Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 28
108
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
„The Wagons Lits Turismo Rome”, sem er sú ferðaskrifstofa
sem mun sjá um ráðstefnugesti, hefur látið taka frá hótelherbergi
í mismunandi verð- og gæðaflokki. Vinsamlegast takið fram á
þátttökueyðublaði hverjar óskir þínar eru í því sambandi.
Borga þarf 200 dollara fyrirfram upp í hótelkostnað, auk 5
dollara fyrir annan aukakostnað. Þátttökugjald og innborgun á
hótelkostnað verður endurgreitt mínus 20%, ef þátttakandi for-
fallast og tilkynnir það fyrir 31. janúar 83.
Hótelkostnaður fyrir 1983 liggur ekki fyrir hendi en neðanskráð
verð gilti 1982:
Tveggjamanna herbergi Einsmanns herbergi
Luxusklassi: frá 250.000 ít. lír. frá 173.000 ít. lír.
Fyrsti flokkur: 100.000—117.000 ít. lír. 70.000—77.000 ít. lír.
Annar flokkur: 62.000—67.500 ít. lír. 41.000 ít. lír.
ATH.: Þar sem ráðstefnan er haldin í vikunni eftir páska, vinsam-
legast látið okkur vita hvort óskað er eftir hótelherbergi í lengri
tíma en umræddan tíma.
D A G S K R Á
„Second European Congress of Obstetric,
Anaesthesia and Analgesia”
1. DAGUR: 6. APRÍL 1983:
Fyrir hádegi: Mæðraskráning seint á meðgöngu. (þrír
fyrirlestrar)
Eftir hádegi: Meðhöndlun og hjálp meðan á fæðingu stend-
ur hjá hinni áhyggjufullu móður og ósam-
vinnuþýðu.
2. DAGUR 7. APRÍL 1983:
Fyrir hádegi: Ofnotkun lyfja á meðgöngu. (3 fyrirlestrar)
Eftir hádegi: Fyrirburafæðingar (3 fyrirlestrar)