Handbók bænda - 01.01.1923, Page 26
eplagrasið hækkar, þarf að „hreykja" moldinni upp
að stönglunum, geta þá vaxið nýjar spírur út úr
þeim, sem síðar bera jarðepli.
7. Upptaka jarðepla cr framkvæmd þannig,
að rákirnar eru plægöar eða stungnar upp, og jarö-
eplin svo tínd úr moldinni upp í ílát. Við upptökuna
verður að gæta þess, að skadda ekki yfirborð jarð-
eplanna.
8. Geymsla. Eigi jarðepli aö geymast yfir
lengri tíma (eitt ár eða svo), hefir reynst betur, að
þurlca þau. Sjeu jarðepli tekin upp í þurru veðri,
og eigi þau ekki að geymast lengi, þarf ekki að
þurka þau, en geyma á þurrum og rakalausum stað,
þar sem frost nær ekki til þeirra.
9. Uppskerumagn jaröepla er mjög mis-
munandi, eftir staðháttum og einnig eftir hvaða
afbrigði ræktað er. Sem svarar 40 tunnum af dag-
sláttu er fremur góð uppskera.