Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 18

Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 18
á m s k e i ö - litið inn í jógatíma „Jóga er ekki beilsuræktarkerfi í sjálfu sér. Jóga felur það í sér að vera óháð. Við getum verið háð svo mörgu, t.d. líkamanum, gáfum okkar eða tilfinningum. A meðan við erum háð þessum þáttum erum við ekki frjáls. Margir leggja ofuráherslu á að halda líkamanum stæltum. Efvið erum háð því að búa í stœltum, fallegum líkama leiðir óumflýjanleg hrörnun hans til óhamingju. Að lifa samkvæmt grundvallarreglum jóga- heimspekinnar felur það í sér að njóta þess að lifa í hraustum og stæltum líkama án þess að vera háð honum. Það sama á við um tilfinn- ingar, gáfur eða ást. Við getum notið þess sem við höfum, hér og nú. An þess að vera háð. Við þurfum að læra að lifa í núinu, og það er einmitt þetta sem við ætlum að gera næsta klukkutímann". Þetta voru upphafsorð Ásmundar Gunnlaugssonar, jógakennarans sem leiddi mig í gegnum jógatíma á dögunum. Þetta var minn fyrsti tími en mamma hefur stundað æf- ingar í tvö ár í jógastöðinni Jóga Studio. Það er erfitt að lýsa jóga af einhverju viti, svona eftir aðeins einn tíma. Ætli jóga sé ekki eitt af þessu sem hver og einn verður að reyna fyrir sig? Mín upplifun var ein- hvern veginn svona: Gymnop’edie nr. 1 og 2 eftir Erik Satie, einhvern veginn hljóðlega í bakgrunni. Annars bara þögn og við mamma þarna inni ásamt nokkrum öðrum mannverum. Við öll, áreiðanlega háð allskonar hlutum sem við vildum svo gjarnan losna undan, byrjum á því að anda djúpt, fyrst inn, síðan út. Undarlegt að finna sjálfan sig bara anda. Að breytast í loftstraum sem er á þessu skrýtna en einfalda ferðalagi inn og út úr líkamanum. Á meðan sveigist líkaminn og beygist í alls kyns undarlegar stellingar. Fyrst er það fósturstellingin, líkaminn sam- ankuðlaður. Síðan barnið og svo færum við okkur yfir í jóga mundra, fiskinn, úlfald- ann, hundinn og svaninn. Æfingarnar mis- munandi erfiðar og stundum neitar líkam- inn að gefa eftir. Þá er að einbeita sér aftur að því að anda og beina athyglinni að þeim stað þaðan sem mótþróinn kemur. Og hús sálarinnar tekur smám saman sönsum og sveigir sig aðeins lengra. Þetta er eins og að vera í samningaviðræðum við sjálfan sig þar sem andardrátturinn er undirstaða hverrar samningalotu. Tilfinningar birtast í margs konar myndum. Við tökum þeim eins og þær koma, án þess að dæma þær sem góð- ar eða slæmar. Höldum tengslum við lík- amann með því að hugsa aðeins um það að anda en þegar hugsanir sækja að þarf stundum að draga athyglina aftur að andar- drættinum eins og óþekkan hund. Erik Satie, þetta rykfallna tónskáld, bú- inn að reka endahnútinn á sitt snilldarverk. Síðasti dropinn úr blekbyttunni búinn. Ekkert eftir nema þögnin. Og við liggjum þarna falin inni í þögninni og slökum á meðan Satie situr einhvers staðar í fjarska, einn með sjálfum sér og andar hægt og ró- lega, rétt eins og við hin. Síðan göngum við saman út í hávaðann og gauraganginn en geymum þögnina innra með okkur sjálfum, mamma mín og ég. SEE NÝIR ÁSKRIFENDUR - - VELKOMNIR í HÓPINN! Undanfarna mánuði hefur Vera staðið fyrir áskriftarherferð á Akureyri og höfuð- borgarsvæðinu. Undirtektir hafa verið fjarskalega ánægjulegar og hafa rúmlega 800 manns tekið áskriftartilboðinu. Vera býður nýja áskrifendur velkomna í hópinn og vonar að blaðið standi undir vonum þeirra og væntingum. Með 5. tbl., sem kemur út í október, kemur gíróseðill fyrir seinni hluta ársins til gamalla áskrifenda. Þá er auðvitað betra að vera búin að borga fyrri hlutann, ekki satt? Þeir sem það eiga eftir ættu að borga við fyrsta tækifæri því útgáfa blaðsins byggir á því að áskriftartekjur innheimtist örugglega. i8 v ra

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.