held að þetta breytist ekki nerna launin breyt- ist. Ef við viljum fá karlmenn sem kennara þá verð- ur að hækka launin fyrst og það á við um fleiri kvennastéttir. Ég held að við verðum að byrja þar.“ Sv.J. „Erlendis eru kynjakvótar í há- skólum, og þá tekið inn það kynið sem minna er af í tiltekinni námsgrein, en það myndi varla ganga hér. Það yrði bókstaflega allt vitlaust." Það er þó já- kvætt að konum hefur fjölgað i skólastjórastöð- um, sérstaklega hér í Reykjavík. Það er því af sem áður var þegar allir skóla- stjórar eða yfir- kennarar voru karlmenn en kon- urnar kennarar. 9

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.