Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 28

Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 28
iðtal „Anna Þrúður er fyrsti formaður Rauða kross íslands sem er kona og mér er sagt að ég sé fyrsta konan sem er framkvæmdastjóri hjá Rauða krossinum í Norður-Evrópu,“ segir Sigrún. „Á vissan hátt er Rauði kross- inn íhaldssöm hreyfing, ekki síst í N-Evrópu þótt þar hafi átt sér stað breytingar á síðustu árum. Konur eru sjaldnast þar í æðstu stjórnunarstöðum. Því er öfugt farið í Afríku og Austur-Evrópu þar sem konur eru víða bæði formenn og framkvæmdastjórar. Það má því segja að íslenski Rauði krossinn sé tilbúnari en mörg önnur landsfélög í Evrópu að horfa framhjá kynferði fólks, enda nokk- uð jöfn skipting á meðal kynjanna hér á landi.“ „Ef litið er yfir alla heimsbyggðina," segir Anna Þrúður, „þá eru það konur og börn sem þurfa mest á Rauða krossinum að halda og þeir sem hafa verið virkustu sjálfboðalið- ar hreyfingarinnar, eru konur.“ Haldið þið að ímynd RKI hafi breyst eft- ir að þið sem konur, tókuð við þessum ábyrgðarstörfum ? „Það er einungis tæpt ár síðan ég tók við formennsku í Rauða krossi íslands," segir Anna Þrúður, „og hver formaður hefur auð- vitað sínar áherslur. En í gegnum tíðina hef- ur það tíðkast að leita eftir stjórnarmönn- um, sérstaklega formönnum, meðal þekktra athafnamanna í þjóðfélaginu, oftast meðal lækna eða lögfræðinga. Eg er ekki að rýra gildi þeirra með því að segja þetta, síður en svo, en ég held að ég sé fyrsti formaðurinn sem kem alla grasrótarleiðina. Kannski er það tímanna tákn og það sem koma.skal." Sigrún segist sammála Önnu Þrúði og telur að um sé að ræða ákveðnar áherslubreyting- ar innan félagsins. Nú sóttu tnjög margir um stöðu fram- kvæmdastjóra RKI, jafnt karlar sem konur. Margir innan breyfingarittnar þekkja þig, Sigrún, en hvað tneð út á við - hvemig hef- ur þér verið tekið altnennt? „Auðvitað voru ekki allir sáttir við að ég væri valin, þannig er það alltaf þegar valið er á milli einstaklinga. Ég er hinsvegar í mjög góðum tengslum við Rauða kross fé- laga, þeir þekkja mig og ég legg mikla áherslu á og met mikils að vera í góðum samskiptum við það fólk og aðra sem Rauði krossinn á samskipti við í þjóðfélaginu. Það tel ég fyrir mestu. Ég sækist ekki sérstaklega eftir að vera í sviðsljósinu sjálf en legg þó mikið upp úr að Rauði krossinn sé vel kynntur og eigi sér góða málsvara. Mér finnst ég búin að læra óskaplega mikið á þessum tíma en það kom í minn hlut að gera ýmislegt fyrst eftir að ég tók við sem ekki varð til að afla mér vinsælda. Hér hafa átt sér stað umtalsverðar skipulagsbreytingar og eins og við vitum eru breytingar oft og tíðum erfiðar fyrir fólk. Þetta var erfiðara en ég átti von á, svona fyrst í stað, en þetta er búinn að vera mjög dýrmætur tími. Ég naut trausts og stuðnings þáverandi formanns, Guðjóns Magnússonar, og ég held að það hafi skipt sköpum fyrir mig. Sömuleiðis er það mér mjög mikilvægt að eiga gott sam- starf við Önnu Þrúði, aðra stjórnarmenn og starfsmenn félagsins sem er dugmikill og samhentur hópur fólks." „Hún gekk í gegnum allt sem hægt var að leggja á nýjan framkvæmdastjóra,“ segir Anna Þrúður. „Fyrir utan þessi stóru áföll, eins og snjóflóðin á Súðavík og Flateyri, þá voru önnur krefjandi verkefni sem þurfti að vinna að innan hreyfingarinnar. Ég tel að við höfum verið mjög heppin að fá Sigrúnu sem framkvæmdastjóra. Starf framkvæmda- stjóra er mjög annasamt og felur í sér fram- kvæmd stjórnarstefnu og daglegt amstur. Stjórnarseta felur þó í sér mikla ábyrgð, það þarf að vera traust og einlægt samstarf á milli formanns, stjórnar og starfsfólks." Það er greinilega gott samstarf ykkar á milli, skýtur blaðamaður Veru inn í. „Já, já,“ samsinna þær báðar, „og það skiptir alveg gríðarlegu miklu máli.“ Nú em þið fulltrúar tveggja kynslóða kventta og báðar t áhrifamiklum stöðurn. Hvaða vcentingar gerðu mceður ykkar til ykkar þegar þið voruð yngri? „Eins og móðir mín hvatti mig til náms, langar mig að sjá dóttur mína finna sinn stað í lífinu," segir Sigrún, „en að sjálfsögðu vil ég að hún klári menntaskólann. Hjá mér stóð alltaf til að fara í framhaldsnám. Það sama var að segja um systkini mín. Foreldr- ar okkar ætluðust til þess og studdu vel við bakið á okkur. Ég ætlaði reyndar fyrst í lög- fræði en vegna ýmissa ástæðna ákvað ég að fara í félagsfræðina og sé ekki eftir því.“ „Móðir mín vann sem ung stúlka á Far- sóttarhúsinu," segir Anna Þrúður. „Hana langaði alltaf að læra hjúkrun en á þeim tíma þurfti að fara til Danmerkur til að læra hjúkrunarfræði. Aðstæður hennar gerðu það að verkum að hún fór ekki í nám, en draumur hennar um að verða hjúkrunar- kona gekk yfir til inín. Hún vildi að ég lærði hjúkrun. Ég hugleiddi það um tíma, en ég held að ég hafi spjarað mig ágætlega þó ég hafi ekki farið í það nám. Ég á eina dóttur og hún fór eitt ár í hjúkrun, en ég held að ég hafi ekki haft nokkur áhrif á það. í dag er hún flugfreyja og segir að hún ætli að verða eins og mamma sín og blómstra“ á gamals- aldri." Finnst ykkur kynferðið skipta máli í starfi RKÍ? „Ég hef aldrei talið mig kvenréttinda- • Rauði krossinn starfrækir Vin, athvarf fyrir geðfatlaða. • Rauðakrosshúsið er neyðarathvarf fyrir börn og unglinga. • Um 95% allra sjúkraflutninga í landinu fara fram í sjúkrabifreiðum Rauöa krossins. • Deildir RKÍ halda uppi öflugri fræðslu í skyndihjálp og slysavörnum. • Sjálfboðaliðar RKÍ vinna að sjúkraflutningum, öldrunarstarfi, fanga- heimsóknum og aðstoð við þá sem minna mega sín. • Félagið gegnir mikilvægu hlutverki í viðbúnaði Almannavarna ríkisins og sjálfboðaliðar deildanna um allt land gegna þar lykilhlutverki. • Rauði kross íslands leggur sitt af mörkum til hjálparstarfs Alþjóðlega Rauða krossins, með beinum fjárframlögum og starfskröftum sendi- fulltrúa. 28 v ra

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.