Vera - 01.08.1997, Page 42

Vera - 01.08.1997, Page 42
Af vinnu, ást og valdi Nú á tímum, þegar hin sýnilega kvenna- harátta er í töluverðri lcegð og konur að velta fyrir sér hvað komi ncest, er tími til að líta um öxl, skoða hvað hefur verið gert og spá fyrir um framtíðina. Hvað er mikilvcegt fyrir konur í dag? Hvernig öðl- ast þcer völd og áhrif? Er sjálfsmynd ungra kvenna á einhvern hátt ólík kyn- slóðinni sem á undan kom og hefur það áhrif á kvennaharáttunna? / Italska fræðikonan Donalda Frances- cato, sem rak á fjörur Kvennalista- kvenna á dögunum, er einmitt að spyrja sig þessara spurninga. Don- alda er prófessor í samfélagssálfræði við Rómarháskóla. Hún er að skrifa bók sem hefur vinnuheitið Power, Love and Work. Bókin er byggð á könnun, sem gerð var á meðal karla og kvenna í mismunandi starfsstéttum á Ítalíu, þar sem verið er að kanna tengslin á milli starfa annars vegar og þess hvort fólki finnist það hafa áhrif og völd hins vegar. Donalda og starfsfélagar hennar eru sérstaklega að velta fyrir sér hvort konur og karlar fái völd og áhrif á mismunandi forsendum og hvort kynbund- inn munur sé á því hvort fólki finnist það geta haft áhrif á umhverfi sitt. Niðurstöðurnar komu í sjálfu sér ekki á óvart. Karlar á Ítalíu upplifa sig í öllum til- vikum valdameiri en konur. Þær konur sem upplifðu sig valda- og áhrifamestar voru stjórnmálakonur, en konur í hefðbundnum umönnunarstörfum finnst þær hafa minnst áhrif og völd. Það kemur heldur ekki á óvart að fyrir karla er valdið lykillinn að að- dáun og ást kvenna, en því er þveröfugt farið með konur. Á Ítalíu virðist það út- breidd skoðun að valdamiklar konur séu líka ástlausar, karlar hræðist eða vilji ekki tengjast konum sem eru í áberandi valda- stöðum. Þetta setur konur í þá aðstöðu að þurfa að velja á milli ástarinnar og þess að hasla sér völl á opinbera sviðinu. Töjum við of lítið um ástina á Islandi? Við, sem á fundinum vorum, Ientum í hálf- gerðum vandræðum við að heimfæra þetta upp á íslenskar aðstæður. Það eru ekki ný sannindi að valdamiklir karlar séu vinsælir meðal kvenna, en helst stjórnmála- og at- hafankonum á fslandi ver á elskhugum en öðrum konum? Tölum við kannski allt of lítið um ástina á íslandi? í framhaldinu var því velt upp hvort þarna væri að finna eitt svarið við því af hverju kvennabaráttan skil- ar sér svo illa á milli kynslóða. Eru ungar konur ekki tilbúnar að velja völdin fram yfir ástina? Donalda segir að konur á Ítalíu séu bæði að hverfa af vettvangi stjórnmálanna og þær séu einnig færri í áhrifastöðum í at- vinnulífinu nú en fyrir nokkrum árum síð- an. Á sama tíma liggi kvennabarátta á ítal- íu að mestu leyti niðri og konum finnist það mikilvægara að giftast og eignast fjölskyldu en að hafa áhrif og völd. Ungar konur sækja í áhrif og völd Ein afleiðing þessa er að hin „mjúku gildi“, sem hafi verið eignuð konum frekar en körl- um, eru ekki í hávegum höfð þar sem verið er að taka ákvarðanir sem varða samfélagið allt. Ef framtíð mannkyns veltur á því að við snúum af braut sérhyggju og eiginhags- muna til meiri samhjálpar og umhyggju er mikilvægt að konur séu þar sem ráðum er ráðið. Við, íslensku konurnar, gátum sem betur fer sagt henni aðrar sögur, þótt auð- vitað gangi kvenfrelsisbaráttan allt of hægt hér eins og annars staðar. Vaxandi einstak- lingshyggju hér á landi hefur fylgt aukin sókn kvenna í nám og störf sem geta tryggt þeim völd og áhrif í framtíðinni. Á sama tíma er umræðan um uppeldishlutverk karla og föðurábyrgð að verða meira áberandi. Þótt sú umræða skjóti einstaka sinnum upp kollinum að ungar konur leiti inn á heimil- ið í meira mæli, sem gæti þýtt að konur velji ástina fram yfir áhrif og völd, er enn sem komið er a.m.k. engin tölfræði sem styður þá goðsögn. Þvert á móti virðist sem ungar konur séu að þroska þær hliðar í sér sem hægt sé að líta á sem „karlegar“ og karlar að setja spurningarmerki við hina þröngu skilgreiningu karlmennskunar, fyrirvinnu- hlutverkið. Þessi staða getur svo sannarlega fætt af sér frjósama umræðu á milli kvenna og karla um stöðu sína í samfélaginu og væntinga til lífsins. Vonandi verður það til þess að allir, bæði konur og karlar, hafi raunverulega tækifæri til að þroska hæfi- leika sína og geti látið drauma sína rætast. dhk. 42 v ra

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.