Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 4
84
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
gauklasíun (glomerular filtrationin), en pípluupptakan (tubular
absorptionin) eykst ekki. Af því leiðir, að nýrun ná ekki að endur-
sjúga sykurinn, sem farið hefur í safngangana, eftir gauklasíun
(glomerular filtrationina) og þvi útskilst sykur í þvagi.
Ef sykur finnst tvívegis í þvagi i mæðraskoðun, er það ástæða
til sykurþolsprófs, sem ekki verður lýst nánar hér.
Nýrun stækka e.t.v. vegna þessa aukna álags sem verður á
meðgöngu.
Maga- og þarmastarfsemi
Breytingar í meltingafærum eru tiltölulega litlar, en þó kemur
fram fyrir áhrif vaka (hormona), slappleiki (atonia), á vöðvalok-
um vélindans (sphingter oesophagi), sem veldur því að súrt inni-
hald magans leitar upp á við og veldur brjóstsviða.
Einnig eykst myndun magasýra, tæming maga verður hægari,
og fyrir vakaáhrif minnka garnahreyfingar í öllum meltingarfær-
unum, þannig að frásog tekur lengri tíma og vatnsupptaka verður
meiri, þetta veldur gjarnan hægðatregðu. Af sömu ástæðu tæmir
gallblaðran sig verr.
Sumar konur finna fyrir ógleði, sem oft fylgja uppköst. Þetta
kemur fyrir hjá 50—60% ófrískra kvenna, fyrstu 12 vikurnar.
Ástæðurnar eru óþekktar, en talið er, að hin gífurlega aukning á
„HCG” fylgjuvakanum, sem verður í byrjun meðgöngu, valdi
þessu. Matarlyst eykst oft á meðgöngu og getur hjá sumum orðið
sjúkleg og veldur sjúkdómsmyndinni „pica” (óeðlilegur ílang-
anir), sem getur stafað af jarnskorti. Á seinni hluta meðgöngu
verður aukið álag á lifrina og þar sem „progesteron” hefur til-
hneigingu til að valda tregðu á útskilnaði frá gallgöngum lifrar,
getur það leitt til kláða og gulu á meðgöngu. Þetta álag á lifrina
veldur hækkun á „bilirubin”, „alkaliskum fosfötum” og „trans-
aminösum”. Þetta er aðalástæðan fyrir gallsteinamyndun á með-
göngu.
Breytingar á beinum, liðamótum og tönnum
Vegna þyngdaraukningar og stækkunar á legi, breytist þyngd-
arpunkturinn og konan verður fött, og vegna áhrifa frá vakanum
„relaksin”, sem myndast í eggjastokkum, kemur fram mýking á
brjóski og bandvef, aðallega í grindinni (lífbeinsgliðnun) og